Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Side 10

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Side 10
ÁBENDINGAR Skyldu þau ekki geta komið með ágætar ábendingar? Hingað kom Guðmundur Gíslason fv. kaupfélagsstjóri og varaþingmaður að austan og átti erindi nokkur. Hann kom með þá ákveðnu ábendingu, sem hann hefur kynnt að- stoðarmanni fjármálaráðherra, að 12- 16 ára unglingar fái skattkort. Við hér viljum gjarnan hnykkja á þessari ábendingu, því okkur er ljóst að staðgreiðslukerfi skatta hefur haft í för með sér umtalsverða aukna skattbyrði alltof ntargra öryrkja og hefur það áður verið reifað ljóslega hér í Frétta- bréfinu. Hugmynd Guðmundar snertir foreldra fatlaðra barna, sem hafa um- sjón með bömum sínum heima með því mikla aukaálagi sem fylgir og skerðingu atvinnutekna um leið, en engu að síður er þá reynt að vinna á öðrum tímum úti með aukakostnaði og óþægindum þá. Guðmundur spyr: Geta ekki ör- yrkjar fengið skattkort 12-16 ára? Forráðamenn sem ekki vista bömin á stofnun eða heimili, heldur hafa alla umsjón með þeim heima, gætu þá nýtt skattkortið. Þetta væri viðbótaraðstoð við þá hjálp, sem 10. grein laganna um mál- efni fatlaðra veitir foreldrum. Guðmundur talar ekki um 100% skattkort, heldur nefnir t.d. 70%. Þetta er allrar athygli vert. • Hingað kom kona sem ekki vill láta nafns síns getið og spurði um greiðslu barnalífeyris til öryrkja og bað um skýringar á þeim mismun, sem er á greiðslu hans vegna 16-18 ára bama, eftir því hvort viðkomandi er heil- brigðureða öryrki sjálfur. Hún sagðist eiga 16 ára bam sem væri öryrki, sjálf væri hún öryrki, en við 16 ára aldurinn hefði barnalífeyririnn fallið niður vegna þess að þá hefði viðkomandi barn hennar verið orðinn sjálfstæður örorkuþegi með fastar, fullar bætur. Þetta var skýring Tryggingastofn- unar ríkisins og fljótt á litið virðist ekki um óeðlilega afgreiðslu að ræða. En konan héltáfram: Vinkonamín, sem einnig er öryrki á líka 16 ára alheilbrigt barn, sem hefur nú mán- aðartekjur sem eru u.þ.b. helmingi hærri en tryggingabætur dóttur minn- ar. Hún færóskertan barnalífeyri engu að síður. Eg hygg að konan hafi fengið leiðréttingu síns máls af því hún gerði að því gangskör. En svona hlutir mega ekki koma upp sem bein og ótvíræð mismunun, þar sem síst skyldi. Sett fram hér til umhugsunar og væntanlega úrbóta, enda hæg heima- tök þess, sem þykist vera að end- urskoða alla tryggingalöggjöfina. • Sá glöggi og greinargóði maður, Guðmundur Bernharðsson, sem hefur reynst Fréttabréfinu drjúgur liðsmaður nú og áður, kemur stundum að máli við mig og hefur þá jafnan eitthvað til mála að leggja. Honum er hugleikin félagsstarf- semi íbúanna hér í Hátúnshúsunum og víkur oft að því, að Öryrkjabandalagið þyrfti endilega að styðja íbúana og virkja þá til einhvers lifandi félags- starfs. Guðmundur kann manna best að meta kvöldvökur vetrarins, sem við hér á skrifstofunni sjáum um og raunar hælir hann okkur svo á hvert reipi að ekki er hafandi eftir hér af mér. En Guðmundur sem sjálfur á gnótt efnis aflögu til skemmtunar og fróðleiks, vill meina að margir hér séu sem hann og geti lagt sitt af mörkum í margri grein, en til þess þurfi aðstoð, stuðning, örvun og máske örlitla fjár- hagsaðstoð frá Öryrkjabandalaginu. „Hér á ekki allt að snúast um sjónvarp og vídeó“ segir Guðmundur og hefur vissulega mikið til síns máls. Abendingu hans um þetta efni er kom- ið á framfæri. Vissulega væri gaman að rey na, en hins ber þá að geta um leið, að ekki eru kvöldvökumar sóttar svo sem mér finnst að vert væri, þegar svo sjaldan er saman komið,með það að leiðarljósi, að „maður sé manns gaman“ og hvað sem hógværð minni margfrægri líður, þegar boðið er upp á jafngóða skemmtun og þar er þó gert - og það er vitað af öllum hér. En áhugamál Guðmundar er það, að það hæfileikafólk, sem hér er að finna - verði virkjað til þess sem helst getur veitt því sjálfu og öðrum um leið aukna lífsfyllingu og ofurlítinn gleði- auka. Með þessari ábendingu getur rit- stjóri ekki stillt sig að skella mynd af síðustu kvöldvöku þ.e. þeim hóp, sem bar af henni hita og þunga. Og þá hafa menn það. • Mikið er búið að ræða og rita um 10

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.