Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2020, Blaðsíða 40
12. júní 2020 | 23. tbl. | 111. árg
dv.is/frettaskot askrift@dv.is 512 7000
SAND KORN
MYND/AÐSEND
LOKI
DV, með
puttann á
púlsinum!
Íslensk hönnun: Sigurður Már · Íslensk framleiðsla
Kickstarter-bræður
aftur á kreik
Kickstarter-bræðurnir, Einar
Ágústsson og Ágúst Arnar
Ágústsson, hafa stofnað nýtt
fyrirtæki, Megn ehf. Til-
gangur félagsins mun meðal
annars vera veitingarekstur,
lánastarfsemi, verslunar-
rekstur og kaup og sala eigna.
Einar var fundinn sekur
um að svíkja tugi milljóna
af fjórum einstaklingum
árið 2017. Í dómnum kom
fram að hann ætti sér engar
málsbætur. Hann og bróðir
hans, Ágúst, hófu safnanir
fyrir nýsköpunarverkefni
á bandarísku hópfjármögn-
unarsíðunni Kickstarter, en
söfnuninni var skyndilega
lokað eftir að sérstakur sak-
sóknari hóf að rannsaka þá
bræður, en í kjölfarið hlaut
Einar þungan dóm. Hann
mun fara með prókúruumboð
á Megn ehf. sem og gegna
stöðu framkvæmdastjóra.
Bræðurnir stofnuðu einnig
trúfélagið Zúistar sem hefur
fengið á sig harða gagnrýni
undanfarin ár.
Umdeild netfrétt
„Rússneskur áhrifavaldur
ólétt að barni stjúpsonar
síns – Eiginmaðurinn heyrði
í þeim stunda kynlíf.“ Svona
hljómar fyrirsögn fréttar
sem birtist á dv.is og hefur
vakið töluverða athygli.
Fréttin fór á topplista yfir
mest lesnu og fjölmargir
deildu henni á samfélags-
miðlum. Sumum þótti þetta
frábær frétt en öðrum fannst
efnið ekki endilega vera efni
í frétt. Meðal fjölmargra sem
leggja orð í belg á Facebook –
mögulega með vott af kald-
hæðni – er Gylfi Magnússon,
dósent við HÍ og fyrrverandi
ráðherra: „Ef DV hefði ekki
vakið athygli á þessari þróun
mála hefði hún farið framhjá
flestum landsmönnum.“ n
Íslensk hönnun: Sigurður Már · Íslensk framleiðsla
GEFÐU
UPPLIFUN
Í ÖSKJU
Rómantík, gourmet, dekur, útivist, námskeið, bröns fyrir tvo
eða hvaðeina annað sem hægt er að njóta.
Þannig er Óskaskrín, upplifun fyrir þá sem þér þykir vænt um.
577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is