Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Side 16
Halldór Baldursson og Haraldur Jóhannsson
tryggingalæknar:
NYR STAÐALL FYRIR
ÖRORKUMAT Á ÍSLANDI
Með breytingu á lögum um
almannatryggingar sem
samþykkt var ll.mars
1999 (lög nr. 62/1999 um breytingar
á lögum um almannatryggingar nr.
117/1993 með
síðari breyting-
um) breytist
grundvöllur
örorkumats frá
1. september
1999, þannig að
ekki verður leng-
ur tekið tillit til
tekna eða annarra
félagslegra þátta.
Stefnt er að því að
örorkumat verði
samræmdara en
áður og betur
s k i 1 j a n 1 e g t
almenningi. í
samræmi við lög-
in hefur lækna-
deild Trygginga-
stofnunar ríkisins
(TR) útbúið stað-
al, sem tryggingaráð hefur staðfest.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra birtir staðalinn í reglugerð.
Staðallinn byggist á breskri fyrir-
mynd (All work test). Þar er litið til
þátta sem segja til um vinnufæmi til
almennra starfa.
Þegar umsókn um örorkulífeyri og
fullnægjandi læknisvottorð hefur
borist læknadeild TR verður umsækj-
anda að jafnaði sendur spurningalisti
sem hann svarar og sendir aftur til
læknadeildar. Þar er umsækjandi
beðinn að lýsa líkamlegri færni sinni
og geðrænum vandamálum, ef ein-
hver eru. Spurningarnar samsvara
nokkurn veginn fyrri hluta staðalsins
(sjá aftar). Listi þessi er hluti af gögn-
um til örorkumats. Auk þess að svara
spurningum og merkja við valkosti
getur umsækjandi lýst heilsuvanda
sínum og færniskerðingu með eigin
orðum. Staðallinn og spumingalistinn
verða aðgengilegir á veffangi http://
www.tr.is, heimasíðu TR. Þeir, sem
að mati tryggingalæknis fá tilskilinn
stigafjölda samkvæmt staðlinum,
teljast að minnsta kosti 75% öryrkjar.
Ef með þarf er umsækjandi kallaður
til viðtals og læknisskoðunar áður en
örorkumati er lokið.
Fyrri hluti staðalsins fjallar um
líkamlega færni og þarf að fá 15
stig samanlagt til að teljast að minnsta
kosti 75% öryrki. í þeim hluta eru 14
þættir: að ganga ájafnsléttu, að ganga
í stiga, að sitja í stól, að standa, að
rísa á fætur, að beygja sig og krjúpa,
að nota hendurnar, að lyfta og bera,
að teygja sig, tal, heyrn, sjón, stjórn á
hægðum og þvagi og endurtekinn
meðvitundarmissir. I hverjum þætti
eru nokkur atriði, þar sem lýst er mis-
mikilli fæmiskerðingu. Gefin eru stig
fyrir eitt atriði í hverjum þætti og þau
síðan lögð saman. Þó eru ekki gefin
stig bæði fyrir þættina “að ganga á
jafnsléttu” og “að ganga í stiga”,
heldur er valinn sá þáttur sem gefur
fleiri stig.
Síðari hluti staðalsins lýtur að
andlegri fæmi. Um er að ræða fjóra
þætti: að ljúka verkefnum, daglegt líf,
álagsþol og samskipti við aðra. Þar
leggjast öll stig saman og þarf 10 stig
til að teljast að minnsta kosti 75%
öryrki. Stig fyrir andlega færniskerð-
ingu jafngildir 1.5 stigi fyrir líkamlega
færniskerðingu.
Nái umsækjandi ekki tilskildum
stigafjölda í öðrum hluta staðalsins,
getur hann samt verið metinn að
minnsta kosti 75% öryrki, nái hann
að minnsta kosti sex stigum í hvomm
hluta staðalsins.
Heimilt er að meta umsækjanda
að minnsta kosti 75% öryrkja án
þess að nota staðalinn, ef trygginga-
læknir telur sýnt af læknisvottorði eða
öðrum gögnum, sem kunna að vera
tiltæk í TR, að umsækjandi verði lengi
ófær til almennra starfa vegna líkam-
legrar eða andlegrar skerðingar.
Heimilt er að meta umsækjanda að
minnsta kosti 75% öryrkja, þótt hann
nái ekki tilskildum stigafjölda sam-
kvæmt staðlinum, ef tryggingalæknir
telur að veruleg og langvinn versnun
færni sé fyrirsjáanleg.
Halldór Baldursson
Haraldur Jóhannsson
Birt með leyfi Læknablaðsins.
Halldór
Baldursson
Haraldur
Jóhannsson
Hlerað í hornum
Oft eru orðatiltæki rangt notuð eða
ranglega með þau farið. Ekki eru
stafsetningarvillur betri samanber
feitletraða setningu í dagblaði einu.
Saman getum við birgt stóran brunn.
***
Eldri maður var í skoðun hjá
lækninum sínum sem fann ekkert
athugavertviðhann. Þegar hann hafði
fengið þennan úrskurð spurði hann
lækninn í mikilli einlægni: “Geturðu
nú a.m.k. ekki sett höndina á mér í
fatla svo ég losni við að vaska upp.”
Hjónin voru að fara yfir straumharða
á rétt fyrir ofan háan foss, stikluðu þar
á steinum, maðurinn á undan. Hann
snéri sér við á hinum bakkanum og
hrópaði til konu sinnar: “Gættu þín
Helena, gáðu að því að bakpokinn
okkar er spánnýr.”
Sonur Gísla Helgasonar, sex ára
gamall, leit á móður sína sem er rétt
rúmlega fertug og spurði afar
sakleysislega: “Mamma, þegar ég er
orðinn stór, verður þú þá kerling?”
16