Spássían - 2013, Síða 44
44
Draumur á Jónsmessunótt
Nemendaleikhús LHÍ
Höfundur:
William Shakespeare
Þýðandi:
Helgi Hálfdanarson
Leikstjóri:
Stefán Jónsson
Leikmynd, lýsing og myndvinnsla:
Egill Ingibergsson
Búningar:
Agnieszka Baranowska
Tónlist:
Úlfur Hansson og Björgvin Guðmundsson
Leikendur:
Arnar Dan Kristjánsson, Arnmundur Ernst Björnsson,
Baltasar Breki Samper, Dominique Gyða Sigrúnardóttir,
Elma Stefanía Ágústsdóttir, Eysteinn Sigurðarsson,
Hafdís Helga Helgadóttir, Hildur Berglind Arndal, Katrín
Halldóra Sigurðardóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Oddur
Júlíusson, Salóme Rannveig Gunnarsdóttir, Thelma Marín
Jónsdóttir, Þór Birgisson, Þorleifur Einarsson og Þuríður
Blær Jóhannsdóttir
ÞETTA er mjög einfalt. Draumur á Jónsmessunótt er
skemmtilegasta leikrit sem skrifað hefur verið. Það er eins
og flest meistaraverk Shakespeares mjög teygjanlegt og
túlkanlegt, ótal leiðir færar að skilningi á því. Það er bara
eitt sem er bannað; að gera leiðinlega sýningu úr því.
Sem betur fer hafa nemendur Stefáns Jónssonar alls
ekki fallið á því prófi. Uppfærslan er kraftmikil og fjörug,
gegnhugsuð en samt frjálsleg og flinkur leikhópurinn
nýtur hæfileika sinna.
Þetta er hið fullkomna nemendaleikhúsverkefni. Það
eru eiginlega bara Þeseifur, Hippólíta og Egeifur sem þurfa
að vera eldri en aðrir – annars er þetta ungmennaleikrit.
Kvenhlutverkin eru bæði mörg og bitastæð. Já og svo
er þetta skemmtilegasta leikrit sem skrifað hefur verið.
Var ég búinn að segja það?
Það sem gladdi mig mest hér var hvað hópnum varð
mikið úr textanum. Miðaldra kverúlantagagnrýnendur
eins og ég eiga það til að þusa yfir hörmulegu ástandi
textanæmni hjá ungum leikurum. Gott ef okkur hefur
ekki stundum þótt gæta ákveðinnar fyrirlitningar
gagnvart þessum þætti leikaravinnunnar í viðtölum og
vinnubrögðum leikhúsfólks.
Ástar/haturssamband íslensks leikhúss við þýðingar
Helga Hálfdanarsonar á Shakespeare er svo stórmerkur
kafli í leiklistarsögu okkar. Hin hlið þeirrar sögu er
svo ástar/haturssamband Helga við íslenskt leikhús
og uppátækjasemi þess í meðhöndlun þessara sömu
þýðinga. Allt er þetta önnur saga og aðgengileg að
einhverju leyti á tímarit.is.
Helgi hefði trúi ég verið harla glaður með hve
munntöm þýðing hans var þessum hópi. Hve mikið af
hugmyndum persónusköpun og krafti sýningarinnar átti
sjáanlegar rætur í textanum, hve nautnin af því að kjamsa
á kjarnyrtri snilldinni var á köflum augljós. Ég gladdist fyrir
hans hönd og okkar hinna grámyglulegu Shakespeare-
kverúlanta.
Tvennt samt:
Af hverju varð þessu snjalla fólki svona lítill matur
úr kómedíunni um Píramus og Þispu? Þar var eins og
það væri búið á hugmyndatanknum og þetta frábæra
skemmtiatriði varð eins og að engu. Ég blæs NB á að það
hafi verið vegna þess að handverksmannahópurinn var
mikið til skipaður fyrstaársnemum. Það kemst enginn inn
í Leiklistardeild LHÍ sem ekki getur brillerað með svona
stöff í höndunum.
En einkum þó:
Er ekki teknótónlist og tilvísanir í klám- og BDSM-
heiminn sem leikhúsmál fyrir nautnir holdsins orðið
aðeins of klisjulegt?
Það er ágætis siður í dómum um Nemendaleikhúsið að
vera ekki að draga fram einstaka leikara. Mér þótti þau
öll ná að blómstra – bæði í að gera ljóðmálið að sínu, í
fögrum söng og líkamlegri fimi. Þetta er fínn hópur. Góður
draumur.
uppi á palli,
inni í skógi …
Eftir Þorgeir tryggvason