Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Blaðsíða 24
24 PRESSAN 20. mars 2020 n Alex Jones og Infowars n Hefur byggt upp stóran hóp stuðningsmanna n Setur fram staðlausar samsæriskenningar Á síðustu tveimur áratugum hefur Alex Jones, sem er oft kenndur við Infowars, tekist að vera í sviðs- ljósinu með því að setja fram hverja staðlausu samsæriskenninguna á fætur annarri, með því að hella úr skálum reiði sinnar yfir allt og alla og með því að hræða fólk með dómsdagsspám. Samfélagsmiðl- ar hafa lokað á hann þar sem boðskapur hans byggist eingöngu á lygum og sam- særiskenningum sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Það þarf því kannski ekki að koma á óvart að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir aðdáun sinni á Jones. Á undanförnum árum hefur Jones kannski einna helst verið í sviðsljósinu vegna útilokunar hans frá samfélags- miðlum og réttarhalda yfir honum fyrir að breiða út lygar um fjöldamorðin í Sandy Hook-grunnskólanum þar sem 20 fyrstubekkingar voru myrtir auk sex full- orðinna. Jones hefur haldið því fram að þetta eigi sér enga stoð í raunveruleikanum og að um sviðsetningu hafi verið að ræða, leikarar hafi verið í hlutverkum syrgjandi foreldra. Ástæðan að hans sögn var að yfir- völd ætluðu að nota málið til að þrengja að reglum um skotvopnaeign Bandaríkja- manna. Hann var nýlega dæmdur til að greiða háar bætur til foreldra eins af börn- unum sem voru myrt, fyrir þessar sam- særiskenningar sínar og lygar. Óhætt er að segja að stjórnmálaskoðanir hans séu langt til hægri á hinu pólitíska litrófi og séu öfgahægrihyggja. Jones hefur notað miðil sinn, Infowars, til að breiða út þennan boðskap og annað sem hann telur sig þurfa að koma á fram- færi við umheiminn. Hann flokkar sjálf- ur Infowars sem fjölmiðil en ekki eru all- ir sáttir við þá flokkun og telja að frekar megi líkja Infowars við netverslun sem notar ummæli Jones til að selja varning sinn. Innkoma Infowars byggist að mestu á sölu á margs konar heilsubótarefnum, að minnsta kosti eru þau sögð vera það, og pökkum sem eiga að hjálpa fólki að lifa af ef samfélagið hrynur til grunna. Jones er iðinn við að ræða um þennan varning. Reiðir miðaldra hvítir karlar Í úttekt New York Times á ferli Jones kemur fram að hann hafi bæði sýnt mikil klókindi sem kaupsýslumaður og sem hugmynda- fræðingur. Hann hafi lagað sig að breyttum tímum á pólitíska sviðinu og í fjölmiðlun og hagnist vel á því. Þetta hafi honum tekist þrátt fyrir að hafa reglulega farið yfir mörk þess sem telst viðeigandi hegðun gagnvart almenningi. Á rúmlega tveimur áratugum hefur Jones, sem er nú 46 ára, tekist að byggja upp tölu- vert stóran og tryggan hóp stuðningsmanna. Þessi hópur samanstendur að mestu af reið- um, miðaldra, hvítum karlmönnum. Þessi hópur á það sameiginlegt að vilja hlýða á boðskap eins og Jones breiðir út, það er að ríkisstjórnin og opinberar stofnanir séu á eft- ir þeim og vilji til dæmis svipta þá réttindum á borð við að geta átt skotvopn. Boðskapur- inn miðar einnig að því að byggja upp hug- myndir um að heimsendir, eða því sem næst, sé skammt undan og því verði þeir að vera enn frekar á varðbergi og enn betur vopnað- ir til að lifa af. „Ég er ekki kaupsýslumaður. Ég er byltingarsinni,“ sagði hann eitt sinn í viðtali. Ef það er rétt þá hefur honum tekist vel upp við að gera byltinguna að gróðamaskínu. Ekki er annað að sjá en að hann hafi áttað sig á að þeir sem hlusta á hann og fylgja hon- um að málum eru markhópurinn fyrir þær vörur sem hann selur í gegnum vefsíðu Info- wars og samnefndan útvarpsþátt, varningur sem á að ýta undir þann ótta sem hann kyndir undir með orðum sínum. Infowars og tengd fyrirtæki eru einkafyrirtæki og þurfa því ekki að gera rekstrarniðurstöður sínar opinberar. En miðað við það sem Jones sagði fyrir dómi 2014 þá voru tekjur fyrirtækjanna rúmlega 20 milljónir dala. Gögn sem The New York Times komst yfir sýndu að þetta ár kom megnið af tekjunum af sölu á ýmsum varningi, til dæmis Super Male Vitality, sem á að sögn að auka magn testósteróns í líkam- anum, og Brain Force Plus, sem á að efla vit- ræna starfsemi heilans. Dómskjöl, í tengsl- um við skilnaðarmál Jones, frá 2014 sýna að hagnaður fyrirtækja hans það ár var rúmlega 5 milljónir dala. Fólk sem hefur starfað með honum eða rannsakað umsvif hans segir að flest bendi til að tekjur hans hafi haldið áfram að aukast eftir þetta. Vaxandi vandræði En á undanförnum árum hefur Jones lent í ýmsum vandræðum. Að minnsta kosti fimm mál hafa verið höfðuð gegn honum, þar á meðal þrjú frá fjölskyldum barna sem voru myrt í Sandy Hook. Fyrrver- andi starfsmenn hans hafa stefnt honum fyrir meinta mismunum á vinnustaðnum. Hann stóð í erfiðum dómsmálum vegna fyrrnefnds skilnaðar og forsjár yfir þremur börnum þeirra hjóna. Einnig tókust þau á um viðskiptaveldið. Fyrir tveimur árum fóru stóru samfé- lagsmiðlarnir einnig að þrengja að honum. Facebook, YouTube, Twitter, Apple, Spoti- fy og meira að segja Pinterest settu honum miklar takmarkanir þannig að hann átti erfitt með að ná til áheyrenda sinna. Síðar lokuðu miðlarnir algjörlega á hann. Þetta hefur eðlilega dregið úr möguleikum hans á að ná til þeirra sem vilja hlusta á hann og þar með á hann erfiðara með að aug- lýsa þær vörur sem honum hefur annars orðið vel ágengt með að selja áheyrendum Hugsjóna- maður eða kaupsýslu- maður? Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Svífst einskis Alex hefur meðal annars verið sakaður um að selja gervilyf gegn COVID-19 veirunni. Heitt í hamsi Alex á marga dygga stuðningsmenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.