Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2020, Blaðsíða 27
KYNNING 27DV 9. APRÍL 2020
D anska fyrirtækið Skanva (Vinduesgrossisten í DK) opnaði byltingarkennda
netverslun fyrir um sjö árum með
sérsmíðaða glugga og hurðir og hefur
síðan boðið viðskiptavinum sínum
upp á hágæða vörur milliliðalaust og
á afar samkeppnishæfu verði.
Bylting á Íslandi
Netverslanir Skanva eru í Danmörku,
Þýskalandi og Noregi. Fyrir tveimur
árum kom Skanva til Íslands og gjör-
bylti íslenskum markaði í sölu glugga
og hurða. Skanva er fyrsta net-
verslunin á Íslandi þar sem gluggar
og hurðir fást eftir sérmáli. „Við
liggjum ekki með neitt á lager enda
eru allar okkar vörur sérsmíðaðar
undir danskri stjórn í verksmiðjunni
í Hvíta-Rússlandi. Við hönnum alla
glugga og hurðir hér í Danmörku
ásamt því að kaupa hurðarhúna,
lamir og annað frá dönskum og
þýskum framleiðendum. Ferlið á
vefsíðunni er sáraeinfalt og verðið
kemur skemmtilega á óvart. Þess má
geta að ef þú finnur ekki eitthvað á
vefsíðunni sem þú hefur í huga, hvort
sem það er ákveðinn litur, áferð eða
efniviður, þá er um að gera að senda
okkur fyrirspurn því við getum
framleitt næstum hvað sem er,“ segir
Hanna G. Guðmundsdóttir Overby,
markaðsstjóri á Íslandi fyrir Skanva.
„Ef fólk stendur í framkvæmdum
yfir lengri tíma eða er í vafa um val á
festingum, listum eða öðru, er hægt
að geyma vöruna í körfu á síðunni
uns hún er greidd. Þangað til er hægt
að gera allar nauðsynlegar breyt-
ingar. Í sýningarsalnum á Granda
má skoða þær grunnlausnir sem við
bjóðum upp á. Einnig gefur sölumað-
ur upplýsingar og góð ráð varðandi
gerð, samsetningu, litaval og ýmis-
legt annað sem þú gætir verið í vafa
um. Þá er ekkert því til fyrirstöðu
að senda eða koma með eigin hug-
myndir, hvort sem þær eru teiknaðar
af fagaðila eða einfaldlega rissaðar
upp á servíettu og fá okkur til þess
að teikna upp og hanna glugga eða
hurðir eftir því. Þessi þjónusta kostar
ekkert aukalega.“
Það geta allir gert þetta
„Vörurnar frá Skanva eru hannaðar
með það í huga að þær séu einfaldar
í uppsetningu og því er það ekki ein-
göngu á færi fagmanna að nýta sér
þjónustu okkar. Þá erum við með You-
tube-rás þar sem sjá má skref fyrir
skref leiðbeiningar um hvernig á að
setja upp Skanva-glugga eða -hurðir.
Einnig má finna góðar ráðleggingar
um viðhald til þess að tryggja það að
hurðir og gluggar endist eins lengi og
vel og mögulegt er.“
Láttu senda heim að kantsteini
Skanva er í samstarfi við Samskip.
Viðskiptavinir geta valið um að
sækja sjálfir pöntun í Samskip við
Kjalarvog, eða fá sent heim að kant-
steini þar sem vörur eru afhentar
þar sem auðvelt aðgengi er fyrir báða
aðila. „Þetta er stórsniðug lausn fyrir
þá sem búa úti á landi, enda kapp-
kostar Skanva að þjónusta alla við-
skiptavini sína, óháð búsetu.“
Núna er tíminn
„Nú er tíminn til þess að huga að
framkvæmdum fyrir sumarið.
Gluggaísetning og hurðaskipti er best
að framkvæma yfir sumarmánuð-
ina þegar veðuraðstæður eru sem
bestar. Til að tryggja að vörurnar séu
komnar til landsins í tæka tíð er tími
til kominn að kynna sér lausnirnar
sem við höfum upp á að bjóða.“
Skoðaðu úrvalið og fáðu verðtilboð sam-
stundis á skanva.is. Sýningarrými Skanva er
að Fiskislóð 31 E, 101 Reykjavík.
Sími: 558-8400
Fáðu hugmyndir á
Instagram: @skanva.is
Facebook: Skanva.is
Youtube: Skanva – Gluggar og hurðir
NÚNA ER TÍMINN FYRIR SKANVA
Það þarf alls ekki að kosta háar fjárhæðir að skipta um litla þríhyrningslaga gluggann
í forstofunni eða hurðina sem er nokkrum sentímetrum stærri en hefðbundið telst.
Einfalt að fá verðtilboð
með reiknivélinni
1. Þú velur efnivið.
2. Síðan tegund glugga eða hurðar.
3. Útlit glugga/hurðar.
4. Færir loks inn mál glugga/hurðar og
ferð í gegnum spurningalista þar sem
þú velur lit, glertegund, gerð festingar
og margt fleira.
5. Þú færð nákvæmt verðtilboð.
Vörurnar frá Skanva eru hannaðar með það í huga að þær séu einfaldar í uppsetningu.
Gríðarmargir kostir við að kaupa frá Skanva
• Einn stærsti kostur Skanva er hagkvæmt
og samkeppnishæft verð. Kaupferlið og
uppsetning er einföld og því verða dýrir
milliliðir, sem taka prósentur af sölunni,
ónauðsynlegir. Skanva er aðallega net-
verslun og við starfrækjum litla sýningar-
sali. Allt er framleitt eftir þörfum og því
geymum við ekki tilbúnar vörur á lager.
Húsnæðiskostnaði við sýningarsali og
vöruhús er haldið í lágmarki, sem skilar
sér í hagkvæmara verði til neytenda.
Finnir þú vörur í sambærilegum gæðum
á lægra verði, frá öðrum framleiðendum,
bjóðum við sama verð.
• Þú veist undir eins hvað varan kostar
með reiknivélinni okkar, eða eftir að
hafa rætt við sölumann. Oft getur tekið
mánuði að fá verðtilboð frá iðnaðarmanni
eða öðrum endursöluaðilum, en hjá
Skanva færðu verðtilboð um leið og þú
veist hvað þú vilt.
• Allar vörur Skanva eru sérsniðnar að
kröfum viðskiptavinarins. Þú þarft því
hvorki að sætta þig við takmarkandi
efnis- eða litaval né fyrirframgefin mál.
Þú færð nákvæmlega það sem passar
fyrir þig.
• Skanva-gluggar og -hurðir eru slag-
veðurs prófuð. Það sem kemur úr verk-
smiðjunni okkar stenst því öfgafyllstu
veðuraðstæður á Íslandi með prýði. Tíu
ára ábyrgð er á öllum gluggum og hurðum
úr tré, tré/áli og plasti. Viðurinn sem not-
aður er í vörurnar er að auki hægvaxandi
gæðaviður sem er þekktur fyrir styrk og
endingu.
• Skanva-gluggar og -hurðir eru útbúin
hágæða öryggisfestingum sem gera inn-
brotsþjófum lífið leitt og verða til þess að
þeir gefast upp og leita á önnur mið.
Hanna G.
Guðmundsdóttir
Overby
markaðsstjóri
á Íslandi fyrir
Skanva.
Skanva er fyrsta netverslunin á Íslandi þar sem gluggar og hurðir fást eftir sérmáli.