Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Blaðsíða 26
VIÐHORF
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Norræna ráðsins
um málefni fatlaðra (NHR) skrifar:
NORRÆNT SAMSTARF
UM MÁLEFNI ÖRYRKJA
Inngangsorð:
að er mér sönn ánægja að
verða við tilmælum ritstjóra
Fréttabréfs Öryrkjabanda-
lagsins og skrifa viðhorfsgrein í
blaðið. Ég er einn af tryggum les-
endum og aðdá-
endunt blaðsins,
bæði sökum þess
að það er nauð-
synleg lesning
öllum þeim sem
vilja fylgjast með
umræðum um
málefni öryrkja
hér á landi og því
sem helst er að
gerast á því sviði.
Hitt spillir ekki fyrir að í bland við
alvöruna er lætt léttara efni sem lífgar
upp á hversdagsleikann.
Ritstjóranum er ég að góðu kunnur
og met mikils hans eljusemi og
ódrepandi dugnað í baráttunni fyrir þá
sem eiga undir högg að sækja. Fárra
manna bónum neita ég síður en Helga
Seljan.
í þessu greinarkomi verður leitast
við að gera nokkra grein fyrir norrænu
samstarfi á sviði málefna fatlaðra og
þá einkum og sér í lagi þeim hluta þess
sem höfundur tengist um þessar
mundir þ.e.a.s. Norræna ráðinu um
málefni fatlaðra (NHR). NHR stendur
fyrir “Nordiska handikappolitiska
rádet” og verður nánar að því vikið
hér á eftir. I lokin fylgja hugleiðingar
á almennari nótum.
Almennt um norrænt samstarf
að málefnum fatlaðra
Norræn samvinna á sviði málefna
fatlaðra á sér langa sögu og eru margir
aðrir betur til þess færir en ég að rekja
hana. Um langt árabil hefur verið um
skipulagt samstarf og nána samvinnu
að ræða á milli samtaka öryrkja á
Norðurlöndum og einnig á milli
stjórnvalda; ráðuneyta og fram-
kvæmdavalds á þessu sviði. Höfuð-
stofnanimar núna eru Norræna sam-
starfsstofnunin um málefni fatlaðra
NSH, svo áfram sé notast við sænsk-
una, sem stendur fyrir “Nordiska
samarbetsorganet för handikapp-
frágor”. Stofnunin heyrir undir
Norræna ráðherraráðið, félagsmála-
ráðherrana og ber ábyrgð á fram-
kvæmd margskonar samstarfsverk-
efna og áætlana í litrófi norrænnar
samvinnu á þessu sviði. Stjóm stofn-
unarinnar samanstendur af einum
fulltrúa frá hverju Norðurlandanna
fimm, auk þess sem sjálfstjórnar-
svæðin þ.e. Færeyjar, Grænland og
Álandseyjar eiga áheyrnaraðild. Hin
meginstofnunin eða aðilinn í norrænu
samstarfi um málefni fatlaðra af hálfu
hins opinbera er svo áðurnefnt
Norrænt ráð um málefni fatlaðra
(NHR).
Norræna ráðið um málefni
fatlaðra:
Fagleg og pólitísk blanda
Norræna ráðið um málefni fatlaðra
var stofnað á fundi í Helsingfors 13.
nóvember 1997 og þar voru lagðar
línur um starfsemi ráðsins. Samsetn-
ing ráðsins er nokkuð óvenjuleg og
má í reynd segja að um ákveðna til-
raun í norrænni samvinnu sé að ræða.
Ráðið samanstendur af 19 fulltrúum,
fimm stjómmálamenn, einn frá hverju
landi, em fulltrúar pólitíska sviðsins
og em þeir valdir úr hópi þingmanna
eða fulltrúa í Norðurlandaráði. Um
leið og aðild allra Norðurlandanna er
þannig tryggð er reynt að gæta póli-
tísks jafnvægis í gegnum samsetningu
fulltrúanna. Fimm eru fulltrúar sam-
taka öryrkja eða öryrkjabandalag-
anna, fimm eru fulltrúar jafnmargra
meginsviða samfélagsins eða þjóð-
lífsins þ.e.a.s. fulltrúi fyrir húsnæðis-
málasvið og byggingar, fulltrúi fyrir
samgöngur og flutninga, fulltrúi úr
menningargeiranum, fulltrúi af sviði
rannsókna og menntunar og fulltrúi
sem kemur af sviði vinnumark-
aðsmála. Þá em þrír fulltrúar, einn frá
hverju heimastjómarsvæði: Færeyj-
um, Grænlandi og Álandseyjum.
Loks er svo einn fulltrúi tengiliður
ráðsins við norrænu stofnunina um
málefni fatlaðra, stjórnarformaður
NSH á hverjum tíma.
Þessi óvenjulega samsetning er
eins og áður sagði tilraun til þess að
leiða saman á einum vettvangi
stjórnmálamenn, fulltrúar samtaka
öryrkja, fulltrúar úr stjómsýslunni eða
frá framkvæmdavaldinu sem fer með
málin á einstökum sviðum sbr. það
sem áður var upp talið. Loks fulltrúa
sjálfsstjórnarsvæðanna og tengiliði
yfir í hina norrænu stofnun á þessu
sviði.
Meginverkefni ráðsins eins og það
er skilgreint í starfsgrundvelli þess er
að vera stefnumarkandi og ráðgefandi
samstarfsvettvangur sem vinnur í
þágu ráðherraráðsins og allra sam-
starfsverkefna og stofnana sem þess-
um málum tengjast. Ráðið á að ýta
undir og hvetja til norrænnar sam-
vinnu almennt á þessu sviði og alls
staðar þar sem hlutir ráðast sem hafa
áhrif á stöðu fatlaðra í samfélaginu.
✓
Utgangspunktur í vinnu ráðsins er
ábyrgð allra í anda þeirrar
hugsunar að inn í ákvarðanatöku á
öllum sviðum þjóðlífsins þarf að flétta
meðvituð, jákvæð viðhorf og vilja
26