Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2020, Blaðsíða 22
SAKAMÁL
BÍLLINN Á BRÚNNI
DULARFULLT HVARF SÖRU STERN
Þann 2. desember árið 2016 fannst yfirgefinn bíll á fjölfarinni brú, Belmar Bridge,
í New Jersey. Bíllinn var í eigu 19 ára stúlku sem fannst hvergi.
Lykillinn var í startaran-um en engin merki um eiganda bílsins, hina
19 ára gömlu Söru Stern. Við
eftirgrennslan lögreglu kom
fljótt í ljós að síðast var vitað
um ferðir hennar daginn áður
en þá hafði hún sinnt erindum
í bænum með vini sínum.
Sarah bjó í Neptune City í
New Jersey, en það er aðeins
um fimm þúsund manna bær.
Staður þar sem allir þekkja
alla. Sarah var lífleg stúlka
og stundaði íþróttir meðfram
framhaldsskólanámi. Líf
hennar var þó ekki sorgar-
laust fremur en annarra, en
móðir hennar lést úr krabba-
meini nokkrum árum áður en
þessir atburðir urðu.
Eitt dálítið sérstakt var
sagt um Söru, að hún væri
sífellt að lýsa því yfir að hún
ætlaði að flytja til Kanada,
setjast að í Toronto. Þrátt
fyrir ítrekaðar yfirlýsingar
um flutninga þangað hafði
ekki orðið úr þeim og vinir
hennar höfðu á orði að hún
myndi aldrei fara þangað.
Auglýst var eftir Söru með
dreifiritum og bráðlega fór
umfangsmikil leit í gang sem
engu skilaði. Undir Belmar-
brúnni rennur fljótið Shark
River, víðáttumikið, djúpt og
kalt. Kafarar fundu Söru ekki
í fljótinu.
Tveir æskuvinir og jafn-
aldrar Söru, þeir Liam Mc-
Atasney og Preston Taylor,
tóku virkan þátt í leitinni að
Söru og aðstoðuðu lögregluna
eftir megni. Liam sagði lög-
reglu að hann teldi að Sara
hefði annaðhvort fyrirfarið
sér eða látið sig hverfa til
fyrirheitna landsins, Kanada.
Hún hefði verið mjög döpur
undanfarið, meðal annars
vegna deilna við föður sinn
um peningamál. Þá væri hún
ekki búin að jafna sig á dauða
móður sinnar.
Liam, Preston og Sarah
höfðu verið vinir frá því í
barnaskóla og vörðu miklum
tíma saman. Framburður
Liams hjá lögreglunni átti
stóran þátt í því að lögregla
áleit líklegt að Sarah væri
annaðhvort í Kanada eða
hefði hefði fleygt sér niður í
hyldýpi Shark River.
Kvikmyndagerðarmaður
með ótrúlega sögu
Anthony Curry heitir lítt
þekktur, ungur kvikmynda-
gerðarmaður, sem sérhæfir
sig í hryllingsmyndum. Hann
hafði samband við lögreglu
með óvæntar og ótrúlegar
upplýsingar. Vinur hans,
Liam McAtasney, hafði sagt
honum að hann hefði í hyggju
að myrða unga konu til að
komast yfir peninga hennar.
Anthony hafði ekkert gert
með þessa frásögn til að
byrja með, áleit þetta vera
einhverja hugaróra. Þegar
Liam sendi síðan Anthony
skilaboð og spurði hvort lög-
regla hefði nokkuð verið í
sambandi við hann og spurt
út í sig varðandi hvarf Söru,
þá fór Anthony með þessar
upplýsingar til lögreglunnar.
Lögreglan bað Anthony
um að freista þess að ná
fram hljóðritaðri játningu
hjá Liam. Það gekk ótrúlega
vel. Hafði Anthony lítið fyrir
því að sannfæra Liam um að
hann væri með honum í liði
og myndi ekki segja til hans.
Er þeir félagar sátu í bíl,
Anthony með hlerunarbún-
að á sér, rakti Liam hvernig
hann hefði myrt vinkonu
sína og losað sig við líkið.
Hann hefði undirbúið verkið
í marga mánuði og látið til
skarar skríða kvöld eitt þeg-
ar Sarah var ein heima en
faðir hennar var þá í Flórída.
Morðástæðan var peninga-
græðgi. Móðir Söru hafði
arfleitt hana að fjármunum,
peningaseðlum sem geymdir
voru í öryggishólfi á heimil-
inu. Sarah hafði náð að opna
hólfið. Eitthvað olli því að
Liam áleit upphæðina vera
100 þúsund dollara. En svo
kom í ljós að þetta voru að-
eins 7 þúsund dollarar. Liam
taldi sig vera að komast yfir
fjármuni sem myndu breyta
lífi hans og þess vegna ákvað
hann að myrða vinkonu sína.
Hann kyrkti Söru á heimili
hennar og tók illvirkið heilan
hálftíma. Er Sarah var látin
hringdi hann í Preston og
sagði honum að koma til
að aðstoða sig við að koma
líkinu fyrir. Þeir geymdu
líkið í runna á lóðinni þar til
skyggja tók. Síðan settu þeir
það í aftursæti bíls Söru og
Liam ók honum að Belmar-
brúnni. Preston ók sínum
eigin bíl á staðinn.
Af brúnni vörpuðu þeir
síðan líki Söru niður í Shark
River og það hefur ekki
fundist síðan. Þeir skildu bíl
hennar eftir á brúnni og fóru
til baka á bíl Prestons.
Sagðist hafa talið sig
vera í áheyrnarprufu
Ótrúlegt þykir að Liam hafi
komið upp um sig með þess-
um hætti. Lögregla hafði
talið að kenningar hans um
örlög Söru væru nokkuð trú-
verðugar og hann lá ekki
undir grun þar til Anthony
Curry gaf sig fram við lög-
reglu með upplýsingar um
hann.
Liam kom með þá skýringu
á hljóðrituðu játningunni
sem hann gerði við vin sinn
að hann hefði talið sig vera í
áheyrnarprufu fyrir næstu
hryllingsmynd hans. Sú
skýring var aldrei trúverðug
og varð að engu þegar Pre-
ston játaði á sig samsekt.
Hafði hann vitað af ráðagerð
Liams allan tímann og sam-
þykkt að aðstoða hann með
þeim hætti sem raun varð á.
Lýsing Prestons á atburð-
um var fyllilega sambærileg
við játningu Liams í bíl Ant-
honys Curry.
Liam var dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi fyrir morðið og
förgunina á líkinu. Preston
var sakfelldur fyrir samsæri
um að fremja morð og fyrir
að taka þátt í að farga líkinu.
Hann fékk 20 ára fangelsi.
Glæpurinn þykir lýsa ótrú-
legri siðblindu og fer í flokk
með verstu glæpum sem
framdir hafa verið í smá-
bænum Neptune City. n
Talið var að Sarah Stern
hefði fleygt sér fram af
brú ofan í hyldjúpt fljót
eftir að bíll hennar fannst
yfirgefinn á brúnni síðla
kvölds. Annað átti þó
eftir að koma á daginn og
þykir málið vera hið ótrú-
legasta. Ef morðingi Söru
hefði ekki játað glæpinn
með afar kæruleysislegum
hætti fyrir vini sínum er
óvíst að málið hefði verið
upplýst.
Vinirnir Liam, Sarah og Preston höfðu þekkst frá barnsaldri og voru mjög náin. Sarah Stern var 19
ára gömul þegar hún hvarf. Bíll hennar fannst yfirgefinn á brú. SKJÁSKOT/NBC-NEWS
Ágúst Borgþór
Sverrisson
agustb@dv.is
Auglýst var eftir Söru með
dreifiritum og bráðlega fór
umfangsmikil leit í gang sem
engu skilaði.
22 FÓKUS 12. JÚNÍ 2020 DV