Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Qupperneq 15

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Qupperneq 15
ofangreinda vísitölu. Það vantar því 51% uppá að hærri lánin haldi verð- gildi sínu frá 1987 eða kr. 70.000, og 47% á lægri lánin, eða kr. 37.000. Núverandi stjórnvöld eru því upp- vís að því að hafa um síðastliðin ára- mót skert kjör öryrkja hvað bílakaup varðar með því að: 1. Láta ekki styrki til bifreiðakaupa öryrkja hækka í fullu samræmi við meðaltalshækkun á bifreiðum. 2. Láta ekki greiðslur vegna hjálp- artækja í bílana (vökvastýris og sjálf- skiptingar) hækka í fullu samræmi við hækkun bifreiðanna, heldur skerða þær stórlega, sem lýsir skorti á skiln- ingi fyrir sérþörfum hinna mest fötl- uðu. 3. Láta ekki lán til bifreiðakaupa öryrkja hækka í fullu samræmi við hækkun bifreiða, til þess að þeir hafi sömu möguleika á að komast yfir bif- reið og áður þrátt fyrir lágan lífeyri, en lán þessi hafa verið, og vonandi verða þau áfram hluti af kjörum öryrkjanna. Og hvatningu sinni lýkur Bragi svo: Samtök öryrkja mega ekki una þessum skerðingum, og verða að krefj- ast þess af stjórnvöldum að þau, nú þegar, hækki lán til kaupa á öryrkja- bifreiðum og greiðslur fyrir hjálpar- tæki í þær að fullu til samræmis við hækkun á nýjum bifreiðum, samanber vísitölu Hagstofu Islands og á næsta ári verði styrkur til kaupa á öryrkjabif- reiðum einnig hækkaður að fullu til samræmis við nefnda vísitölu. Við skorum á samtökin að beita öllum tiltækum ráðum til að ná fram ofangreindum leiðréttingum nú þegar, og birta opinberlega þessa skerðingu stjómvalda náist leiðrétting ekki fram. Með bestu kveðjum og fyrirfram þökkum, F.h. Sjálfsbjargar, félags fatlaðra á Akureyri og nágrenni. Bragi Halldórsson. Um mál þetta var fjallað á framkvæmdaráðsfundum Ö.B.Í. og það framsent til stjórnvalda með ákveðinni ítrekun, síðan gengið á fund þeirra til að knýja enn frekar á um nauðsyn úrbóta. Viðbrögð hafa enn ekki fengist sem við má una. Varðandi styrki til bifreiðakaupa, sérbúnaðs og bifreiðakaupalána mun sérstaklega verða gengið eftir því við stjómvöld að þau leiðrétti fyrir næstu úthlutun þær upphæðir sem þarna skipta máli. Vitað er að bæði hjá trygg- ingaráði og heilbrigðis- og trygginga- ráðuneyti eru uppi hugmyndir um kerfisbreytingu á allri aðstoð við fatl- aða varðandi bifreiðakaup m.a. sam- ræmi í úthlutun bifreiðakaupastyrkja og iána. Hvað sem réttmæti þess líður er ólíðandi að þessi kjör séu skert, svo mikilvæg sem þau eru öryrkjum, svo mikilvæg að segja má að þau ryðji mörgum brautina til eðlilegra lífshátta. Um skattamálin mun næsta Alþingi fjalla með einhverjum hætti að okkar ósk. LEIÐRÉTTIN G AR í þættinum Spurt og svarað í síðasta Fréttabréfi, bls. 10-11 komst á einhvem óskiljanlegan hátt hin meinlegasta villa inn í svör Mar- grétar H. Sigurðardóttur deildar- stjóraT.R. í svari nr. 3 sem fjallar um rétt til bensínpeninganna svoköll- uðu. Rétt er að foreldrar fatlaðra bama eiga ekki rétt á bensínstyrk s.s. þar segir og á því önnur málsgrein í svari þrjú sem hefst svo: Foreldrar fatlaðra bama o.s.frv. að falla niður. Það minnir hins vegar á það hvort ekki sé fyllsta nauðsyn til þess að koma til móts við þetta fólk, einmitt nú, þegar öll framkvæmd 10. greinar laganna um málefni fatlaðra er af- markaðri og þrengri orðin, eins og mestar líkur em á. En Margrét og lesendur allir eru beðnir velvirðingar á þessu. Einnig er sómakonan Vigdís Þjóðbjamardóttir beðin velvirðingar á lítt skiljanlegum villum í ljóðum henn- ar ágætum hér í síðasta blaði. Annars vegar er þetta í Vögguvísum síðasta erindi sem á að vera þannig: Nú legg ég þig í litla rúmið þitt og ljóssins englum fel ég bamið mitt. Og bið þá vaka vöggu þinni hjá og vemda það sem dýrmætast ég á. Smáorðin í byrjun féllu öll niður. Og lokin á hinu fallega kvæði Fossinn: Minn andi hljóður fagnar frelsi þínu og finnur gleði við þinn ljúfa nið. Og máske sól með lífsins ljósi sínu mig leysi úr viðjum eilífðar við frið. Einlæg afsökunarbeiðni á afglöp- um ritstjóra fylgir með. Hann þarf greinilega að vanda sig betur við alla yfirferð. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 15

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.