Spássían - 2013, Qupperneq 24

Spássían - 2013, Qupperneq 24
24 vel, auk þess að styðja tímabilstilfinninguna), hér er ekkert vídeó, hljóðmynd ekki uppáþrengjandi, leikmynd sáraeinföld og fyrst og fremst þjónandi. Hér er kominn hópur leikara að segja sögu og leggja út af henni. Ég er búinn að nefna Birnu, og svo mæðir mikið á hennar helstu mótleikurum, Árna Pétri Guðjónssyni og Friðrik Friðrikssyni sem gera löggunum sínum mjög sannfærandi skil. Fyrir minn smekk hefði rúnar kannski mátt setjast aðeins fastar ofan á „deklamasjóns-tilhneigingar“ Arnars Jónssonar í hlutverki þýska eftirlaunaspæjarans – en á móti kom vissulega sú ánægja að heyra hann leika á hristurnar.  Í öðru lagi liggur galdurinn í handritinu, og því að þar er líka leikið meðvitað með ólíkan stíl. yfirheyrslusenurnar rosalegu, þar sem engu er líkara en verið sé að skrúfa tungumálið í sundur til að fá þá niðurstöðu sem þarf, eru óhugsandi án absúrdleikhússins. Sviðsetningarsenurnar þar sem stílsmáti kvikmyndahandrita kallast á við kaldhömruð tilsvör í hreinum Íslendingasagnastíl. Innskot blaðamannsins, hans Stefáns Halls, sem í hreinum raunsæisstíl virka eins og þau séu samin á staðnum. Meira að segja afbyggingartilraunir Anthony Burgess fá að vera með. reyndar þykir mér handrit þeirra rúnars, Stefáns, Sjóns og hópsins með betri íslenskum leikritum sem ég hef séð um nokkra hríð.  Og síðast en ekki síst er öllum þessum brögðum beitt af nákvæmni og áreynsluleysi – það er galdurinn. Þetta er einfaldlega alveg ógurlega vel gert. Höfundum og hópi er mikið niðri fyrir, og það skilar sér, en ástríðan tekur aldrei völdin.  „Þú ferð ekki héðan fyrr en þú manst þetta“ segir annar lögregluböðlanna við Guðrúnu. Þar er þessi setning kjarninn í martröðinni sem réttvísisvélin tilreiðir fórnarlömbum sínum. En kannski má snúa henni við og beina henni að okkur. Við losnum ekki við þetta mál fyrr en við skiljum hvað gerðist og lærum af því. Hráslagaleg og hrollvekjandi saga Eftir Helgu Birgisdóttur yrsa Sigurðardóttir. Kuldi. Veröld. 2012. Í KuLDA heldur yrsa Sigurðardóttir áfram að leika sér með draugagang og myrkfælni, líkt og hún gerir í bókinni Ég man þig (2010). Hér spila saman nútíð og fortíð, líf og dauði og svo gæska og mannvonska. Annars vegar birtist heimurinn eins og við þekkjum hann og skiljum og hins vegar drauga- gangur eða yfirnáttúrulegir hlutir. útkoman er kuldaleg, hráslagaleg og hrollvekjandi saga en það eru ekki endilega draugarnir sem fá lesandann til að súpa hveljur heldur gjörðir ósköp venjulegs fólks.  Í Kulda fer fram tveimur megin- sögum sem fléttast saman í lokin. Fyrst er það saga Óðins sem starfar hjá opinberri eftirlitsstofnun og er fenginn til að rannsaka starfsemi upptökuheimilis fyrir unglinga á áttunda áratug síðustu aldar, en fyrri rannsakandi lést stuttu áður en sagan hefst. rannsóknin reynir á Óðin en hann hefur líka nóg að hugsa um heima. Hálfu ári áður en atburðirnir sem sagan greinir frá eiga sér stað hafði barnsmóðir hans, Lára, látist með sviplegum hætti og við það snerist tilvera Óðins í heilan hring, að minnsta kosti. Í stað þess að vera skemmtilegur helgarpabbi er hann nú orðinn einstæður faðir einrænnar stúlku sem bersýnilega líður ekki vel.  Hin aðalsagan gerist á upptöku- heimilinu, á því tímabili sem rannsókn Óðins tekur til. Aldís, ung og ansi óheppin stúlka, hefur ráðið sig þar til vinnu eftir að hafa lent saman við móður sína og rokið að heiman. Hún afræður að láta sig hafa leiðinlegt umhverfi, fúla yfirmenn og þreytandi starfsmenn svo lengi sem bankainnistæðan hækkar um hver mánaðamót, en hún á sér þann draum að leigja herbergi í reykjavík og gerast flugfreyja. Dauði tveggja ungra pilta á heimilinu tengir saman sögu Aldísar og Óðins sem reynast eiga ýmislegt fleira sameiginlegt. Fráfall barnsmóður Óðins er líka óuppgert og inn í þetta fléttast magnaður draugagangur og meira og minna tengist allt börnum, ýmist dánum eða lifandi, saklausum og sekum.  yrsu tekst mun betur upp með Kulda en síðustu draugasögu sína, Ég man þig, bæði hvað varðar sviðsetningu og persónusköpun auk þess sem Kuldi er hreinlega betur skrifuð. Þræðirnir koma saman, hver á fætur öðrum, eftir því sem líður á söguna; sumt fer eins og maður bjóst við en annað ekki. Örlög sumra persóna eru verðskulduð, aðrar eiga eitthvað annað, og kannski betra skilið og það er ekki laust við að lesandinn sitji eftir með svolítinn hroll og jafnvel óbragð í munninum – en ætli Kulda sé ekki einmitt ætlað að vera þannig saga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.