Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2020, Blaðsíða 31
KYNNING 31DV 9. APRÍL 2020
F riðrik Þór Friðriksson tók við rektorsstöðu Kvikmyndaskóla Íslands á haustdögum 2017 af
Hilmari Oddssyni sem starfaði sem
rektor í sjö farsæl ár. „Ég hef verið
viðloðandi skólann allt frá 2003,
þegar ég tók sæti í stjórn skólans.
Undir stjórn Hilmars komst skólinn í
hóp bestu kvikmyndaskóla í Evrópu.
Í dag stefnum við að því að Kvik-
myndaskóli Íslands verði á meðal
bestu kvikmyndaskóla í heimi,“ segir
Friðrik Þór, sem er einn þekktasti
kvikmyndagerðarmaður okkar Ís-
lendinga.
Kvikmyndaskóli Íslands á sér far-
sælan feril í íslenskri kvikmynda-
sögu en fyrstu námskeið á vegum
skólans voru haldin haustið 1992.
Árið 2010 var skólastarf Kvikmynda-
skóla Íslands uppfært miðað við
háskólastig og kennsluskrá skólans
löguð að því. Jafnframt var hafinn
undirbúningur að stofnun alþjóð-
legrar deildar við skólann. Árið 2012
var skólinn tekinn sem fullgildur
meðlimur inn í Cilect, alþjóðasamtök
kvikmyndaháskóla. „Við erum langt
komin með markmið okkar. Næsta
skref er að sækja um formlega há-
skólaviðurkenningu fyrir skólann og
opna deild fyrir alþjóðlega nemendur
þar sem kennt verður á ensku. Slík
deild yrði gjaldeyrisskapandi fyrir
íslenskan kvikmyndaiðnað og þjóð-
félag. Erlendir kvikmyndagerðar-
menn sem læra á Íslandi eru líklegir
til að vinna verkefni hér á landi og
skapa þannig atvinnutækifæri fyrir
íslenskt kvikmyndagerðarfólk. Þetta
er góð fjárfesting fyrir framtíðina.
Við finnum fyrir miklum áhuga
hjá erlendum nemendum og erum
bjartsýn á að alþjóðleg deild verði
komin í gagnið strax í haust. Þessi
alþjóðlegi vinkill gefur meðal annars
möguleika á að bjóða erlendum gesta-
kennurum að halda masterclass hjá
okkur á vegum Íslenska kvikmynda-
skólans og Icelandic Film School.
Sjálfur hef ég ferðast víða, starfað
við kvikmyndagerð og kennt við
erlenda skóla. Þannig hef ég byggt
upp tengslanet sem verður áhugavert
að nýta í alþjóðlegu deildinni. Ég er
til dæmis spenntur fyrir því að fá
ungverska kvikmyndagerðarmann-
inn Béla Tarr til okkar, en hann er
einn þekktasti og færasti kvikmynda-
gerðarmaður okkar tíma.“
80 prósent starfa í bransanum
eftir útskrift
Eitt af sérkennum Kvikmyndaskóla
Íslands er að um 80 prósent af þeim
sem útskrifast úr skólanum starfa
í kjölfarið í faginu. „Við gerðum
könnun og þetta er einfaldlega stað-
reynd. Kvikmyndaskólinn hefur
sett mjög stórt mark á iðnaðinn en
útskriftarnemendur frá okkur hafa
verið í lykilhlutverkum í áberandi
verkefnum eins og Áramótaskaup-
inu, sjónvarpsþáttaröðinni Broti og
fjölmörgum öðrum verkefnum. Að
loknu námi sýna útskriftarnemendur
útskriftarverkefni sín á stuttmynda-
dögum í Bíó Paradís og svo höldum
við úti ráðningavefsíðunni casting.is
fyrir útskrifaða leikara úr skólanum.
Við erum dugleg að koma nemendum
okkar sem mest út í bransann enda
erum við stolt af fólkinu okkar.“
Ómetanlegt tengslanet
Kvikmyndaskóli Íslands samanstend-
ur af fjórum deildum. Nemendur
velja á milli þess að einbeita sér í
náminu að leikstjórn, framleiðslu,
leiklist eða skapandi tækni.
Kennarar og fagstjórar Kvik-
myndaskóla Íslands búa allir að
mikilli reynslu í faginu. „Þetta er allt
fólk með raunverulega reynslu og
það er mjög gott fyrir nemendur að
fá að kynnast þessu fólki og búa sér
til tengslanet. Einnig verða til mjög
sterk tengsl á milli nemenda innan
skólans. Leikstjórar kynnast leik-
urum og klippurum og tökumönnum
og fólk miðlar reynslu á milli sín.“
Námið tekur alla jafna tvö ár og
er námslánshæft. „Það er mikill
kostur fyrir nemendur að geta fengið
námslán, en það gerir þeim kleift að
einbeita sér fyllilega að náminu og
fá sem mest út úr því meðan á því
stendur. Sjálfur hefði ég glaður viljað
nýta mér slíkt fyrirkomulag þegar ég
var að byrja í bransanum. Það hefði
verið gott að geta tekið sér tvö ár til
þess að sökkva sér almennilega í það
sem hugurinn girnist og hafa alla
þessa frábæru kennara til leiðsagnar.
Í minni tíð voru örfáir kvikmynda-
leikstjórar á landinu og enn færri
sem höfðu áhuga á að kenna. En í
dag eru hátt í tuttugu virtir kvik-
myndagerðarmenn á Íslandi sem eru
þekktir á alþjóðavísu. Við búum því
að ómetanlegum viskubrunni.“
Skólinn býr að frábærum tækja-
kosti og húsnæði, hvort sem um er
að ræða ljós, myndavélar, hljóðupp-
tökubúnað, upptökuver, green screen
aðstöðu eða annað. „Við störfum náið
með tækjaleigunum en það er mikil-
vægt að nemendur séu að vinna við
sama búnað og bransinn notar.“
Opið er fyrir umsóknir í Kvikmyndaskóla
Íslands allan ársins hring á
kvikmyndaskoli.is.
Nú þegar er Kvikmyndaskóli Íslands langt
kominn með að fylla upp í nemendafjölda í
íslensku deildina í haust.
Kvikmyndaskóli Íslands, Grensásvegi 1,
108 Reykjavík. Sími: 444-3300,
kvikmyndaskoli@kvikmyndaskoli.is
NÝ ALÞJÓÐLEG DEILD KVIKMYNDA -
SKÓLA ÍSLANDS Í HAUST
Friðrik Þór Friðriks-
son er bjartsýnn
á að það náist að
setja á stofn alþjóð-
lega deild innan
Kvikmyndaskóla
Íslands í haust.
Það hefði verið gott
að geta tekið sér tvö ár
til þess að sökkva sér
almennilega í það sem
hugurinn girnist.
Friðrik segist spenntur að fá ungverska leikstjórann Béla Tarr í samstarf við Kvikmyndaskólann. MYND/SIGTRYGGUR ARI