Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2020, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2020, Blaðsíða 26
26 FÓKUS 12. JÚNÍ 2020 DV Á ferð um landið VESTMANNAEYJAR Vestmannaeyjar eru rólegur staður með næga afþreyingu fyrir alla aldurshópa. Hægt er að njóta náttúrufegurðarinnar á margan hátt á landi eða sjó, fræðast um sögu eyjanna og gæða sér á góðum mat. KAJAKFERÐ Kajakferð með Kayak & puffins í innsiglingunni á Heimaey sem er ein sú fallegasta á landinu. Siglt er að Heimakletti og meðfram honum inn í Kletts­ vík. Keikó bjó eitt sinn í Klettsvík sem mun í sumar verða heimili tveggja mjaldra. Ferðinni er svo heitið inn í Klettshelli sem hefur að geyma magnaða liti og hljómburð. Ferðin tekur eina og hálfa klukkustund þar sem gestir eru í fullkominni tengingu við sjóinn og náttúruna. ÉTA Fjölbreytileiki veitingastaða er mikill í Eyjum. Éta er nýr skyndibitastaður þar sem markmiðið er að bera fram hágæða skyndibita úr alvöru hráefni. Allt kjöt og allur fiskur er verkaður á staðnum úr hágæða íslensku hráefni. Mat­ seðillinn er lítill en þó er eitthvað fyrir alla. Sérstaða Éta eru hamborgarar sem eru hakkaðir á staðnum úr sérvöldum vöðvum og djúpsteiktur krydd­ aður kjúklingur. Einnig er boðið upp á veganrétti. Frábær kostur fyrir fólk á hraðferð. HÓTEL VESTMANNAEYJAR Lúxusgisting í miðbænum þar sem stutt er í alla þjónustu. Á hótelinu er spa með heitum pottum og sauna svo að gestirnir geti notið dvalarinnar til hins ýtrasta. Á fyrstu hæð hótelsins er veitinga­ staðurinn Einsi kaldi. Þar er hægt að gæða sér á fyrsta flokks mál­ tíð. Unnið er með ferskt, fjölbreytt og einstakt hráefni úr Eyjum og hafinu umhverfis þær. ÖLSTOFA THE BROTHERS BREWERY Vinaleg og fjölskylduvæn ölstofa þar sem fullorðna fólkið gæðir sér á fyrsta flokks bjór og börnin fá popp úr poppvélinni. Brothers, eins og Eyjamenn kalla stað­ inn, hefur verið gríðarlega vinsæll frá því hann var opn­ aður 2017. Boðið er upp á fjölda tegunda af bjór sem bruggaður er á staðnum. Eldfell, Humlar alheimsins og Sumarbjór eru dæmi um bjóra sem bruggaðir eru á Ölstofu The Brothers Brewery. Andrúmsloftið er gott og þjónustan til fyrirmyndar. SUND Í Sundlauginni í Vestmannaeyjum eru þrjár tegundir af rennibraut­ um. Ein fyrir yngstu börnin, ein keppnisbraut þar sem þrjú geta farið í kapp og ein trampólínrenni­ braut fyrir lengra komna. Einnig er hægt að sýna listir sínar á klifur­ vegg. Fyrir þá sem vilja slappa af eru heitir pottar á svæðinu auk gufu. FJÓRHJÓLAFERÐ Volcano ATV býður upp á fjór­ hjólaferð um eldfjallasvæði Vest­ mannaeyja. Farið er á sögufræga staði, þar á meðal nýja hraunið sem myndaðist í Heimaeyjargos­ inu 1973 og farið er inn í gíg Eld­ fells. Ferðin er tilvalin fyrir alla fjölskylduna sem getur upplifað Vestmannaeyjar í nýju ljósi. MYND/GETTY MYND/FACEBOOK KAYAKANDPUFFINS MYND/FB HOTELVESTMANNAEYJAR MYND/FACEBOOK THEBROTHERSBREWERYOLSTOFA MYND/SUNDLAUGAR.IS MYND/VOLCANOATV GOLF MEÐ LUNDUM Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum er einn vinsælasti golfvöllur landsins. Eftir fyrsta högg liggur leiðin inn í Herjólfsdal. Þar mæta golfurum alls kyns fuglar, þar á meðal lundinn. Völlurinn liggur einnig meðfram sjónum þar sem úteyjarnar heiðra golfarana með nærveru sinni. Frábær hreyfing á ferðalaginu. ELDHEIMAR Í Eldheimum er gosminjasýning sem miðlar fróðleik um eldgosið í Vestmannaeyjum árið 1973. Hægt er að fræðast um mannlífið og umhverfið fyrir gos og hvernig náttúruhamfarirnar höfðu áhrif á allt líf í Eyjum. Mið­ punktur sýningarinnar er hús sem fór undir hraun en var grafið upp og stendur nú í miðjum Eldheimum. Einnig er farið yfir Surtseyjargosið sem stóð yfir í nær fjögur ár rétt sunnan við Heimaey. MYND/GOLFKLÚBBUR VESTMANNAEYJA MYND/FACEBOOK ELDHEIMAR MYND/FACEBOOK ETAVESTMANNAEYJAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.