Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Blaðsíða 26
Kolbeinn Gíslason bæklunarskósmiður:
Hlutverk bæklunarskósmíði
í heilbrigðisþjónustunni
S n efa er sú staðreynd flestum
/\ ljós, að í nútímalegu ríki sem
i V íslandi,erheilbrigðisþjónustan
bæði margbrotnari og fullkomnari en
gengur og gerist meðal fjölmargra
ríkja heims. Engu að síður þá kemur
það vafalítið mörgum spánskt fyrir
sjónir, að skósmíði skuli teljast til
slíkrar þjónustu. Sú er þó raunin. Að
vísu heyra hefðbundnar skósmíðar
heilbrigðisþjónustunni ekki til, heldur
sérstök grein, sem er sérsmíði
skóbúnaðar fyrir fólk sem þjáist af
sjúkdómum í fótum eða fötlun.
Þeir sem leggja fyrir sig bækl-
unarskósmíði, verða að hafa lokið
prófi til fullra réttinda í hefðbundinni
skósmíði. Að því loknu hefja þeir sér-
nám þar sem mikil áhersla er lögð á
læknisfræðilega þætti eins og líffæra-
fræði og sjúkdómafræði. Að loknu
prófi öðlast menn síðan réttindi til sér-
smíða á skóm handa fótveiku og fötl-
uðu fólki sem á slíkum skóm þarf að
halda (rétt er að benda á að þegar þetta
er skrifað, liggur enn ekki fyrir
reglugerð um bæklunarskósmíði sem
réttindanám, en hún mun þó vera
væntanleg).
Höfundurinn, Kolbeinn Gíslason.
SÉRSMÍÐI OG
INNLEGGJAGERÐ
Sennilega er innleggjasmíði sú
þjónusta sem flestir njóta af hálfu
bæklunarskósmiða. Margir þjást af
minniháttar kvillum og óþægindum í
fótum, eins og t.d. tábergssigi, ilsigi
Fótamein manna geta verið margs konar. Á myndinni til hægri má sjá sér
smíðaða skó ásamt lausum ,,inniskó“ eins og minnst er á í greininni.
eða hælskekkju. í fæstum tilvikum er
nauðsynlegt að sérsmíða skó fyrir þá
sem þjást af sjúkdómum sem þessum,
heldur má bæta hér úr með notkun
réttra innleggja.
Skóreru venjulegaaðeins smíðaðir
fyrir þá sem þjást af verulegri fótfötlun
og þurfa meiri stuðning en unnt er að
veita með innleggjum. Tilgangurinn
með því að smíða bæklunarskó er að
sjálfsögðu sá að vinna gegn þeirri fötl-
un sem sjúklingamir búa við. Að auki
felst bæklunarskósmíði í smíði á ýmis
konar spelkum til stuðnings og réttinga
á fótum.
NÝ TÆKNI - NÝIR
MÖGULEIKAR
A undanfömum ámm hefur marg-
vísleg tækni rutt sér rúms innan bækl-
unarskósmíðinnar sem vemlega hefur
aukið möguleika þeirra sem við grein-
ina starfa til að mæta þörfum sjúklinga.
Þannig hefur náðst mjög góður árang-
ur við smíði á skóm fyrir sykursjúka
sem fengið hafa sár á fætur og einnig
lömunarsjúktfólk. Hérkemurekki síst
til ný tækni til smíði á svokölluðum
„innri skóm“. Innri skór gera fólki
kleift að nota áfram venjulega skó
þannig að ekki verður séð að það njóti
sérsmíðaðs búnaðar. Engu að síður
veita þeir þann nauðsynlega stuðning
sem viðkomandi þarfnast.
I þessu sambandi skiptir það
kannski ekki síður máli að mun auð-
veldara er að verða við síbreytilegum
fagurfræðilegum kröfum sem fólk
gerir almennt til skóbúnaðar og sem
ráðast af sviptingum í heimi tískunnar
á hverjum tíma. Sú tíð má heita liðin
þegar bæklunarskór skáru sig frá öðr-
um skóbúnaði.
Þá er rétt að geta þess að einnig eru
til sérstakir meðferðarskór, en þeir eru
ekki sérsmíðaðir, heldur er hér um að
ræða fjöldaframleidda skó sem síðan
eru lagaðir að hverju einstöku tilfelli.
Svo virðist sem meðferðarskór séu
fremur lítið notaðir hér á landi heldur
26