Fréttablaðið - 09.05.2020, Blaðsíða 77
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elsku maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Ragnar H. Guðmundsson
Arnarási 15,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold
fimmtudaginn 30. apríl.
Jarðarförin mun fara fram 14. maí, í kyrrþey
í ljósi aðstæðna. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Blindrafélagið.
Guðrún S. Jóhannsdóttir
Jóhann H. Ragnarsson
Ingvar H. Ragnarsson Ásta Sölvadóttir
og Jökull Tinni Ingvarsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Ólöf Björgvinsdóttir
lést á heimili sínu þriðjudaginn 5. maí.
Útför hennar verður auglýst síðar.
Helga Lilja Tryggvadóttir Sigurjón Magnússon
Magnús Björgvin Tryggvason Elsa Maria Alexandre
Þórhallur Tryggvason Þórhalla Guðmundsdóttir
Hanna Tryggvadóttir Torfi Ragnar Vestmann
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi,
Sigfinnur Gunnarsson
lést á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði
7. maí sl. Í ljósi aðstæðna fer útförin
fram í kyrrþey frá Hafnarkirkju
laugardaginn 16. maí.
Sigurbjörg Ragnarsdóttir
Gunnar Sigfinnsson Guðný Dóra Ingimundardóttir
Ragna Sigfinnsdóttir Friðrik Karlsson
Björn Sigfinnsson Ester Þorvaldsdóttir
Guðrún Sigfinnsdóttir
barnabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Anna Marín Kristjánsdóttir
áður til heimilis að Neðstutröð 8
í Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu
Ísafold í Garðabæ 2. maí sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Katrín G. Torfadóttir Bragi Jónsson
Kristján G. Torfason Bára Benediktsdóttir
Björn Torfason Soffía Guðjónsdóttir
Gunnar Torfason
Gauti Torfason Kristín Birna Angantýsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar elskulega móðir, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Kristjana Jónsdóttir
lést á Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi, 4. maí síðastliðinn.
Jarðsungið verður frá Akraneskirkju
fimmtudaginn 14. maí kl. 13.00.
Vegna sérstakra aðstæðna í þjóðfélaginu og
fjöldatakmarkana verður streymt úr kirkjunni, sjá vefslóð
www.akraneskirkja.is
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Höfða fyrir einstaka
umönnun, nærgætni og hlýju.
Jón Sigurðsson Emilía Ólafsdóttir
Þorvaldur Ólafsson
Þóra Sigurðardóttir Guðbjörn Tryggvason
Hlín Sigurðardóttir Guðni R. Tryggvason
og ömmubörnin.
Okkar ástkæri,
Marjan Zak
framreiðslumaður,
lést á líknardeild Landspítalans
1. maí. Í ljósi aðstæðna fer útförin fram
í kyrrþey 14. maí. Þökkum öllum þeim
sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug.
Irena Puhar Zak
Sandra Zak
Ágúst Zan Zak
Amilía Petronela Zak
Alenka Zak
Birkir Marinósson
Bergur Leó Zak Birkisson
Drengur Zak Birkisson
Inga Ágústsdóttir
Maðurinn minn,
Sigtryggur Ellertsson
Suðurhólum 24,
lést á Líknardeildinni
Kópavogi þann 29. apríl.
Útförin hans hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd barna okkar, barnabarna, langafabarna,
systur hans og tengdadóttur,
Brynhildur Friðriksdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Eyjólfur Garðar Svavarsson
matsveinn,
Skólavegi, Fáskrúðsfirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað Þriðjudaginn 14. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýjar kveðjur.
Halla Dröfn Júlíusdóttir
Svavar Júlíus Garðarsson Valgerður Elísa Sveinsdóttir
Þormar Þór Garðarsson Auðbjörg Kristín Guðnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Herdís Guðrún Jónsdóttir
v.d. Linden
lést á Dvalarheimilinu Hlíð
þann 29. apríl.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 15. maí
með fjölskyldu og nánustu ættingjum.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á deildinni Reynihlíð fyrir
hlýja og góða umönnun.
Ómar Þór Edvardsson Bára Einarsdóttir
Arnar Chr. Edvardsson María Rán Pálsdóttir
Jón Örvar Edvardsson Lind Hrafnsdóttir
Pálmar G. Edvardsson Sólveig Jóna Geirsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
„Það verður að gera ráð fyrir að einhverjir komi,“ segir Gunnsteinn, ferðaþjónustubóndi á Ströndum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Það er byrjað að hringja í okkur hjónin á Bergistanga og panta gistingu og við Margrét erum að gera allt klárt. Svo verður kaffihúsið hér á bryggjunni opnað
um næstu mánaðamót. Það er vinsælt.
Hún kom nýlega hún Sara sem hefur
starfað þar frá því það var sett á lagg-
irnar, til að líta yfir og huga að undir-
búningi. Það verður að gera ráð fyrir
að einhverjir komi,“ segir Gunnsteinn
Gíslason í Norðurfirði spurður hvort
hann haldi að ferðamenn láti sjá sig þar
í sumar. Hann vonar auðvitað að þeir
verði veirulausir. „Við höfum sloppið við
veiruna, þessi fáu sem erum hér og erum
ánægð með það,“ segir hann.
Spurður hvernig veturinn hafi verið
svarar Gunnsteinn: „Þegar maður hugs-
ar til baka þá var hann djöfull harður, ef
það má segja svo ljótt. Kaldur og vinda-
samur. Dag eftir dag var bara ekki fært
út úr húsi. Bændur brutust til að gefa
kindum sínum en annars voru menn
ekki á ferð. Það var þó ekki snjóþungt
hjá okkur en hér sunnan við var mikill
snjór, í Reykjarfirðinum og víðar.“
Nú hefur Vegagerðin kynnt nýtt veg-
arstæði yfir Veiðileysuháls sem liggur
talsvert lægra en sá vegur sem fyrir er.
Gunnsteinn er hlynntur því og segir
láglendisveg fyrir Kamb varla koma til
greina. „Það er svo miklu lengri leið og
við höfum ekki haft hug á að leysa okkar
samgöngumál með vegi þar,“ lýsir hann.
Strandveiðibátarnir eru komnir í
Norðurfjörð, fyrstu dagana eftir að
veiðar voru leyfðar gaf ekki á sjó, að
sögn Gunnsteins, en nú gengur betur.
„Svo er sauðburður kominn í fullan gang
hjá bændum. Það eru fjárbú í Steinstúni,
á Melum, í Árnesi og í Litlu-Ávík. En við
Margrét eigum enga kind. Það hefði ein-
hvern tíma þótt óburðugt.“
Árneshreppsbúar voru svo myndar-
legir að koma sér upp félagsverslun í
Norðurfirði þar sem kaupfélagið var.
„Verslunin er nauðsynleg,“ segir Gunn-
steinn. „Þar starfar franskur piltur.
Hann talaði litla íslensku fyrst en við
erum farnir að skilja hvor annan og
hann talar ensku.“
gun@frettabladid.is
Byrjað að panta gistingu
Gunnsteinn Gíslason, fyrrverandi oddviti í Árneshreppi og nú ferðaþjónustubóndi í
Norðurfirði, fagnar því að vetur er að baki. Hann horfir bjartsýnn fram á sumarið.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 37L A U G A R D A G U R 9 . M A Í 2 0 2 0