Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Side 13

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Side 13
UM BRÉFASKÓLANN Hugleiðing Arnþórs Helgasonar Aðfararorð ritstjóra: Eins og áður hefur verið getið allvel hér í Fréttabréfinu, þá gerðist Öryrkjabandalagið eignaraðili að Bréfaskólanum á liðnu ári og á þar nú 10% eignarhlut. Bréfaskólinn hefur lengi verið ein- hver mikilvægasti hlekkur þess, sem nú er víst einu orði nefnt fjarkennsla, brautryðjandi um leið og margur hefur virkilega notið góðs af fjölþættri og vax- andi starfsemi skólans. Það var því án alls efa skynsam- legt að taka þama þátt, þegar færi gafst og þá er svo að vona að því megi þannig fyrir koma, að fatlaðir megi í vaxandi mælinjótagóðsaf. í stjóm Bréfa- skólans af hálfu Öryrkjabandalagsins situr Arnþór Helgason og í fulltrúaráði auk stjórnar sitja þær Asgerður Ingimarsdóttir og Jóna Sveinsdóttir. A aðalfundi Bréfaskólans sl. vor kom glögglega fram mikill og vaxandi áhugi allra aðila, ekki sízt skóla- stjórans, Guðrúnar Friðgeirsdóttur, að ná sem allra bezt til sem allra. Eign- araðilar Bréfaskólans eru nú: Sam- band íslenzkra samvinnufélaga (30%), Farmanna- og fiskimannasambandið, Bandalag starfmanna ríkis og bæja, Menningar- og fræðslusamband al- þýðu, Kvenfélagasamband Islands og Ungmennafélag íslands, sem nýlega hefur endumýjað aðild sína að skól- anum, öll með jafnan 10% hlut utan S.Í.S. Mér þótti þessi umræddi aðal- fundur bera mikilli bjartsýni og bar- áttuhug ágætt vitni og fékk því for- mann bandalagsins til að setja niður á blað nokkrar hugleiðingar urn Bréfa- skólann, nytsemi hans fyrir Ör- yrkjabandalagið og framtíðarhug- myndir, svo og um fleiri atriði, sem hann vildi fræða lesendur Frétta- bréfsins um. Er Arnþóri þar með gefið orðið: Eins og kunnugt er stofnaði samvinnuhreyfingin Bréfaskólann Arnþór Helgason. fyrir tæpum 50 árum og síðar varð Alþýðusamband Islands meðeigandi. Málefni skólans þróuðust svo þannig að eigendum var fjölgað og rekstur hans var numinn úr tengslum við rekst- ur Sambandsins. Bréfaskólinn var þarft framtak á sínum tíma og olli tímamótum í menntun íslenskrar alþýðu. Það mun ekki ofmælt að fyrir tilstilli Bréfa- skólans hafa ýmsir sem búa vítt og breitt í kaupstöðum og sveitum þessa lands aukið við menntun sína og orðið þannig hæfari til starfa í sífellt fjölbreyttara þjóðfélagi nútímans. Þá var við stofnun skólans lítt farið að huga að menntun fatlaðra og er vitað til þess að ýmsir fatlaðir einstaklingar hafa stundað nám með því að taka þátt í ýmsum námskeiðum skólans. Menntun fatlaðra hefur ætíð verið ofarlega á baugi hjá aðildarfélögum Öryrkjabandalags Islands. Rétt er að rninna á að Blindravinafélag Islands stofnaði Blindraskólann árið 1933 og starfrækti hann til ársins 1977 og um árabil starfrækti SIBS gagnfræða- og iðnskóla að Reykjalundi. Þá átti Öryrkjabandalagið ásamt Rauða krossinum og fleiri samtökum hlut að stofnun Skóla fatlaðra, sem nú er starf- ræktur á vegum bandalagsins og fé- lagsmálaráðuneytisins undir nafninu Starfsþjálfun fatlaðra. Þegar Öryrkja- bandalági Islands var boðin aðild að Bréfaskólanum þótti rétt að taka því boði meðal annars til þess að banda- lagið gæti haft áhrif á framboð nám- skeiða sem henta fötluðu fólki. Þá opnar aðild banda- lagsins ýmsarleiðir til samstarfs við Starfsþjálfun fatl- aðra og þróun sér- hæfðs námefnis. Bréfaskólinn er eign fjölda- samtaka sem eru um leið hagsmunasamtak. Það hlýtur því að liggja í hlutarins eðli að ein mesta fjöldahreyfing landsins, Öryrkjabandalag Islands, gangi til liðs við önnur fjöldasamtök um rekstur stofnunar eins og Bréfaskólans. I samningi rnilli Bréfaskólans og Öryrkjabandalags íslands er gert ráð fyrir að Bréfaskólinn taki að sér gerð og útgáfu sérhæfðs námsefnis fyrir fatlaða í samvinnu við bandalagið eða aðildarfélög þess. Stjórn Öryrkja- bandalagsins væntir sér mikils af aðild þess að skólanum. Gagn Öryrkja- bandalagsins felst þó fyrst og fremst í áhuga félagsmanna aðildarfélaga þess og hugmyndum þeirra um nýjungar sem hentað gætu fötluðum. Það er von mín að menn nýti sér þá möguleika sem aðildin veitir og leiti eftir hentugu námsefni. Arnþór Helgason. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 13

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.