Fréttablaðið - 09.05.2020, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 09.05.2020, Blaðsíða 36
Garðabær auglýsir laust til umsóknar starf leikskólastjóra við leikskólann Hæðarból í Garðabæ. Í leikskólanum dvelja 53 börn á aldrinum frá 1 árs til 5 ára. Leikskólinn er þriggja deilda og vinnur samkvæmt áherslum Uppeldis til ábyrgðar (e: restitution) þar sem lögð er áhersla á jákvæð samskipti, uppbyggilega orðræðu og ábyrgð einstaklingsins á eigin hegðun. Leikskólinn hefur verið framsækinn í vinnslu fjölbreyttra þróunarverkefna. Einkunnarorð leikskólans eru: Leikur, gleði, nám. Leitað er að leikskólastjóra til að leiða skólastarfið í samvinnu við starfsfólk, foreldra og börn. Leikskólastjóri tekur einnig þátt í að móta skólasamfélag Garðabæjar með uppbyggi- legum og framsýnum hætti í samvinnu við fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar. Helstu verkefni: • Að vera faglegur leiðtogi • Að bera faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfi leikskólans, stjórna daglegri starfsemi hans og hafa forgöngu um mótun og framgang stefnu leikskólans • Að vinna náið með starfsfólki að því að skapa frjótt námsumhverfi þar sem vellíðan er tryggð og styrkleikar hvers og eins fái notið sín Menntunar og hæfniskröfur: • Leikskólakennaramenntun • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg • Reynsla af stjórnun og rekstri • Áhugi og reynsla í að leiða þróunarstarf • Góðir skipulagshæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða í skólastarfi • Sveigjanleiki og framsýni • Hæfni í samskiptum Umsókninni skal fylgja greinargóð ferilskrá um störf umsækjanda og menntun ásamt reynslu hans sem stjórnanda og þeim verkefnum sem hann hefur unnið að og lýsa færni hans til að sinna starfi leikskólastjóra. Umsækjandi þarf einnig að skila greinargerð með hugmyndum sínum um starfið og hvernig hann sér Hæðarból þróast í skólasamfélagi Garðabæjar undir sinni stjórn. Staðan er laus frá 1. ágúst 2020. Umsóknarfrestur er til og með 28. maí 2020. Nánari upplýsingar um starfið veita Halldóra Pétursdóttir leikskólafulltrúi, netfang halldorapet@gardabaer.is eða í síma 525 8500 og Eiríkur Björn Björgvinsson forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, netfang eirikurbjorn@gardabaer.is eða í síma 525 8500. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags stjórnenda í leikskólum. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is gardabaer.is LEIKSKÓLASTJÓRI ÓSKAST Á HÆÐARBÓL Í GARÐABÆ Kælismiðjan Frost ehf. óskar eftir að ráða tæknifræðing / verkfræðing af orkusviði til starfa. • Krafa er að viðkomandi sé véltæknifræðingur / verkfræðingur af orkusviði. • Hafi góða færni í notkun Autodesk Inventor og Autocad. • Hafi góða færni í mannlegum samskiptum. • Hafi góða færni í ensku. • Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Kælismiðjan Frost ehf. er með höfuðstöðvar á Akureyri og starfsstöð í Garðabæ, hjá fyrirtækinu starfa u.þ.b. 60 starfsmenn. Frost fæst aðallega við hönnun og uppsetningu á frysti og kælikerfum til iðnaðarnota, bæði land og skipakerfa, auk þess að sinna viðhaldi slíkra kerfa. Íslensk og erlend sjávarútvegsfyrirtæki eru helstu viðskiptavinir Frosts. Undanfarin ár hefur yfir helmingur af veltu fyrirtækisins verið vegna verkefna erlendis. Áhugasamir vinsamlega sendið ferilskrá og aðrar upplýsingar á gunnar@frost.is Kennarastöður við Menntaskólann í Reykjavík Lausar eru til umsóknar kennarastöður í eftirtöldum námsgreinum: • stærðfræði • íslensku • sögu Hæfni- og menntunarkröfur: • háskólapróf í kennslugrein eða skyldum greinum • leyfisbréf (sbr.lög nr. 95/2019) • kennslureynsla á framhaldsskólastigi • góð samskipta- og skipulagshæfni • áhugi á að starfa í öflugu skólasamfélagi Launakjör eru samkvæmt stofnanasamningi skólans við Kennarasamband Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 18. maí 2020. Umsóknum skal skilað inn á Starfatorg (www.starfatorg.is) og þar eru nánari upplýsingar. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá MR. Rektor Umsjónarmaður fasteigna Menntaskólans í Reykjavík Laus er til umsóknar staða umsjónarmanns fasteigna við Menntaskólann í Reykjavík. Staðan er laus frá og með 1. janúar 2020. Um er að ræða 100% starf. Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf auk meðmæla. Hæfni- og menntunarkröfur:  Lipurð, þjónustulund og stundvísi  Að geta brugðist við og tekið að sér minniháttar viðhald  Þekking á hússtjórnarkerfum/loftræstikerfum/tæknikerfum  Þekking á öryggismálum og eldvörnum  Að geta brugðist við og tekið að sér minniháttar viðhald  Íslensku- og enskukunnátta  Tölvukunnátta sem hæfir starfinu  Iðnmenntun er æskileg Menntaskólinn í Reykjavík er elsta menntastofnun landsins og hefur yfir að ráða nokkrum byggingum og eru nokkrar þeirra undir Minjavernd. Lóð skólans afmarkast af Lækjargötu, Amtmannsstíg, Þingholtsstræti og Bókhlöðustíg. Starfið er fjölbreytt og líflegt. Starfsmenn eru tæplega 80 og nemendafjöldi er 700. Launakjör eru samkvæmt stofnanasamningi skólans við SFR. Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2019. Umsóknum skal skilað inn á Starfatorg (www.starfatorg.is). Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet Siemsen rektor í síma 545 1900 eða í netfangið: rektor@mr.is og Einar Hreinsson konrektor í síma 545 1900 eða í netfangið: einar@mr.is. Við hvetjum konur jafnt sem k rla til að sækja um starfið. Athygli umsækjenda skal vakin á því að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII.kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en af ráðningu getur orðið. Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is RÁÐNINGAR RÁÐGJÖF RANNSÓKNIR 4 ATVINNUAUGLÝSINGAR 9 . M A Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.