Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Page 14

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Page 14
Sjálfsbjargarfélagar á Akureyri með þá vöskustu í fylkingarbrjósti hafa vakið athygli á nokkrum brýnum leiðréttingamálum, sem taka þarf á, og þegar hefur verið komið á framfæri við rétta aðila. Hér skal tæpt á þessum atriðum, en það er fyrst og fremst Bragi Halldórs- son, sú baráttukempa, sem um þetta hefur fjallað við ritstjóra Fréttabréfs- ins og sent erindi þar um. I tveim fyrstu tilvikunum er um skattamál að tefla. Hvoru tveggja eru í raun hrein réttlætismál, þegar málin eru skoðuð ofan íkjölinn. Annars veg- ar er það skattlagning bensínpening- anna, þar sem öryrkinn hefur enga möguleika til að gefa neina aksturs- reikninga á móti eins og ýmsum gefst kostur á. Bensínpeningar eru því skattlagðir að fullu hjá þeim öryrkjum sem ná skattleysismörkum í öðrum tekjum. Hér verður að knýja á unt breytingar og til fjármálaráðherra hafa þeir Sjálfs- bjargarmenn sent beiðni um leiðrétt- ingu og framkvæmdaráð Öryrkja- bandalagsins tekið þar undir og hyggst fylgja því eftir. Sama gildir um orð- sendingu þeirra norðanmanna út af skattlagningu uppbótar sem margir öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá, þó aldrei geti sú upphæð orðið sérlega há eins og fólk veit. Eðli þessarar uppbótar og forsend- ur hennar um leið, eru þær að þarna er verið að mæta hreinum og beinum kostnaði, þetta er beinlínis uppbót til að mæta aukaútgjöldum tryggingar- þega. Það er því hreinlega út í hött að skattleggja þessa uppbót og a.m.k. ætti að setja sérreglur um skattlagningu hvoru tveggja bæði bensínpeninganna og uppbótarinnar. Þessu mun freistað að fylgja eftir svo sem frekast er unnt og þeim norðanmönnum þökkuð at- hugun og meðferð þessara mála. Og enn segir af þeim norðan- mönnum, því Bragi Halldórsson hefur farið sérlega ofan í saumana á því, hversu raungildi bifreiðastyrkja, bílakaupalána og aðstoðar vegna vökvastýris og sjálfsskiptingar kemur út lítið aftur til nokkurra ára. Eins og Bragi Halldórsson. menn vita þá varð engin hækkun bílakaupalána nú um áramótin, í fyrsta sinn um svo langa hríð, sem elstu menn muna! Alla vega kom þetta öryrkjum mjög í opna skjöldu, ekki síst í Ijósi þess hversu bæði innkaupsverð bif- reiða svo og allur kostnaður við rekstur þeirra hefur rokið upp í verðbólgu lið- inna mánaða. Bragi hefur gert athugun þessa á því hvernig raungildið hefur haldið sér og við fengum hjá honum þær upplýsingar og birtum hér í höf- uðatriðum. Bragi segir svo: Kjör og réttindi öryrkja hvað bílakaup varðar byggjast á þremur þáttum: Styrkjum, sem komu í stað niðurfellingar á aðflutn- ingsgjöldum. Greiðslu hjálpartækja í bifreiðar, þ.e. vökvastýris og sjálf- skiptingar, að hluta, og breytinga á bif- reiðum. Og svo lánum, sem veitt eru til þess að jafna greiðslubyrðinni vegna bifreiðakaupanna á næstu þrjú til fjögur ár, þar sem greiðslugeta er lítil, enda örorkubótagreiðslur ekki há- ar. Ef verðlagsþróun þessara þriggja þátta er skoðuð frá því að tollar voru felldirniðurogstyrkirteknirupp 1987, þá kemur eftirfarandi í ljós: (Gengið út frágrunni 1987). Samkvæmt vísitölu Hagstofu Is- lands um hækkun á nýjum bílum, þá hækka þeir um 18% frá 1/3 1987 til jafnlengdar 1988 til 1989, sem gerir 72% hækkun frá 1987. Styrkir til bifreiðakaupa fylgja þessari vísitölu 1988, en 1989 vantar 12% á hærri styrkina eða kr. 30.000 - og 10% á þá lægri eða kr. 8.000, til þess að þeir fylgi verðhækkun bíla. Hjálpartæki í bílana hækka auðvitað að sama skapi og bílamir og sú varð raunin 1988 að styrkir til greiðslu þeirra hækkuðu í samræmi við fyrrnefnda vísitölu. Árið 1989 vantar 24% uppá hækkun vegna sjálfsskiptingar eða kr. 6.000, og 53% vegna vökvastýris eða kr. 11.000, svo að greiðslur þessar fylgi fyrrnefndri verðlagsþróun. Lán til bifreiðakaupa fylgdu einnig ofangreindri vísitölu 1988, en 1989 ber svo við að greidd er sama krónutala og 1988, þó svo hækkun bíla milli þessara ára hafi verið 46% samanber 14

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.