Fréttablaðið - 09.05.2020, Side 70
Á EINUM STAÐ Í BÓK
WALTZ ER SAGT FRÁ ÞVÍ
ÞEGAR WALT KÍKIR INN
Á SKRIFSTOFU CHARLIE
OG KYNNIR HANN FYRIR
TVEIMUR FÉLÖGUM SÍN-
UM, CHARLIE CHAPLIN
OG H. G. WELLS.
Karl Gústaf Stefánsson fæddist í Winnipeg í Kanada árið 1890. Þremur árum fyrr höfðu foreldrar hans, Stefán Þórðarson og
Sigríður Þórarinsdóttir, rifið upp
rætur sínar í Biskupstungum og
haldið vestur um haf í leit að betra
lífi ásamt syni sínum Jóni. Það líf
fundu þau og ekki síst vegna þess
að í Kanada eignuðust þau þrjá syni
til viðbótar, Joseph, Karl og Steph-
en. Ytra tóku þau upp ættarnafnið
Thorson og var Karl litli aldrei kall-
aður annað en Charlie.
Mælti aldrei stakt orð á ensku
Hagur fjölskyldunnar vænkaðist
ytra enda var öflugt fólk þar á ferð.
Stefan, faðir Charlie, fótaði sig vel í
samfélaginu ytra og varð um tíma
bæjarstjóri í Gimli í Manitoba.
Móðir hans, Sigríður, sem var skarp-
greind en nokkuð sérvitur ákvað þó
að halda fast í íslenska siði og venjur
og hermt er að hún hafi aldrei mælt
stakt orð á enska tungu. Hún lagði
ríka áherslu á að kynna íslenskan
menningararf fyrir sonum sínum,
sérstaklega Íslendingasögurnar.
Það kunnu þeir vel að meta.
Joseph var frábær námsmaður
og nýtti þá hæfileika sína til þess
að fara í háskóla og varð hann síðar
þekktur lögmaður ytra. Hann
varð þingmaður í Kanada og um
tíma þótti hann líklegur kandídat
í embætti forsætisráðherra lands-
ins meðal f lokksbræðra. Segja má
að Charlie hafi fallið í skuggann af
eldri bróður sínum sem hann unni
þó mjög. Hann hafði engan áhuga
á bókum né hafði hann þolinmæði
fyrir yfirboði kennara. Við þá átti
hann í stöðugum útistöðum og
árekstrum enda hætti hann námi
ungur. Það átti eftir að há honum
alla tíð, óþol fyrir því að lúta valdi
annarra, og ef honum mislíkaði
eitthvað þá gekk hann á dyr í fússi.
Sagði Charlie sjálfur að víkingaeðl-
inu væri um að kenna.
Í augum fjölskylduföðurins var
Charlie því svarti sauðurinn í fjöl-
skyldunni. Af honum gengu ævin-
týralegar sögur í Íslendingasam-
félaginu ytra enda bendir f lest til
þess að hann hafi verið glaðlyndur,
stríðinn og uppátækjasamur. Þá var
hann sagður drykkfelldur, gefinn
fyrir konur, fjárhættuspil og lífsins
lystisemdir.
Charlie hafði augljóslega listræna
hæfileika en þá var ekki útlit fyrir
að sérstök framtíð væri í því. Hann
vann margs konar störf en hafði
einhverjar tekjur af því að teikna
skopmyndir í fjölmörg dagblöð sem
gefin voru út fyrir íslenskumælandi
fólk ytra.
Hörmulegt fráfall ástvina
Þegar Charlie var 24 ára gamall, árið
1914, festi hann ráð sitt. Þá giftist
hann fyrri eiginkonu sinni, Rann-
veigu „Rönku“ Swanson, en tveimur
Teiknarinn
sem hataði
Walt Disney
Sumar af þekkustu teiknimyndafígúrum
heims eru íslenskt sköpunarverk. Á bak
við verkin var Vestur-Íslendingurinn Karl
Gústaf Stefánsson. Ævi kappans var ævin-
týraleg en að sama skapi afar harmræn.
mánuðum áður hafði sonur þeirra,
Charlie yngri, litið dagsins ljós.
Faðir Charlie, Stefan borgarstjóri,
hafði ekki tekið annað í mál en að
turtildúfurnar gengju í hjónaband
þegar ljóst var að von væri á barna-
barni. Ranka var dóttir Friðriks
Sveinssonar, sem ytra gekk undir
nafninu Fred Swanson. Hann var
bróðir rithöfundarins Jóns Sveins-
sonar, Nonna. Friðrik reyndist
Charlie vel og var eins konar læri-
faðir hans í listinni og hvatti hann
áfram á þeim vettvangi.
Árið 1916 reyndist afar afdrifaríkt
ár í lífi Charlie. Bræður hans, Joseph
og Stephen, höfðu gengið í herinn til
þess að berjast í fyrri heimsstyrj-
öldinni og Stephen átti ekki aftur-
kvæmt. Hann féll í hinni blóðugu
orrustu við Somme í Frakklandi
um haustið og voru hinstu orð hans
þau að biðja fyrir kveðju til Charlie
bróður síns. Enn seig á ógæfuhliðina
þegar Ranka veiktist af berklum og
dró sjúkdómurinn hana til dauða.
Illu heilli smitaðist sonur þeirra af
barnaveiki og nokkrum mánuðum
síðar fylgdi litli drengurinn í fótspor
móður sinnar.
Eðlilega var fráfall þessara ást-
vina listamanninum mikið áfall
og næstu ár f lakkaði hann eins og
umrenningur um Kanada, heltek-
inn af sorg.
Árið 1922 giftist Charlie seinni
eiginkonu sinni, Ödu Teslock. Þau
eignuðust son ári síðar sem einnig
var nefndur Charlie. Drengurinn
litli lifði þó aðeins í þrjá daga.
Hjónin eignuðust annan son, Steph-
en, árið 1925 sem blessunarlega lifði
af og komst til manns. Hann varð
virtur læknir í Bresku-Kólumbíu og
á mestan heiðurinn af því að halda
utan um verk föður síns og halda
þar með minningu hans á lofti.
Hjónaband Charlie og Ödu var
stormasamt og entist aðeins í
nokkur ár. Þau skildu að borði og
sæng árið 1928 og skilnaðurinn
gekk formlega í gegn árið 1931. Enn
á ný var líf Charlie í uppnámi og
óvíst hvað tæki við.
Fyrirmynd Mjallhvítar
Á þessum árum vann hann fyrir sér
með því að teikna myndir af margs
konar vörum í vinsælan vöru-
lista fyrir póstverslunina Eatons í
Winnipeg. Hann vandi komur sínar
á Weevil-kaffihúsið í Winnipeg
sem var eins konar hjarta í félagslífi
Vestur-Íslendinga þar um slóðir.
Þar eyddi Charlie drjúgum tíma
og var einn vinsælasti gesturinn.
Hann drakk stíft en sagði líf legar
sögur sem heilluðu nærstadda og
skemmti ungum sem öldnum með
fyndnum en ekki síður fallegum
teikningum. Af leiðingin af veru
hans á kaffihúsinu varð goðsögnin
um íslenskan uppruna Mjallhvítar
sem enn er talað um meðal Vestur-
Íslendinga. Þar starfaði nefnilega
ung stúlka, Kristín Sölvadóttir, sem
hafði f lutt tímabundið til frænku
sinnar í Kanada frá Íslandi, meðal
annars til þess að læra ensku.
Charlie heillaðist af stúlkunni
þó að á þeim væri mikill aldurs-
munur, hann rúmlega fertugur og
Karl Gústaf Stefánsson gekk undir viðurnefninu Teiknimynda-Kalli eða Cartoon-Charlie.
Framhald á síðu 32
Björn Þorfinnsson
bjornth@frettabladid.is
Allar upplýsingar veita
Helga Pálsdóttir lögg. fasteignasali
Sími 822 2123 helga@fastlind.is
Þorsteinn Yngvason lögg. fasteignasali
Sími 696 0226 thorsteinn@fastlind.is
Bjarkardalur 4-6 Reykjanesbæ
OPIÐ HÚS
SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
laugardaginn 9/5
og sunnudaginn 10/5
milli klukkan 12 og 13
NÝJAR, FULLBÚNAR vandaðar 3 herbergja íbúðir með bílskúr.
Tvær stærðir: 108,4m2 og 130,3m2. Verð frá 44,9 milljónum.
20 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.
Íbúðirnar eru einstaklega vandaðar og skilast með gólfefnum
á öllum rýmum, fallegum innréttingum, ísskáp m. frysti,
uppþvottavél og smekklegri lýsingu frá Lumex.
9 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð