Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Blaðsíða 12
Helgi Hróðmarsson fulltrúi:
Lokaverkefni Valerie Harris
VIÐHORF UPPKOMINNA BARNA TIL SJÁLFSTÆÐIS OG
FORRÆÐISHYGGJU GAGNVART UMÖNNUN ALDRAÐRA
Á STÓR-REYKJAVÍKURSVÆÐINU
FLORIDAINTERNATIONAL UNIVERSITY
Miami, Fiorida
ATTITUDES OF ADULT CHILD CAREGIVERS FROM THE
GREATER REYKJAVIK AREA OFICELAND TOWARD AUTONOMY
AND PATERNALISMIN RELATION TO CARE OF THE ELDERLY
A thcsis in partiai satisfaction of the
requirements for the degree of
MASTER OF SCIENCE
IN
OCCUPATIONAL THERAPY
by
Valerie Jacqueiine Harris
1998
Forsíða ritgerðarinnar.
Ein þeirra sem hafa unnið gott
og farsælt starf í þágu fólks
sem er fatlað á íslandi er
Valerie Harris iðjuþjálfi. Á þeim
vettvangi hefur hún starfað um
nokkurra ára
skeið í Sjálfs-
bjargarheimil-
inu. Þar hefur
hún reynst góður
starfsmaður, vin-
sæl af skjólstæð-
ingum og sam-
starfsfólki. Hún
er ein þeirra sem
vinnur störf sín af
einstakri ræktar-
semi og nákvæmni, auk þess sem hún
hefur til að bera næman skilning á
aðstæðum fólks sem þarfnast sérstakr-
ar aðstoðar.
Eftir að hafa starfað í nokkur ár á
Sjálfsbjargarheimilinu hóf Valerie
master-nám við Florida International
University og lauk hún því 1998. í
lokaverkefni sínu fjallar hún um við-
horf uppkominna barna til umönnunar
aldraðra foreldra sinna. í upphafi rit-
gerðarinnar, þakkar Valerie þeim sem
styrktu hana til þess að verkið gæti
unnist á sem bestan hátt. Það lýsir
Valerie vel þegar hún m.a. þakkar for-
eldrum sínum fyrir að hafa alla tíð
hvatt sig til náms. Hún þakkar föður
sínum fyrir að vekja forvitni hennar
m.a. með heimsóknum á náttúruvís-
indasöfn. Móður sinni þakkar hún
fyrir stuðning og hvatningu. Mann-
eskja með slíkan bakgrunn er vel til
þess fallin að fjalla um umönnun sinna
nánustu, eins og glögglega kemur í
ljós í lokaritgerð hennar.
✓
Irannsókninni kemur fram að sífellt
eykst hlutfall aldraðra samanborið
við aðra aldurshópa - sem leiðir af sér
auknaþjónustuþörf. Á Islandi kemur
þetta m.a. fram í stöðugt meiri eftir-
spurn eftir heimilishjálp. Aukinn
fjöldi aldraðra á íslandi, mikil þörf
fyrir sjálfstæði þeirra og væntingar
um að fjölskyldur eigi að sjá fyrir
hinum öldruðu er staðreynd. Á sama
tíma er aðstoð frá samfélaginu s.s.
menntun og þjónusta við aðstand-
endur ófullnægjandi. Þetta gerir það
að verkum að það er mjög mikilvægt
að kanna frammistöðu og viðhorf
aðstandendanna.
Þátttakendur í rannsókn Valerie
voru 31, uppkomin börn aldraðra
foreldra. Þátttakendur voru spurðir
um fjölda atriða varðandi samband
þeirra við foreldra sína. Fram kom
að allir þátttakendur veittu foreldrum
sínum einhverja aðstoð, meirihluti
þátttakendanna tvisvar til þrisvar í
viku. Þá mæltu þátttakendur mun
fremur með sjálfstæði foreldranna en
mikilli íhlutun í þeirra hagi. Þessi
skoðun reyndist almennari í könnun
Valerie heldur en í sambærilegri
bandarískri rannsókn. Þar að auki er
stefnan á fslandi, eins og reyndar yfir-
leitt annars staðar í hinum vestræna
heimi, að leitast við að gera öldruðum
kleift að búa á heimilum sínum eins
lengi og mögulegt er. Enda býr meiri-
hluti Islendinga 65 ára og eldri í sjálf-
stæðri búsetu.
Að lifa sjálfstæðu lífi og að vera
12