Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Side 24

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Side 24
Helgi Hróðmarsson Félagsstarf á vegum Þroska- • • hjálpar og Oryrkjabandalags Núna er langt liðið á annað ár í framkvæmd hinnar félagslegu fram- kvæmdaáætlunar Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags íslands. Á þessum tíma hafa mörg þörf verkefni skotið upp kollinum. Hér á eftir mun ég skýra frá nokkrum þeirra. KYNNING í GRUNNSKÓLUM I febrúar síðast- liðnum hófust heim- sóknir í grunnskóla borgarinnar með kynningu á málefnum fatlaðra. Sýndur var þáttur um skólamál úr þáttaröðinni HALT- UR RÍÐUR HROSSI og myndir um að- gengi. Auk þess voru samtök fatlaðra kynnt og ýmis verkefni sem þau hafa beitt sér fyrir. Víða kom fram í viðræðum við nem- endur að ekki veitir af kynningu sem þessari. Ætlunin er því í nóvember næstkom- andi að halda áfram þessari yfirreið og heimsækja fleiri skóla. skylda og virðing; almenn aðstoð; sjúkraþjálfun; vinnustellingar og vinnuhagræðing og viðhorf og reynsla neytenda. Auk þess voru almennar umræður þar sem þátttakendur komu fram með athugasemdir og ábend- ingar. Á námskeiðinu kom fram að mánudegi til laugardags. Þátttakendur hittust í Skátahúsinu við Snorrabraut 60 alla morgna kl. 10.00 og voru við leik og störf að hætti skáta fram til kl. 16.00. Farið var í rútu um Reykjanes- svæðið, þar sem laxeldisstöðin Islandslax var skoðuð og að Bláa lóninu þar sem farið var í sund. Reykjavíkurhöfn var skoðuð, rennt fyrir fisk og farið um borð í báta. Farið var til Þingvalla, umhverfið skoðað og siglt um vatnið. Farið var í Viðey og eyjan skoðuð. Þá var farið á hestbak við Laxnes. Gengið var um skíða- svæðið við Hengil og skátaskálinn Dalakot skoðaður. Þá var farið í útilegu í Vífilsbúð við Heiðmörk þar sem kennt var að tjalda, elda mat á eldi og um kvöld- ið var efnt til kvöld- vöku. Leiðbeinendur á námskeiðunum eru allir reyndir skátaforingjar með reynslu í starfi með börnum og unglingum, NÁMSKEIÐ FYRIR LEIÐBEINENDUR 22. júní síðastliðinn var haldið námskeið fyrir leiðbeinendur á námskeiðum og í annarri starfsemi fyr- ir fatlaða. Miðað var við að þátt- takendur hefðu ekki sérstaka menntun á þessu sviði. 36 þátttakendur mættu á námskeiðið víðsvegar að. Þeir fyrir- lestrar sem haldnir voru á námskeiðinu voru: Hvað er fötlun?; flogaveiki og önnur læknisfræðileg atriði; viðhorf og reynsla foreldra; hjálpartæki og hjálpartækjanotkun; frístundir og vinátta; foreldrasamstarf; þagnar- nauðsynlegt væri að halda fleiri svona námskeið á næstu árum og er sjálfsagt að taka tillit til þessara óska. ÆVINTÝRANÁMSKEIÐ Á VEGUM SKÁTA? Eins og fram hefur komið hafa Þroskahjálp og Öryrkjabandalagið hafið samstarf við Bandalag íslenskra skáta um framkvæmd svokallaðra ævintýranámskeiða. Nýlega lauk slíkum námskeiðum sem haldin voru vikurnar 3.-8. júlí og 17.-22. júlí. Alls sóttu námskeiðin 18 þátttakendur. Hvert námskeið stóð í sex daga frá fötluðum sem ófötluðum. Leiðbein- endurvoru: ÓlafurSteinnPálsson, sál- fræðingur, Unnur Á. Kristjánsdóttir, fóstra, Einar Daníelsson og Marianne Thönnen. Þetta samstarf hefur verið ánægjulegt, enda hafa skátarnir unnið mjög gott starf og eiga heiður skilinn fyrir framkvæmd námskeiðanna. Þess má geta, að skátarnir hafa ákveðið að gefa út bækling sem vera á leiðbeining fyrir skáta, sem starfa munu með fötluðum í skátastarfi í framtíðinni. Þetta eykur líkur á að fatlaðir hasli sér völl innan skáta- 24

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.