Spássían - 2013, Side 33
33
Í febrúar 2013 gaf norski höfundurinn Jostein Gaarder
út bók sem bar titilinn Anna. Fabúla um loftslag og
umhverfi jarðar. Gaarder er heimsþekktur vegna skáldsögu
sinnar um sögu heimspekinnar, Veröld Soffíu, sem kom út
árið 1991 og hefur verið þýdd á um 60 tungumál, þeirra á
meðal íslensku árið 1995.
Nýja bókin gerist í Noregi árið 2012. Hina 16 ára
gömlu Önnu dreymir oft að hún sé endurholdguð sem
sitt eigið barnabarnabarn, Nova, sem einnig er 16 ára árið
2082. Heimurinn á tímum Novu er gjörólíkur þeim sem
anna þekkir. Hörmulegar loftslagsbreytingar hafa átt sér
stað og hlýnun jarðar heldur áfram þar sem vendipunkti
hefur verið náð oftar en einu sinni. Stórir hlutar Jarðar
eru óbyggilegir vegna þurrka og gróðurleysis. Hundruð
milljóna hafa dáið vegna hungursneyða, loftslagsbreytingar
komu af stað hamfaraveðri og örvæntingin hratt af stað
stríðum. Dregið hefur stórkostlega úr líffræðilegum
fjölbreytileika vegna eyðileggingarinnar á vistkerfi Jarðar.
Í lykilsenu ásakar ofsareið Nova sína eigin langömmu –
sem er engin önnur en hin 86 ára anna – fyrir að hafa
tilheyrt kynslóðinni sem ber ábyrgð á þessum hörmungum
og fyrir að hafa ekki gert nóg til að koma í veg fyrir þær.
Gamla anna telur hins vegar að mögulega mætti breyta
gangi sögunnar. Þegar unga anna vaknar af þessum draumi
finnst henni að hún hafi nú sjálf fengið tækifæri til að bera
ábyrgð á því og til að skapa öðruvísi framtíð. Í framhaldinu
safnar hún saman alls kyns upplýsingum um það hvað gera
þurfi og stofnar umhverfissamtök í skólanum sínum.
Anna hefur hingað til fengið blendnar móttökur hjá
norskum bókmenntagagnrýnendum. Sumir halda því fram
að hin augljósu pólitísku skilaboð breyti því ekki að þetta
séu góðar bókmenntir,2 en aðrir sjá alvarlega fagurfræðilega
galla á verkinu. brynjulf Jung Tjønn gagnrýnir til dæmis
ósamræmi í talsmáta aðalsöguhetjunnar, hann sé ýmist
bráðger, fræðilegur, barnalegur, fljótfærnislegur eða
gamaldags og ekki sannfærandi í munni 16 ára stúlku.
Ódulin predikandi tónn höfundarins skipi honum þar
að auki í hlutverk kennara og lesandanum í hlutverk
nemanda. Niðurstaða Tjønns er sú að „Gaarder hefur verið
uppteknari af því að koma á framfæri loftslagsboðskap en
að skapa góðar unglingabókmenntir.”3
Gaarder hefur reyndar sjálfur kallaði Önnu
„uppeldisfræðilegt verkefni“ og viðurkennir hiklaust að
bókmenntalegur metnaður hafi ekki verið aðalatriðið við
skrif þessarar bókar. Meginmarkmiðið hafi verið að koma
á framfæri grundvallarupplýsingum um loftslagsbreytingar
og tegundir sem eru að deyja út, í því skyni að hvetja
unglinga til þess að láta að sér kveða í umhverfismálum.4
eflaust mun alltaf verða ákveðin spenna milli pólitísks
og siðferðislegs boðskapar bókmennta og fagurfræðilegra
þátta þeirra. bókmenntagagnrýnendur leggja skiljanlega
meiri áherslu á hið síðarnefnda á meðan margir lesendur
virðast uppteknir af því fyrrnefnda. reyndar eru stórir
hlutar af hinni víðfrægu bók Gaarders, Veröld Soffíu,
einnig undirlagðir af einræðum heimspekikennara, sem er
aðeins einstaka sinnum truflaður af stöðluðu svari Soffíu:
„Ég skil“. Þessi uppeldislega einhæfni kom ekki í veg fyrir
að bókin hlyti gríðarlegar vinsældir sem enginn hafði séð
fyrir.
fólk ætti því ef til vill ekki að búast við því af Gaarder
að hann skili af sér fagurfræðilega framúrskarandi
unglingabók í þetta skipti. Hörðustu gagnrýnendurnir
hneigjast þó til þess að líta fram hjá því að þrátt fyrir að
frásögnin sé stundum ófullkomin eru nokkrir sérlega
sterkir kaflar í Önnu. Þeir eru yfirleitt settir fram sem
brot úr blaðagreinum og bloggfærslum sem anna les og
koma í raun meginboðskap bókarinnar til skila: þörfinni
á siðferðislegri afstöðu, ekki aðeins gagnvart samtíðarfólki
okkar heldur gagnvart framtíðarkynslóðum. Í einni
af þessum greinum er því haldið fram að lögmálið um
gagnkvæmni – að koma fram við aðra eins og þú vilt að
aðrir komi fram við þig – verði að ná inn í framtíðina: „Þú
skalt gera öðrum kynslóðum það sem þú vildir að fyrri
kynslóðir hefðu gert þér“.5 Hin rökrétta niðurstaða er:
Hina 16 ára gömlu Önnu
dreymir oft að hún sé
endurholdguð sem sitt
eigið barnabarnabarn,
Nova, sem einnig
er 16 ára árið 2082.
Heimurinn á tímum Novu
er gjörólíkur þeim sem
Anna þekkir. Hörmulegar
loftslagsbreytingar
hafa átt sér stað.
YFIRLESIÐ
„