Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1999, Qupperneq 47
MANNRÉTTINDA-
SKRIFSTOFA ÍSLANDS
Góði hirðirinn
Hvað er það
nú?
Hinn 2. sept. sl. var boðið til
kynningar á starfsemi Góða
hirðisins, sem áður hét Nytjamark-
aðurinn og er og hefur verið til húsa á
jarðhæðinni í Sjálfsbjargarhúsinu,
Hátúni 12. Kynningin var haldin
annars vegar í tilefni af nýju nafni og
um leið breyttum áherslum. Góði
hirðirinn er nafnið á nytjamarkaði
Sorpu og líknarfélaga og eins og
ritstjóri hefur komist að raun um þá
kennir þar margra góðra grasa og unnt
að gjöra í ýmsu hin ágætustu kaup á
notuðum en velmeðförnum hlutum.
Ogmundur Einarsson forstjóri Sorpu
rakti tilurðina, upphafið með ýmsum
aðilum í hjálparstarfi s.s. Rauða krossi
Islands, Mæðrastyrksnefnd, Hjálpar-
starfi kirkjunnar og Hjálpræðishern-
um og umsjónin hjá Reykjavíkurdeild
Rauða kross íslands allt til 1997 að
Sorpa tók hér við og í Hátún 12 var
flutt fyrri hluta árs 1998.
Viðbótarhúsnæði hefði fengist nú,
en þegar kynningin fór fram var allt
troðfullt af alls kyns húsbúnaði,
sannarlega nytjahlutum, ótrúlega
ásjálegum þegar litið er til þess að
þeim átti annars að fleygja. Ögmund-
ur kvað nafnið eiga að fela í sér
ákveðin skilaboð til samfélagsins,
markmiðið það að láta gott af sér
leiða. Hlutirnir fengju nýtt hlutverk,
þeir væru seldir á vægu verði og frá
nytjamarkaðnum færa margir ánægðir
viðskiptavinir.
Ögmundur sagði að lokum að
ákveðið hefði verið að styrkja þjón-
ustusetrið að Tryggvagötu 26 þar sem
sex aðildarfélög ÖBÍ hafa aðsetur s.s.
kunnugt er. Styrkupphæðin 600 þús.
kr. var svo afhent fulltrúa þjónustuset-
ursins, Jóni Snævarri Guðnasyni
framkvæmdastjóra, sem þakkaði fyrir
hönd félaganna þetta rausnarlega
framlag.
A boðstólum vora veitingar sem
við gæddum okkur á. Margt manna
var þarna samankomið og fagnaði
þessum áfanga.
Von okkar sú að Góði hirðirinn fái
sem best staðið undir stóru nafni.
H.S.
Aðalfundur Mannréttindaskrif-
stofu íslands var haldinn
hinn 31. maí sl. að Litlu - Brekku í
Reykjavík. Eins og lesendum ætti að
vera kunnugt þá fékk Öryrkjabanda-
lag íslands aðild að Mannréttinda-
skrifstofunni á sl. ári og fulltrúi þess í
stjóm er Haukur Þórðarson, formaður
ÖBÍ.
Rétt til glöggvunar þá eiga þessi
samtök aðild að Mannréttindaskrif-
stofu íslands:
íslandsdeild Amnesty Interna-
tional. Barnaheill, Biskupsstofa,
Hjálparstofnun kirkjunnar, Jafnrétt-
isráð, Kvenréttindafélag Islands,
Rauði kross íslands, UNIFEM á
íslandi, Þroskahjálp og svo Öryrkja-
bandalagið.
Á aðalfundinum flutti Ragnar
Aðalsteinsson hrl. formaður stjómar
skrifstofunnar glöggt yfirlit yfir starf-
semi sl. árs. Húsnæðismál hafa
úrlausn fengið en aðsetrið nú er að
Laugavegi 7.
Umsagnir um tvenn lagafrumvörp
höfðu verið sendar þ.e. frv. til laga um
gagnagrann á heilbrigðissviði og drög
að frv. til laga um útlendinga.
Tvenn rit höfðu verið gefin út í rit-
röð - þriðja og fjórða - um alþjóðlegan
refsirétt og þjóðréttarlega stöðu
Austur - Tímor.
Málstofur voru um efnin: “Að
segja það sem ekki má -
kynþáttamisrétti á íslandi” og “Er
Island í hópi leiðtoga eða leiðitamra í
alþjóðlegu mannréttindastarfi?”.
50 ára afmælis Mannréttindayfir-
lýsingar Sameinuðu þjóðanna var
myndarlega minnst í Ráðhúsinu.
Erlent samstarf þ.á.rn. norrænt all-
mikið s.s. heimsóknir erlendra gesta
hingað. Mannréttindaskrifstofan tók
nt.a. þátt í könnun Evrópuráðsins um
stöðu mannréttindamenntunar í aðild-
arlöndum ráðsins, en niðurstöður
þegar birtar.
Meðal verkefna mætra sendi
Mannréttindaskrifstofan skýrslu til
eftirlitsnefndar S.Þ með athuga-
semdum við skýrslu íslensku
ríkisstjórnarinnar um framfylgni við
samninginn um efnahagsleg, félags-
leg og menningarleg réttindi. Fleira
verður ekki tíundað hér, aðeins er
undirstrikuð hér þýðing þess að
Öryrkjabandalag Islands eigi þarna
aðild og geti fylgst með á fjölmörgum
þeim sviðum sem mannréttindi í
orðsins fyllstu merkingu setja mark
sitt á.
Stjórn Mannréttindaskrifstofu
Islands skipa nú: Formaður: Ragnar
Aðalsteinsson; varaformaður:
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir; gjaldkeri:
Kristín Jónasdóttir.
Starfsmaður skrifstofunnar er
Bjarney Friðriksdóttir.
H.S.
Sönn vísa eða hvað?
Þessari vel gjörðu stöku var laumað að ritstjóra á sumardegi sólskins
og hlýju. Hvort sönn sé verða lesendur um að dæma en vísan mun vera
svar Hreiðars Karlssonar fyrrum kaupfélagsstjóra við spurningunni um
það hvort hagyrðingar væra gáfaðri en aðrir menn. Hreiðar sjálfur
hinn ágætasti hagyrðingur og því bærilega marktækur eða hvað ?
Þeirra vit er víða talið
vera meira en annars sést.
Hagyrðingar hafa falið
heimsku sína manna best.
H.K.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJAB ANDALAGSINS
47