Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2020, Blaðsíða 38
Ég hef starfað við þetta í mörg ár og ég ætla að ná alla leið í þessu. Ég hafði
staðið mig vel í þessu starfi
hjá Gróttu , ég verð að bjarga
mannorði mínu. Það komu hót-
anir frá þeim, um að ég ætti
ekki að leita réttar míns eða
ræða við fjölmiðla, það lítur
ekki vel út fyrir mig að missa
starfið í janúar og enginn veit
hvers vegna. Þess vegna vil
ég segja frá þessu, þessar hót-
anir hafa tekið á mig,“ segir
Kristján Daði Finnbjörnsson,
fyrrverandi þjálfari hjá yngri
flokkum Gróttu.
Hann segir farir sínar í
samskiptum við félagið ekki
sléttar, á honum hafi verið
brotið þegar honum var vikið
úr starfi í janúar. Kristján
segist aldrei hafa fengið út-
skýringar á því hvaða brot
hann hafi framið.
Óhæfur fyrir suma, ekki alla
Kristján þjálfaði 6., 5. og 4.
flokk karla hjá Gróttu og var
ráðinn til starfa aftur síðasta
haust. Kristján hefur ýmis
gögn er varða málið í höndun-
um, þar kemur meðal annars
fram í bréfi frá Gróttu að fé-
lagið vildi losa hann úr starfi
hjá 4. flokki en halda honum
í starfi í öðrum flokkum. Í
4. flokki Gróttu eru synir
tveggja stjórnarmanna hjá
félaginu, annar faðirinn er
Birgir Tjörvi Pétursson, for-
maður knattspyrnudeildar-
innar. Birgir vildi ekki ræða
við blaðamann um málið.
„Þetta á sér tveggja vikna
aðdraganda, þessir tveir
drengir höfðu alltaf verið í
hóp hjá A-liði. Eftir áramót
höguðu synir þessara tveggja
aðila sér verr en áður, annar
þeirra var mjög dónalegur
og með stæla við aðra stráka
í flokknum. Hann var að
lítillækka samherja sína, ég
sendi á mömmu hans og vildi
leysa þetta. Ég fékk engin
svör, þetta var á föstudegi
og eftir helgi var mér vikið
úr starfi. Mér var vikið úr
starfi á mánudegi, degi áður
höfðu synir þessara aðila ekki
verið í A-liði, í fyrsta sinn,“
segir Kristján og er greini-
lega mikið niðri fyrir.
Vilja ekki ræða við fjölmiðla
Forráðamenn Gróttu vilja lítið
ræða málið, eins og fyrr segir
gat Birgir Tjörvi ekki svarað
spurningum blaðamanns en
lét Kára Garðarsson, fram-
kvæmdastjóra félagsins,
svara. „Við vildum ljúka þessu
í sátt, þetta er flókið í starfs-
mannamálum, að ræða það við
fjölmiðla. Við erum bundin
trúnaði,“ segir Kári.
Hann kveðst ekki hafa setið
fundinn þar sem uppsögn
Kristjáns var rædd. „Ég var
nú reyndar ekki á þessum
fundi, ástæða starfsloka hans
var ófagmannleg framkoma
við marga hlutaðeigandi. Það
urðu samstarfsörðugleikar,
það er ástæða uppsagnar-
innar. Við reyndum að leita
lausna með honum.“
Þegar Kári er spurður út í
bréf félagsins, þar sem fram
kemur að Kristján taldist
hæfur fyrir suma en ekki alla,
svarar hann: „Ég get ekki tjáð
mig um þennan hluta.“
Rætnar sögur
Kristján kveðst svekktur yfir
að hafa ekki fengið útskýr-
ingar frá félaginu um uppsögn
sína. ‚Eg hefði þá viljað fá út-
skýringar og að þeir myndu
borga uppsagnarfrest. Ekki
að tala í hringi og segja eitt-
hvað annað en það sem gerð-
ist í raun og veru. Það kom
ekki nein útskýring,“ segir
Kristján sem sakar stjórnar-
menn félagsins um að dreifa
rætnum og ósönnum sögum
um hann til foreldra.
Hann segist hafa farið á
nokkra fundi með Gróttu,
málið hafi síðan ratað til aðal-
stjórnar félagsins þar sem
honum hafi ítrekað verið
hótað og meðal annars beðinn
að þiggja greiðslu og fara ekki
með málið lengra. Hann vildi
leita lausna og segist hafa
hringt í formann knattspyrnu-
deildar.
„Ég hringdi í Birgi Tjörva
með hugmynd að lausn. Hann
byrjaði með læti, hljómaði
grimmur. Hann tjáði mér að
knattspyrna væri lifibrauð
mitt, ég þyrfti að passa hvaða
hluti ég léti frá mér. Hann
gæti stigið til hliðar sem
formaður, að hann hefði lög-
mannsstarf sem væri hans
lifibrauð. Ég tjáði honum að
hann væri að reyna að rústa
mannorði mínu og ég ætlaði
að verja mína hagsmuni.“
Kristján segir uppsögn sína
ólöglega og íhugar að lögsækja
félagið. „Það endar þannig ef
það kemur ekkert frá þeim,
þá hef ég ekkert val. Ég hefði
viljað heyra eitthvað frá þeim.“
Ætlar að bjarga mannorði sínu
Kristján íhugar
að leita réttar
síns en tals-
menn Gróttu
vilja lítið tjá sig.
Kristján segir
að Grótta
hafi bannað
honum að
ræða málið
opinberlega.
Ég tjáði honum að
ég hefði engu að
tapa, að hann væri
að reyna að rústa
mannorði mínu.
Hörður Snævar
Jónsson
hoddi@433.is
38 SPORT 433 9. APRÍL 2020 DV