Fréttablaðið - 09.05.2020, Síða 8

Fréttablaðið - 09.05.2020, Síða 8
VR óskar eftir tilboðum fyrir félagsmenn Virðing Réttlæti VR óskar eftir samstarfi við ferðaþjónustuaðila sem hafa áhuga á að veita félagsmönnum VR tilboð eða afslætti fyrir sumarið 2020. Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 1. júní 2020. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: – Merki eða mynd til birtingar á vef VR – Stutt lýsing – Tengill á vefsíðu – Gildistími tilboðs Tilboð verða birt á vef VR – vr.is/tilbod VR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK SÍMI 510 1700 WWW.VR.IS STEYPUBLANDA afsláttur 25% Steypa í poka Fæst í múrverslun BM Vallá, Breiðhöfða 3 og hjá helstu endursöluaðilum. Stöndum vörð um íslenska framleiðslu. Þarf bara að bæta við vatni Ný steypublanda með möl í sem auðveldar alla verkframkvæmd. VELJUM ÍSLENSKT Steypublanda hentar fyrir ýmis smærri verk: • Til að steypa í hólka • Til að steypa meðfram hellum • Til viðgerða á veggjum, köntum, þrepum, stéttum o.fl. • Fyrir undirstöður undir palla • Má nota í mót fyrir kanta, smáveggi og slíkt • Og margt fleira Steypublandan kemur í rykfríum pokum og steypustyrkur er C-30. Við seljum einnig blikkhólka í verslun okkar á góðu verði. COVID-19 „Við erum að reyna að standa með því fólki sem þarf þessa neyðaraðstoð til framfærslu, sam- eiginlegt markmið velferðarráðs er að koma í veg fyrir að börn búi við sára fátækt og þessi tillaga um ein- greiðslu er liður í því,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður vel- ferðarráðs Reykjavíkur. Á fundi velferðarsviðs í vikunni voru sam- þykktar tillögur um eingreiðslur og tilslakanir á reglum um fjárhagsað- stoð frá Reykjavíkurborg vegna COVID-19. Tillögurnar fela meðal annars í sér eingreiðslu til forsjáraðila sem hlotið hafa fjárhagsaðstoð frá borginni í janúar, febrúar og mars. Greiðslan nemur 20 þúsund krónum með hverju barni sem er með skráð lögheimili hjá for- sjáraðila. Í svari við fyrirspurn Fréttablaðsins til velferðarsviðs segir Regína Ástvaldsdóttir sviðs- stjóri að eingreiðslan muni skipta barnafólk verulegu máli. „Margir foreldrar hafa talað um að það hafi verið dýrara að halda heimili með börn að undanförnu þar sem þau séu meira heima,“ segir hún. Tillögurnar sem samþykktar voru á fundi í velferðarráði fara til staðfestingar í borgarráði og taka ekki gildi fyrr en eftir samþykkt þar. Fari svo að þær verði samþykkt- ar má gera ráð fyrir að kostnaður við tillögurnar verði á bilinu 20 -25 milljónir króna á þriggja mánaða tímabili. Þá er gert ráð fyrir að sam- þykktin verði afturvirk til 1. maí og gildi til 30. júní. Um er að ræða greiðslu með 481 barni á aldrinum 0-17 ára. 306 eru börn einstæðra mæðra, 23 börn ein- stæðra feðra og 152 eru börn hjóna eða sambúðarfólks. Beinn kostn- aður við þann lið tillögunnar er 9,6 milljónir króna. Þá er einnig lagt til að fallið verði frá kröfu um að þeir einstaklingar sem séu án bótaréttar skili inn staðfestingu á virkri atvinnuleit og tekjuviðmið verði hækkað tíma- bundið, það er að tekjur fyrri mán- aðar, allt að 300 þúsund krónum, dragist ekki frá fjárhæð fjárhagsað- stoðar í fyrsta umsóknarmánuði. Regína segir úrræðið skipta sköp- um fyrir töluvert stóran hóp fólks. „Við erum yfirleitt með á bilinu 50 til 80 manns á mánuði sem koma nýir inn og fá annaðhvort höfnun á fjárhagsaðstoð eða skerðingu vegna tekna fyrri mánaðar, ef þær fara yfir 207 þúsund sem hefur verið viðmiðið en verður nú 300 þúsund,“ segir hún. Einnig var samþykkt tillaga um að umsækjandi um fjárhagsað- stoð sem er í hjónabandi og maki hans staddur erlendis, fái greidda fulla fjárhagsaðstoð í tvo mánuði samkvæmt einstaklingskvarða en ekki fjárhæð sem nemur hálfum hjónakvarða líkt og reglur segja til um. Um tíu hjón eru í þeirri stöðu nú að maki sé fastur erlendis vegna COVID-19, tillagan mun ná til þess hóps. Aukning hefur verið í f jölda þeirra sem hljóta fjárhagsaðstoð frá borginni það sem af er ári og segir Regína að búast megi við enn meiri aukningu í maí og júní vegna COVID-19. Séu fyrstu þrír mánuðir ársins bornir saman við sama tíma árið áður má greina aukningu á bilinu 11-15 prósent. Meðalfjöldi þeirra sem hlutu mánaðarlegan framfærslustyrk frá borginni árið 2019 var 1.053 ein- staklingar og í upphaflegri áætlun fyrir árið 2020 var gert ráð fyrir að fjöldinn færi upp um 23 einstakl- inga. Með nýjum sviðsmyndum þar sem áhrif COVID-19 hafa verið sett inn má áætla að fjöldinn geti farið upp í 1.450 einstaklinga að meðal- tali á þessu ári. birnadrofn@frettabladid.is Vilja slaka á reglunum um fjárhagsaðstoð Tillaga um eingreiðslur og tilslakanir á reglum um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg vegna COVID- 19 voru samþykktar í vikunni. Tillögurnar fela í meðal annars sér eingreiðslu til forsjáraðila sem fengið hafa fjárhagsaðstoð frá borginni. Aukning hefur verið í beiðnum um fjárhagaðstoð. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Markmið velferðar- ráðs er að koma í veg fyrir að börn búi við sára fátækt. Heiða Björg Hilmisdóttir Save the Children á Íslandi 9 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.