Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2020, Blaðsíða 22
Þ egar nafninu Kim Ed-wards er slegið inn í leitarvél á Facebook
koma upp nokkrir Facebook-
reikningar með því nafni. Ef
smellt er á andlitið sem virð-
ist yngst í þeim hópi blasir
við síða stúlku sem er 18 ára í
dag en var aðeins 14 ára þeg-
ar síðan var síðast uppfærð.
Árið 2016 skipti hin þá 14 ára
gamla Kim um forsíðumynd
á Facebook-síðunni sinni.
Á nýju myndinni er hún al-
varleg á svip, svo alvarleg að
móðir hennar, Elizabeth Ed-
wards, hafði orð á því í um-
mælum undir færslunni. Hún
spurði:
„Hvar er fallega brosið
þitt?“
Dóttirin svaraði: „Það
hvarf.“
Elizabeth: „Hvers vegna,
elskan?“
Kim: „Ég veit það ekki.“
Elizabeth: „Ég held að það
sé undir rúminu þínu ha-
haha.“
Fremur sakleysisleg og
hversdagsleg orðaskipti á
samfélagsmiðli, þó að ef til
vill felist í þeim vísbending
um vandamál. En engan
sem leit þetta augum í apríl
árið 2016 gat grunað að tíu
dögum síðar lægi önnur
þessara kvenna í blóði sínu
eftir ólýsanlegan glæp. Hver
sá sem þekkir þá sögu fyll-
ist hrolli við að horfa á þessa
mynd af unglingsstúlkunni
Kim og lesa örstutt spjall
mæðgnanna.
Kom eitt kjaftshögg
öllu af stað?
Atburðirnir sem hér um ræð-
ir áttu sér stað í Lincolnshire
á Englandi, nánar tiltekið í
bænum Spalding. Ljóst er að
samband mæðgnanna sem
ræddu stuttlega saman undir
Facebook-myndinni af dótt-
urinni var slæmt. Frásagnir
af ósætti þeirra ná allt aftur
til ársins 2008 þegar stúlkan
var aðeins sex ára gömul.
Elizabeth kýldi þá barnið í
andlitið vegna rifrildis um
sjónvarp. Hún tilkynnti brot
sitt til félagsmálayfirvalda
og Kim litlu var komið fyrir
í fóstri tímabundið.
Elizabeth var samvinnufús
við félagsmálayfirvöld og
fékk dótturina til sín aftur
rúmlega hálfu ári síðar. Sam-
bandið milli mæðgnanna
gekk betur um hríð en haft
er eftir Elizabeth að Kim hafi
aldrei fyrirgefið henni kjafts-
höggið.
Síðar kom í ljós og Kim
bar árum saman haturshug
til móður sinnar. Hún sakaði
hana um að draga taum syst-
ur sinnar, Katie, sem var ári
yngri. Fannst Kim hún var út
undan á heimilinu.
Samband mæðgnanna var
oft erfitt en versnaði veru-
lega þegar Kim kynntist
kærastanum sínum, Lucas
Markham, árið 2015. Bæði
voru þá aðeins 13 ára. Lucas
átti líka erfið æskuár að baki
og hafði misst móður sína
fimm ára gamall. Árið 2015
strauk parið einu sinni að
heiman og fannst í skóglendi
í héraðinu sex dögum síðar.
Í apríl árið 2016 hvarf
parið aftur, nánar tiltekið
rétt eftir að mæðgurnar
höfðu átt spjallið áðurnefnda
á Facebook undir myndinni
af Kim. Elizabeth tilkynnti
hvarf þeirra til lögreglu sem
hóf leit og eftirgrennslan.
Niðurstaðan úr því varð afar
óvænt og hræðileg.
Hryllileg aðkoma
lögreglumanns
Lögreglumaður sem tók þátt í
leitinni að unglingunum kom
á heimili fjölskyldunnar til
að ráðfæra sig við Elizabeth.
Honum til mikillar undrunar
voru þar fyrir þau sem hann
var að leita að, bæði Kim og
Lucas höfðu hreiðrað um sig
í stofunni og voru að horfa á
sjónvarpið.
Þau voru ósnortin af heim-
sókn lögreglumannsins sem
spurði Kim hvar mamma
hennar væri og Kim svar-
aði blátt áfram að hún væri
uppi í svefnherbergi. Lög-
reglumaðurinn gekk upp
á efri hæðina og þar blasti
við honum hryllileg sjón.
Bæði Elizabeth og Katie, 13
ára systir Kim, voru látnar,
höfðu verið skornar á háls.
Kim og Lucas gengust
greiðlega við því að hafa
myrt mæðgurnar. Undir-
rótin var gífurlegt og um
margt óskiljanlegt hatur
Kim á móður sinni. Það hat-
ur smitaðist yfir til Lucasar.
Þau lögðu á ráðin um morðið
og að kvöldi miðvikudagsins
13. apríl árið 2016 kom Lucas
með poka fullan af hnífum á
heimilið. Um nóttina skar
hann mæðgurnar á háls eftir
að þær voru sofnaðar.
Kim og Lucas þóttu bæði
ótrúlega köld og tilfinn-
ingasljó í yfirheyrslum jafnt
hjá lögreglu sem í réttar-
höldunum. Þau voru sam-
saga um að ástæðan fyrir
morðinu á Elizabeth hefði
verið hatur beggja á henni.
Þeim bar hins vegar ekki
saman um ástæðuna fyrir
því hvers vegna Katie litla
þurfti að deyja. Kim sagði
að það hefði verið til að forða
henni frá þeirri hryllilegu
óhamingju sem fylgdi því
að móðir hennar hefði verið
myrt. Lucas sagði hins vegar
blákalt að hún hefði orðið að
deyja því annars hefði hún
sagt lögreglunni frá. En lög-
reglan kom rétt eftir morðið
og parið gerði enga tilraun til
að flýja.
Börn sakhæf á Englandi
Kim og Lucas eru yngstu
tvöföldu morðingjarnir í
sögu Englands, aðeins 14 ára
gömul. Á Englandi eru börn
yfir tíu ára aldri sakhæf. Luc-
as játaði glæpi sína en Kim
bar við ósakhæfi vegna geð-
veilu. Þó að sálfræðingar og
geðlæknar teldu hana stríða
við ýmis vandamál var hún
álitin sakhæf. Þess má geta
að árið 2015 pantaði móðir
Kim viðtal hjá geðlækni eftir
að hún fann sjálfsmorðsbréf
inni í herbergi hennar. En
geðlæknirinn mat Kim svo
að hún ætti ekki við geðræn
vandamál að stríða.
Parið var dæmt í 20 ára
fangelsi. Vakti það gagnrýni
margra að svo ungar mann-
eskjur fengju svo langa fang-
elsisdóma. Við áfrýjunar-
dómstól var refsingin milduð
niður í 17 og hálft ár.
Enginn botnar í því hvern-
ig þetta barnunga fólk gat
drýgt svo hræðilega glæpi.
Það er síðan önnur og veiga-
minni spurning hvers vegna
Facebook-síða Kim Edwards
hangi ennþá uppi og vekur
fólki sem þekkir til málsins
ískaldan hroll er það horfir
á myndina af stúlkunni og
les rafræn samskipti hennar
og móður hennar, tíu dögum
áður en stúlkan og kærasti
hennar myrtu móðurina.
Sakleysisleg Facebook-mynd vekur hroll:
„Hvar er brosið þitt?“
Tíu dögum eftir friðsamleg orðaskipti mæðgnanna á Facebook var framinn glæpur
sem breskur almenningur skilur ekki ennþá og mun líklega aldrei skilja.
Lucas og Kim eru yngstu tvöföldu morðingjarnir í sögu Englands, aðeins 14 ára.
Kim skipti um
forsíðumynd
á Facebook
og spjallaði
lítillega við
móður sína.
Tíu dögum
síðar var
voðaverkið
framið.
Það er ekkert nýtt að sam-
band mæðgna sé erfitt. En
í þessu máli kom á daginn
að Kim hataði móður sína
út af lífinu. Helstu ástæð-
urnar voru tvær: Önnur
er atvik sem átti sér stað
þegar Kim var aðeins sex
ára og hitt var að Kim taldi
móður sína taka yngri
systurina fram yfir hana.
SAKA MÁL
22 FÓKUS 9. APRÍL 2020 DV