Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Page 25

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1989, Page 25
v'era hjá Geðhjálp í sumar. Þar má nefna starfrækslu ferðaklúbbs sem skipulagt hefur dagsferðir um nágrennið og veiðiklúbb sem skipu- lagt hefur veiðiferðir. FÉLAGSMÁLASTARF Á NORÐURLANDI Samþykkt hefur verið að veita styrk til félaga fatlaðra á Akureyri og nágrenni vegna félagsmálastarfs á svæðinu. Aðaltengiliður okkar vegna þessa er Baldur Bragason á Akureyri. Áætlað er að byrja þetta starf með haustinu. Hér að ofan hef ég nú nefnt sum af þeim verkefnum sem að undanförnu hafa verið styrkt í gegnum framkvæmd hinnar félagslegu framkvæmdaáætl- unar. Þó eru ótalin mörg baráttumál sem Samvinnunefnd samtakanna hreyfingarinnar, og verði þar með skrefi nær því að lifa eðlilegu lífi. REIÐNÁMSKEIÐ Hafin er starfræksla reiðnám- skeiða að Reykjalundi, Mosfellsbæ, þar sem góð aðstaða og allur útbúnaður er fyrir hendi. Námskeiðin eru miðuð við þarfir og getu fatlaðra og annarra sem þurfa á sérstakri aðstoð að halda. Umsjónarmennirnir, þær Hjördís Bjartmars og Sigurveig Magnúsdóttir, hafa báðar reynslu í reiðþjálfun fatlaðra. Farið er í stutta reiðtúra og leiki, auk þess sem undirstöðuatriði varðandi reiðmennsku og meðferð hestsins eru kennd. Nú hafa verið hald- in 3 námskeið og fleiri verða haldin ef næg þátttaka fæst. LEIKLIST Nýlega var stofnaður leikhópurinn FORMSATRIÐI. I hópnum verða bæði fatlaðir og ófatlaðir. I forsvari fyrir hópinn eru þau Omar Bragi Walderhaug, Málfríður Sigurðardóttir og Sigurður Björnsson. Semja á stutta sjálfstæða leikþætti, 5 til 30 mínútna langa. Efnið verður miðað við að í hverjum leikþætti komi fram áróður eða ádeila varðandi málefni fatlaðra og sjónarmið þeirra. Byrjað er að semja efnið í þættina og með haustinu verður fenginn viðurkenndur leikari eða leik- stjóri til að setja leikþættina upp og stjóma æfingum hópsins. Tilgangur þessa starfs er að kynna almenningi málefni fatlaðra og stöðu þeirra í sam- félaginu. SÖNGSTARF Á VEGUM GEÐHJÁLPAR Forsvarsmenn Geðhjálpar hafa ákveðið að fara af stað með söng- starfsemi. Þjálfa á þátttakendur í söng og ekki síður beina þeim sem áhuga hafa út í aðra almenna kóra, þannig að fólk blandist og taki þátt í starfi úti í þjóðfélaginu. Áætlað er að byrja á þessu í haust þar sem mikið er um að hefur beitt sér fyrir. Fram hefur komið að þörfin fyrir svona starfsemi er mikil. Því er nauðsynlegt að halda áfram í einhverri mynd í von um fjölbreyttara líf fyrir þátttakendur. Nú er ákveðin reynsla komin í farteskið og mikilvægt er að fylgja henni eftir í átt að nýjum verkefnum. Helgi Hróðmarsson, starfsmaður Þroskahjálpar og Orvrkjabandalags. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 25

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.