Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2020, Blaðsíða 30
K ristín Tómasdóttir, hjónabandsráð-gjafi með meiru, hefur gengið til liðs við DV og mun svara spurningum les-
enda um málefni er varða fjölskylduna, börn
og ástina.
„Þetta verður fjölskylduhorn, en ég er á
lokametrunum í námi til að verða fjölskyldu-
meðferðarfræðingur. Ég mun svara spurn-
ingum frá fólki um tengsl innan fjölskyldna,
bæði hjóna- og paratengsl og tengsl við börn,
uppeldismál og um sjálfsmynd barna. Það er
hægt að senda mér fyrirspurnir og svo mun
ég líka skrifa eitthvað um þessi málefni.“
Kristín hefur komið víða við á ferlinum
og mun nýta allan sinn bakgrunn í nýja fjöl-
skylduhorninu. Hún er með BA-próf í bæði
sálfræði og kynjafræði, háskólagráðu í op-
inberri stjórnsýslu og er nú að ljúka námi
í fjölskyldumeðferðarfræði. Í lokaverkefni
sínu í því námi blandar hún saman tveimur
ástríðum, fjölskyldumeðferð og húmor, en
hún þráði uppistand sem nýskapandi fyrir-
byggjandi meðferð við paravanda og fékk
hún meðal annars að vera með uppfylling-
aratriði fyrir grínistann Sögu Garðarsdóttur
í Þjóðleikhúskjallaranum.
Við hvetjum lesendur til að senda spurn-
ingar og vangaveltur sínar til Kristínar í
tölvupósti á hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað hér í fjöl-
skylduhorninu, að sjálfsögðu nafnlaust og
undir fullum trúnaði.
Fyrsti pistill Kristínar fjallar um hamingj-
una, en að henni er sérstaklega mikilvægt
að huga á þessum fordæmalausu tímum sem
við búum við.
A llir vilja vera ham-ingjusamir. Aftur á móti erum við misham-
ingjusöm og það er misjafnt
hvað skapar okkur hamingju.
Við erum til að mynda ekki
há í loftinu þegar við lærum
að það er ekki hægt að kaupa
sér hamingju. Efnahagur
skýrir um 1% af hamingju
fólks og þó að það sé stundum
hægt að hressa sig við með
efnislegum kaupum er það
yfirleitt afar skammgóður
vermir.
Um þessar mundir erum
við, að margra mati, að ganga í
gegnum frekar niðurdrepandi
og leiðinlega tíma. Margir eru
að kljást við alvarleg veikindi
og áföll hjá sér eða sínum. Við
getum ekki gert það sem ann-
ars gerir okkur glaðan dag til
dæmis farið í líkamsrækt, út
að borða, í sund, matarboð eða
annað. Og þá reynir á okkur.
Aftur á móti veltur ham-
ingja okkar ekki á því hversu
mörg eða fá vandamál okkar
eru, heldur hvernig við tækl-
um þau. Ef við erum lausna-
miðuð og leitum leiða til að
draga úr vandanum eða finn-
um á þeim lausnir, þá erum
við líklegri til þess að finna
hamingjuna.
Hamingjusamt fólk skýrir
oftast hamingju sína sem góð
og náin tengsl við aðra. Sömu-
leiðis er einmanaleiki eitt
helsta heilbrigðisvandamál
heims samkvæmt Alþjóða-
heilbrigðismálastofnuninni og
einmanaleiki spáir sterklega
fyrir um óhamingju.
Segir þetta okkur að ef við
viljum koma hamingjusöm út
úr þessum undarlegu tímum
er líklegast til árangurs að
nýta tímann í að styrkja
tengsl. Þó svo að við getum
ekki komið saman þá er
mikilvægt að halda sambandi
og vera í félagslegum sam-
skiptum. Og hvernig gerum
við það?
Það hefur sýnt sig að eitt
mesta þrætuepli para og for-
eldra er tími. Vinnutími, frí-
tími, mismikill tími … Nú
höfum við mörg hver nægan
tíma en hann einn og sér
gerir okkur ekki hamingju-
söm heldur skiptir það máli
hvernig við nýtum tímann.
Hvernig væri að halda fjöl-
skyldufund þar sem hver og
einn fjölskyldumeðlimur fær
tækifæri til að setja á dag-
skrá fjölskyldunnar einn við-
burð? Spil, föndur, bakstur
eða kósíkvöld? Tekinn verður
svo fyrir einn viðburður á
hverjum degi um páskana.
Annað skemmtilegt sem
tekur smá tíma en styrkir
tengsl: Ritaðu niður nöfn
fimm einstaklinga sem hafa
veri til staðar fyrir þig í
gegnum tíðina með einum
eða öðrum hætti. Skildu svo
eftir lítinn glaðning fyrir
utan dyrnar hjá þeim. Ég
mæli ekki með því að pósta
því á samfélagsmiðla, hafðu
það bara fyrir þig. Sennilega
munt þú sjá hversu hamingju-
söm við getum orðið við það
eitt að gleðja aðra þó að við
uppskerum engin læk, bros-
kalla eða hjörtu.
Eins og það er nú pirrandi,
þá veltur hamingja okkar að
miklu leyti á öðrum. Nýtum
okkur það á þessum undar-
legu tímum, tökum utan um
fólkið okkar og leyfum því
að veita okkur hamingju á
innanhússferðalagi nú um
páskana.
Fjölskylduhornið
HAMINGJA
OKKAR
VELTUR Á
ÖÐRUM
Sérfræðingur svarar
30 BLEIKT 9. APRÍL 2020 DV