Fréttablaðið - 09.05.2020, Side 40

Fréttablaðið - 09.05.2020, Side 40
Smiðir óskast Við óskum eir starfsmönnum við smíði og frágang á innréttingum í báta sem fyrirtækið framleiðir. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af sambærilegum störfum og geta unnið sjálfstætt. Legg jum áherslu á nákvæmni og snyrtimennsku. Sveinspróf er æskilegt en þó ekki skilyrði fyrir ráðningu. Öllum umsóknum verður svarað og fullum trúnaði heitið. Umsóknir og fyrirspurnir skulu sendar á netfangið: atvinna@trear.is ÓSEYRARBRAUT 29 • 220 HAFNARFIRÐI SÍMI: 550 0100 • FAX: 550 0120 CLEOPATRA@TREFJAR.IS • WWW.TREFJAR.IS FRÆÐSLUSTJÓRI Á SKRIFSTOFU ALÞINGIS Skrifstofa Alþingis leitar að kröftugum fræðslustjóra til starfa á rannsókna- og upplýsingaskrifstofu en þar starfa átta sérfræðingar. Starf fræðslustjórans felst einkum í að móta fjölbreytta kynningu og fræðslu um starfsemi Alþingis fyrir alla aldurshópa með áherslu á leik-, grunn- og framhaldsskólanema. Um er að ræða nýtt og spennandi starf í fjölbreyttu og lifandi starfsumhverfi á skrifstofu Alþingis. • Skipulagning og mótun fræðslustarfs fyrir Alþingi. • Umsjón með starfsemi Skólaþings. • Móttaka skólahópa og annarra gesta. • Gerð fræðslu- og kynningarefnis um Alþingi. • Umsjón með hönnunar- og útgáfuvinnu. • Upplýsingagjöf og fræðsla til almennings. • Önnur verkefni sem fræðslustjóra er falið að vinna. • Háskólapróf í uppeldis- og menntunarfræðum eða annað háskólapróf sem nýtist í starfi. • Marktæk reynsla af fræðslu- og kynningarstörfum. • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Sjálfstæð, nákvæm og öguð vinnubrögð. • Skipulags- og samskiptahæfni. • Framsýni og góð þekking á upplýsingatækni. • Jákvæðni og sveigjanleiki. • Reynsla af teymisvinnu er æskileg. Helstu verkefni og ábyrgð Hæfniskröfur Nánari upplýsingar um starfið má finna á Starfatorgi (starfatorg.is) og frekari upplýsingar um starfsemi Alþingis og skrifstofu þingsins er að finna á vef Alþingis (althingi.is). Frekari upplýsingar um starfið umsóknarfrestur er til og með 25.05.2020. Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir störf til umsóknar Tómstundafulltrúi Sveitarfélagið Strandabyggð auglýsir laust til umsóknar starf tómstundafulltrúa. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir skapandi og skipulagðan einstakling sem hefur unun af samskiptum. Um 75% starf er að ræða. Helstu verkefni • Verkefnavinna og stefnumótun á sviði tómstunda-, íþrótta- og menningarmála í Strandabyggð • Samvinna með skólastjóra Grunn-, leik- og tónskóla Hólmavíkur að málefnum á sviði menntunar og tómstunda • Vinna með Tómstunda-, íþrótta og menningarnefnd sveitarfélagsins • Umsjón með starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Ozon og ungmennahússins Fjóssins • Umsjón með Ungmennaráði Strandabyggðar • Umsjón með skipulögðu starfi eldri borgara í Strandabyggð • Verkefnastjórnun við hátíðahöld og viðburði á vegum Stranda byggðar • Undirbúningur vegna vinnuskóla, menningardvalar og sumarnámskeiða • Stuðningur við félagastarf á sviði tómstunda, íþrótta og menningar • Sérstök nýsköpun og stuðningur við þá hópa sem hafa lítið framboð við hæfi í Strandabyggð • Samvinna við nágrannasveitarfélög og á landsvísu á sviði tómstundamála • Samstarf við íþróttafélög, starfsfólk íþróttamiðstöðvar og félagasamtök á svæðinu Æskileg menntun, færni og eiginleikar • Háskólapróf á sviði tómstunda- og félagsmálafræði eða skyldum greinum sem nýtast í starfi • Skipulags- og stjórnunarfærni • Reynsla af félagsstörfum með börnum og ungmennum • Samskiptafærni og geta til að tjá sig í ræðu og riti • Frumkvæði, jákvætt hugarfar og hugmyndaauðgi • Er hvetjandi og góð fyrirmynd Umsóknarfrestur er til 15. maí 2020. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3, eða á netfangið: strandabyggd@strandabyggd.is Allar frekari upplýsingar um starfið veitir Þorgeir Pálsson sveitarstjóri, í síma 451-3510 eða 899-0020, eða á netfangið thorgeir@strandabyggd.is Forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Sveitarfélagið Strandabyggð óskar eftir að ráða forstöðumann Íþróttamiðstöðvarinnar á Hólmavík. Ráðið er í starfið frá 1. júlí n.k. Við leitum að einstaklingi sem hefur leiðtogahæfni, er lipur í mannlegum samskiptum og hefur brennandi áhuga á uppbyggingu íþrótta- og lýðheilsustarfs í Strandabyggð. Helstu verkefni: • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi, fjárhagsáætlunum og rekstri íþróttamiðstöðvar • Að hafa umsjón með viðhaldi og rekstri tækja og búnaðar • Faglegri forystu og starfsmannastjórnun • Að stuðla að framþróun íþróttamiðstöðvarinnar sem og íþróttastarfs í sveitarfélaginu. Gerðar eru kröfu um að viðkomandi: • Uppfylli skilyrði sem fram koma í reglugerð nr. 814/2010 um hollustuhætti á sund- og baðstöðum • Búi yfir skipulags- og stjórnunarfærni • Búi yfir góðri samskiptafærni og getu til að tjá sig í ræðu og riti • Hafi til að bera frumkvæði og styrk til ákvarðanatöku • Sé í starfi sínu hvetjandi og góð fyrirmynd Forstöðumaður er hluti af stjórnendateymi Strandabyggðar, en í því eru forstöðumenn og sveitarstjóri. Starfinu fylgja því töluverð samskipti við skrifstofu Strandabyggðar, tómstunda- fulltrúa og aðrar stofnanir sveitarfélagsins, s.s. leik- og grunn- skóla og áhaldahús. Auk þess íþróttafélög og önnur félaga- samtök á svæðinu. Umsóknarfrestur er til 15. maí 2020. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Strandabyggðar að Höfðagötu 3, eða á netfangið: strandabyggd@strandabyggd.is Allar frekari upplýsingar um starfið veitir Eiríkur Valdimarsson, sveitarstjórnarmaður og formaður Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefndar, á skrifstofu sveitarfélagsins, í síma 451- 3510 eða 866-3569, eða á netfangið eirikur@strandabyggd.is Í Strandabyggð búa um 460 manns og er Hólmavík þéttbýlis- staður sveitarfélagsins. Atvinnulíf í sveitarfélaginu er fjölbreytt og skólastarf öflugt. Boðið er upp á leikskólapláss fyrir börn frá 9 mánaða aldri og auk grunnskóla fyrir börn frá 1.-10. bekk er á staðnum dreifnámsbraut frá FNV fyrir nemendur á framhalds- skólastigi. Öflugt tómstunda-, íþrótta- og menningarstarf er í sveitarfélaginu, s.s. skíðafélag, tveir kórar fyrir fullorðna, tón- listarskóli og áhugaleikfélag og hugað er að því að sem flestir aldurshópar fái notið sín. Malbikun Loftorka Reykjavík ehf. óskar eftir vönu fólki í malbikunarvinnu. Umsóknir berist Loftorku Reykjavík ehf. á netfangið fridrik@loftorka.com Upplýsingar veitir Friðrik Jónsson í síma 8920525 Loftorka Reykjavík ehf. Miðhrauni 10 210 Garðabæ Sunnulækjarskóli Við Sunnulækjarskóla á Selfossi eru lausar stöður umsjónarkennara á yngsta- og miðstigi, stöður stærðfræði- og íslenskukennara á elsta stigi og staða kennara í hönnun og smíði frá og með næsta hausti. Í skólanum eru um 720 nemendur og þar er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða sam­ vinnu allra sem að skólastarfinu koma. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar Sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Leitað er að umsækjendum með kennsluréttindi og sérhæf­ ingu á grunnskólastigi, góða íslenskukunnáttu, áhuga og reynslu af teymiskennslu og góða samskiptahæfni. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu skólans: http://www. sunnulaekjarskoli.is og hjá skólastjóra í síma 480­5400. Umsóknarfrestur er til 18. maí 2020 en ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 2020. Sækja þarf um stöðurnar á vef Sveitarfélagsins Árborgar, http://starf.arborg.is. Skólastjóri Starf laust til umsóknar Yfirmatráður – Deildarstjóri skólamötuneytis Skólamötuneyti Húsavíkur hefur starfsemi sína 1. ágúst næst komandi. Mötuneyti leikskólans Grænuvalla og mötuneyti Borgarhólsskóla verða þá sameinuð í eitt. Yfirmatráður mun reka mötuneytið sem sérstaka deild innan sveitarfélagsins og vera deildarstjóri hennar. Eldað verður í vel útbúnu eldhúsi í Borgarhólsskóla. Stöðugildi við mötuneytið verða samtals fjögur og eldað verður daglega fyrir um 550 nemendur og starfsmenn Borgarhólsskóla og Grænuvalla auk starfsmanna stjórnsýsluhúss. Starfslýsing Fullt starf yfirmatráðs skólamötuneytis Húsavíkur er laust til umsóknar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi. Leitað er að stjórnanda sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja öflugt og metnaðarfullt skólamötuneyti í samvinnu við skólana, starfsfólk, for­ eldra og nemendur. Leitað er eftir stjórnanda sem hefur sterka og faglega sýn á starfsemi skólamötu neyta. Yfirmatráður mun bera ábyrgð á fjárhagsáætlun og rekstri, ráðningu annarra starfsmanna og mannahaldi, matseðlagerð, pöntun hráefnis, eldamennsku, verkskip­ ulagi og annarri starfsemi mötuneytisins. Menntunar- og hæfniskröfur • Reynsla af stjórnun og/eða faglegri forystu í mötuneytiseldhúsi er æskileg • Forystuhæfileikar, mikil samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar • Sveinspróf í matreiðslu eða matartækninám • Reynsla af rekstri og fjárhagsáætlunargerð er kostur Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2020. Umsóknum skal skila á rafrænu formi til fræðslufulltrúa Norðurþings á netfangið jon@nordurthing.is Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7­9 á Húsavík í síma 464 6100 eða með fyrirspurnum á netfangið nordurthing@nordurthing.is Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi miklum og sköpunarkrafti manns og náttúru.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.