Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Side 16

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Side 16
Gísli Helgason deildarstjóri: Um 50 ára afmæli Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á íslandi,19. ágúst 1989 Laugardaginn 19. ágúst sl. hélt Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á íslandi upp á hálfrar aidar afmæli sitt, en félagið var stofnað 19. ágúst 1939. Raunar hófst afmælishaldið viku fyrr, en þá kom forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, í opinbera heimsókn til Blindrafélagsins. Þar tóku formaður og framkvæmdastjóri á móti henni ásamt stjórnarmönnum og formaður félagsins bauð hana vel- komna. Þá tók Ásgeir Gunnarsson til máls og bað Vigdísi um að afhenda frummynd gullna þríkrossins for- manni Blindrafélagsins, en þessa frummynd blessuðu þeir Jóhannes Páll páfi annar og herra Pétur Sigur- geirsson biskup íslands á vordögum 1989. Ásgeirteiknaði krossinnogmun Steinþór Sigurðsson gullsmiður sjá um framleiðslu hans. Krossinn skal seldur til styrktar blindum og sjón- skertum á Islandi og til styrktar blind- um í heiminum. Frummyndin skal varðveitt í húsakynnum Blindra- félagsins. Þá gekk Vigdís um húsið, skoðaði fyrst starfsemi Sjónstöðvar Islands og Hljóðbókagerð Blindrafélagsins, þá var henni sýnd starfsemi Blindra- vinnustofunnar og að síðustu heim- sótti hún Blindrabókasafn Islands og var Vigdísi sýnd sú starfsemi sem þar fer fram. Vigdís hreifst mjög af því sem hún sá og ekki spillti veðrið fyrir heim- sókninni, það var eins og best verður á kosið. Aðalhátíðahöldin fóru svo fram á afmælisdaginn, 19. ágúst. Af því til- efni var haldin hátíðarsamkoma við hús félagsins að Hamrahlíð 17. Hófst hún með leik Lúðrasveitar verka- lýðsins sem lék á meðan fólk safnaðist saman. Þá bauð fulltrúi afmælisnefndar Blindrafélagsins, Gísli Helgason, alla velkomna og setti dagskrána. For- maður Blindrafélagsins, Ragnar R. Magnússon flutti hátíðarræðu, þar sem hann stiklaði á stóru úr sögu félagsins, en Blindrafélagið var stofnað m.a. til þess að skapa fleiri atvinnutækifæri fyrir blinda og sjónskerta og vinna að hvers konar hagsmunamálum þeirra. Þá las Torfi Jónsson ljóð eftir tvo blinda menn, þá Skúla Guðjónsson frá Ljótunnarstöðum og Jónas Tryggva- son frá Blönduósi, en þeir eru nú báðir látnir. Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson flutti ávarp og flutt var tónverk eftir ungan sjónskertan mann sem stundar nám í tónsmíðum við TónlistarskólanníReykjavík. Sáheitir Sveinn L. Bjömsson og tónverkið var við ljóð Garðars Baldvinssonar, Imynd konu. Viðar Eggertsson leikari og Halldóra Aradóttir píanóleikari fluttu. Þá söng Karlakór Reykjavíkur nokkur lög undir stjórn Reynis Guðsteinssonar. Þá var lýst kjöri þriggja heið- ursfélaga Blindrafélagsins, þeirra Pálínu Guðlaugsdóttur fyrrum ljósmóður og hjónanna Steinunnar Ögmundsdóttur fyrrum hjúkrunar- konu og Ólafs Pálssonar fyrrum mæl- ingafulltrúa hjá Múrarafélagi Reykja- víkur. Pálína Guðlaugsdóttir var mat- móðir hjá Blindrafélaginu í 14 ár og hætti störfum 87 ára gömul. Sem el 1 i lífeyrisþegi vann hún þetta mikla starf að mestu í sjálfboðavinnu. Hún var móðursystir Rósu Guðmunds- dóttur fyrrum formanns Blindrafé- lagsins og studdi hana sem einstæða móður og m.a. þess vegna gat Rósa notið sín sem sterk forystukona í Hamrahlíð 17 og innan Blindrafélags- ins. Þau hjónin Steinunn og Ólafur hafa tekið mikinn þátt í starfi Blindrafélagsins og styrkt það á marg- an hátt. M.a. var Ólafur um áratugi endurskoðandi félagsins og aðhalds- maður um fjármuni þess. Þá eru þau hjónin hvatamenn að söguritun félagsins. Frá afmælishátíðinni í garðinum. 16

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.