Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Page 46
Forseti íslands heilsar upp á glaða gesti.
Fjórum áratugum fagnað
Sjálfsbjörg - landssamband fatlaðra
fagnaði 4. júní sl. 40 ára afmæli
sambandsins og af því tilefni var opið
hús hjá Sjálfsbjörg þennan dag, þar
sem menn gátu kynnt sér starfsemina
og notið um leið góðra veitinga, sem
fram voru bornar af þeirri ríku rausn
sem Sjálfsbjörg er svo kunn fyrir.
Aðalmóttakan fór fram á annarri
hæðinni í matsalnum svo og í veg-
legum tjaldbúðum sem yfir svölum
íbúðarálmu var komið fyrir. Gestir
gátu svo skoðað endurhæfingaríbúð-
ina, dagvistina, salarkynni Sjálfs-
bjargar, bæði landssambands sem á
höfuðborgarsvæðinu, gátu farið upp
á hæðir einnig og yfirleitt skoðað það
sem hugurinn helst girntist, og vel að
merkja er það ekkert smáræði.
A fyrstu hæðinni glöddu augu
manna vönduð og vel unnin málverk
eftir einn heimilismanna Sjálfsbjargar,
Þorkel Grímsson og staldraði margur
við að skoða þessa bráðskemmtilegu
og fallegu sýningu. Hvorki meira né
minna en á sjötta hundrað manns
mættu til að samfagna Sjálfsbjörg
með áfangann.
Forseti Islands, Ólafur Ragnar
Grímsson, heiðraði Sjálfsbjörg
með nærveru sinni, skyggndist um
sem aðrir og Arnór Pétursson, for-
maður Sjálfsbjargar, mælti nokkur
afmælisorð um leið og hann bað for-
setann að skera fyrstu sneiðina af
veglegri afmælistertu.
Lúðrasveit Tónlistarskóla Garða-
bæjar lék listilega fyrir gesti og ekki
síðri var söngur kvennanna úr
Kvennakór Reykjavíkur, hvoru
tveggja sannkallað eyrnayndi. Það
var sannarlega vorstemming bæði úti
og ekki síður inni, veðrið brosti sem
blíðast og vermandi voru allar
móttökur innan dyra og hátíð í bæ hin
besta.
Öryrkjabandalag íslands sendir
þessu stofnfélagi sínu hlýjar heilla-
óskir og ekki mun þurfa að minna
Sjálfsbjargarfólk á baráttuna áfram
fyrir bættum hag fatlaðra, sem við
skulum heyja saman, samtaka og
sigurviss.
A tímamótum sem þessum er ekki
síður hollt að horfa til ávinninga allra
sem staðfestingu þess að vökul barátta
fær svo mörgu skilað heilu í höfn. Svo
mun áfram verða og kjaramálin þar
brýnust til sem bestra átaka.
Heillaóskum fylgir svo þessi staka
staka:
Á sóknarleið var sigri mörgum náð,
þeim sannindum er leiðin bjarta vörðuð.
Þið beittuð upp í vind af dug og dáð
og drauma marga að veruleika gjörðuð.
H.S.
Hrafn
Sæmundsson
fulltrúi:
Tvö Ijóð
Gömul minning
Ég mundi það rétt.
Að orðin voru lítil og opin.
Tær fjallalækur.
Ég sé milli línanna.
Leitina.
Innar - Innar.
Þar til orðið stendur
nakið.
Og hvergi skjól.
Þá breytist allt.
Snerting lítilla orða
breytist í foss.
Skjálfandi hendurflæða
úr tímanum.
Það nálgast í Ijóðinu.
Þegar orðin hverfa.
Þegar þögnin hvolfist yfir.
Að lokum.
Andvaka
Nóttin breiðist yfir fjallið í
næturhúminu og
teygir svarta slæðu á
brúna hlíðina
eins og tískukjól yfir Ijósar
axlir fjallsins.
Nóttin er kyrr þegar
næturdöggin þornar
við sólarupprás og fjallið
stendur
grænt og nakið og heilsar
heitum degi.
Hrafn Sæmundsson.
46