Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Blaðsíða 35
GIGTLÆKNINGASTÖÐ
G.í. 15 ÁRA
Á myndinni frá vinstri eru Sólveig Eggerz Pétursdóttir, Jóhanna Magnús-
dóttir, Gísli Loftsson fyrir hönd móður sinnar Sigríðar Gísladóttur, Guðjón
Hólm, Anna Olöf Sveinbjörnsdóttir og Sveinn Indriðason fyrir hönd
Önnu Stígsdóttur
Laugardaginn 5.júní var til
góðs fagnaðar boðið af
Gigtarfélagi íslands í tilefni
af því að 15 ár voru liðin frá því gigt-
lækningastöð félagsins tók til starfa.
Stöðin er að sjálfsögðu til húsa í
húsnæði Gigtarfélagsins að Ármúla 5
í Reykjavík. Emil Thóroddsen,
framkvæmdastjóri Gigtarfélags
Islands stjómaði stuttri en markvissri
athöfn. Einar S. Ingólfsson, formaður
Gigtarfélagsins flutti stutta ræðu, gat
um starfsemi stöðvarinnar sem svo
mörgum hefði geysivel gagnast.
Ritstjóri átti því láni að fagna á sinni
tíð að mega, þó í litlu væri, liðsinna
Gigtarfélagi íslands á sokkabands-
árum þess og man vel þá bjartsýni og
þann baráttuanda sem einkenndi
forystuna og hvoru tveggja ekki látið
að sér hæða á ferli félagsins. Þar er
óhætt að segja að gigtlækningastöðin
sé af mörgu markverðust og um leið
skilað hvað mestum árangri. Það er
nefnilega rétt hjá þeim gigtarfélags-
mönnum að þessi “bara” gigt eins og
oft er sagt er ekki lamb að leika sér
við og um leið má ýmsu til kosta að
fá haldið henni í skefjum og lagfært
það sem unnt er til heilsu- og ham-
ingjuauka fyrir viðkomandi. Einar
formaður minnti á starf félagsins og
árangur ágætan.
6félögum veitti félagið verðuga
viðurkenningu, fagran grip en þau
voru: Anna Ólöf Sveinbjarnardóttir,
yfiriðjuþjálfi stöðvarinnar; Anna
Stígsdóttir sem vann á skrifstofunni
frá byrjun, þar til hún lét af störfum
vegna aldurs; Guðjón Hólm Sig-
valdason, sem var fyrsti formaður
félagsins; Jóhanna Magnúsdóttir,
lengi í stjórn félagsins og stjórnar-
formaður Þorbjargarsjóðs, sem er
styrktarsjóður; Sigríður Gísladóttir
sjúkraþjálfari (ein sú fyrsta hér á
landi), sat lengi í stjóm og rekstrar-
stjóm stöðvarinnar og Sólveig Péturs-
dóttir Eggerz sem stutt hefur félagið
með ráðum og dáð og m.a. gefið
félaginu myndir fagrar á jólakort sín
allt frá árinu 1991.
Einar gat um hinn góða þátt þeirra
allra í framgangi félags og stöðvar.
Með stuttum en snjöllum ávörpum
þökkuðu þau fyrir hönd viðurkenn-
ingarhafa Guðjón Hólm Sigvaldason
og Sólveig Pétursdóttir Eggerz, en
Guðjón Hólm gaf félaginu einmitt
félagsfánann. Ágætar veitingar voru
svo á boðstólum. I stuttu spjalli við
Emil framkvæmdastjóra kom fram að
sami framkvæmdastjórinn er bæði hjá
félaginu svo og gigtlækningastöðinni.
Júlíus Valsson og Magnús Guð-
mundsson eru læknar stöðvarinnar,
yfirsjúkraþjálfari Unnur Pétursdóttir,
yfiriðjuþjálfi Anna Ólöf Sveinbjarn-
ardóttir s.s. áður hefur komið fram og
í hópþjálfuninni er Margrét Gunnars-
dóttir yfirsjúkraþjálfari.
Öryrkjabandalag Islands árnar
félagi sínu og þar með Gigtlækn-
ingastöð G.í. alls hins besta í bráð og
lengd.
Ekki fer mála á milli hve nauðsyn-
leg stöðin er gigtsjúklingum, þáttur
hennar ríkulegur í því að reka “bara”
gigtina á flótta. Heill ykkur með árin
fimmtán.
H.S.
Bjöm G. Eiríksson sérkennari:
Sólarlagsljóð
Það var hérna úti við himna sæinn,
hingað að rölti ég nú um daginn.
Fjöllin há sinn bláa litinn bera
burtu draga hug og fögnuð gera.
Seinna hníga sólin mun í æginn,
signa, lýsa, gylla allan bæinn.
Eftir ferli, ös og þunga dagsins
yndi er að njóta sólarlagsins.
B . G. E .
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
35