Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Qupperneq 11
ÞJONUSTUSAMNINGUR
TR VIÐ HRINGSJÁ
1. sept. sl. fór fram formleg
undirritun þjónustusamnings
milli Tryggingastofnunar
ríkisins annars vegar og Hringsjár -
starfsþjálfunar fatlaðra og Öryrkja-
bandalags íslands hins vegar.
Undirritunin fór fram við skemmti-
lega athöfn úti í Hringsjá, Hátúni 10
d. FráTryggingastofnunríkisins voru
þau mætt Karl Steinar Guðnason,
Sigurður Thorlacius og Ingibjörg
Þorsteinsdóttir; frá Hringsjá - starfs-
þjálfun fatlaðra voru mættar Margrét
Margeirsdóttir,Guðrún Hannesdóttir,
Ólöf Ríkarðsdóttir og Marín Björk
Jónasdóttir og svo frá Öryrkja-
bandalagi íslands
Guðríður Ólafsdóttir
og undirritaður.
Þjónustusamning-
ur þessi er hrein við-
bót við annars um-
fangsmikla og árang-
ursríka starfsemi
Hringsjár, til kominn
að frumkvæði Trygg-
ingastofnunar ríkis-
ins og á að þjóna
þeim allra helst er
metnir eru hjá TR á
endurhæfingarlífey ri.
Markmiðið það að
freista þess sem
kostur er að veita
fólki sem besta aðstoð til að komast
út í lífið á ný sem fullgildir þátttak-
endur í starfi eða frekara námi.
Byggt er á þeim þáttum sem þegar
eru svo vel ræktir hjá Hringsjá. Skipt
er niður í þrjú verkefni. Verkefni I:
Starfsendurhæfing, þjálfun og mat,
nær til fjögurra einstaklinga haustið
1999 og 8 einstaklinga árið 2000 sem
geta þá orðið 12 ef um það næst
samkomulag. Verkefni II: Námskeið:
a) tölvunámskeið; b) tölvu- og
bókhaldsnámskeið; c) sjálfstyrking,
atvinnuleit og gerð umsókna.
Verkefni III: Ráðgjöf og faglegur
stuðningur ýmist til nemenda í
starfsþjálfun eða þá á námskeiðum og
svo önnur ráðgjöf og stuðningur skv.
nánara samkomulagi.
Samtals greiðir TR fyrir haustið nú
fram að áramótum rúmlega 1.8
millj. kr. en á árinu 2000 tæplega 7.4
millj. kr. Þegar eru 4 nemendur byrj-
aðir nám í Starfsþjálfun og eitt nám-
skeið verður í haust og svo ráðgjöf til
nemenda, bæði í starfsþjálfun og á
námskeiðum.
Á næsta ári 8 einstaklingar í verk-
efni I, 24 nemendur ( 3 hópar ) í
verkefni II og svo ráðgjöf til viðbótar
fyrir alla þessa nemendur.
Hringsjá skal í lok hverrar annar
skila TR skýrslu um þjónustuna.
Karl Steinar Guðnason forstjóri
TR sagði við athöfnina að þetta væru
viss tímamót hjá TR, þau væru þakk-
lát fyrir þá þjónustu er Hringsjá
þannig veitti, við hana bundnar vonir
góðar. Þau myndu leggja sig fram svo
þetta mætti takast sem best. Markmið
TR að mæta fólki sem til stofnunar-
innar leitaði enn frekar. Gjörði grein
fyrir umbyltingu húsnæðis TR sem
m.a. hefði í för með sér bætt aðgengi
fatlaðra.
Um miðjan október yrði opnað í
nýendurgerðuhúsnæði. Lögðáhersla
á það að hver viðskiptavinur fái hjá
TR persónulegt viðtal með ráðlegg-
ingum, upplýsingum og ráðgjöf.
Þjónustusamningurinn nú stórt skref
í rétta átt.
Margrét Margeirsdóttir fagnaði
þessum atburði og ekki síður því sem
hún hefði vel orðið vör við að TR opni
sem best dyr sínar fyrir þá sem á þurfa
að halda. Aðalatriðið væri að fatlaðir
fengju lifað eðlilegu lífi, þáttur
Hringsjár í því efni afar góður og
hefur skipt sköpum fyrir marga.
Helgi Seljan kvað Hringsjá hafa
skilað einkar góðum árangri
með yfir 70% nemenda sinna út í
starf eða nám. Þjónustusamning-
urinn nú endurspeglaði það verðuga
traust sem Hringsjá nyti. Öryrkja-
bandalagið fagnaði því mjög að fólk
á endurhæfingarlífeyri fengi alla þá
liðveislu sem unnt
væri að veita sér til
sjálfshjálpar.
Guðrún Hannes-
dóttir kvaðst hyggja
hið besta til sam-
starfsins við TR í ljósi
ánægjulegs undan-
fara þessa samnings
nú. Kvað Hringsjá
þegar hafa hafið starf
nú í ágúst samkvæmt
þjónustusamningnum.
Sigurður Thorlacius
tryggingayfirlæknir
sagði þetta fyrsta
þjónustusamninginn
semTRgjörði. Hann
kvað matsteymi sett á stofn í tengslum
viðm.a. þennan samning. Hannhvatti
og til enn frekara samstarfs Trygg-
ingastofnunar og Öryrkjabanda-
lagsins.
Frekari umræður urðu og fögnuðu
allir viðstaddir þessum ágæta áfanga.
Eftir undirritun þáði fólk góðar
veitingar í boði Hringsjár.
Eitt er víst. Því fleiri sem þjónustu
Hringsjár fá notið, þeim mun fleiri
fara út í lífið á ný með haldgott vega-
nesti til átaka við ný störf eða frekara
nám.
Hún Marín Björk tók svo myndir
þær er fylgja.
Heillaóskir hlýjar eru héðan af
vettvangi sendar.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
11