Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2020, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2020, Blaðsíða 28
28 MATUR 12. JÚNÍ 2020 DV Una í eldhúsinu Pastaréttur 300 g pastaskrúfur 250 g kirsuberjatómatar skornir niður til helminga 90 g mozzarella-perlur (litlar osta- kúlur) 50 g hráskinka 200 g ólífur 1 pakki, eða um 70 g, furuhnetur ristaðar létt á pönnu 1 búnt af basilíku Parmesanostur rifinn yfir að lokum Skvetta af olífuolíu Byrjið á því að sjóða pasta í vel söltu vatni samkvæmt leiðbein- ingum. Sigtið vatnið frá og kælið. Skvettið ólífuolíu yfir til að koma í veg fyrir að pastað klístrist saman. Ristið furuhnetur létt á pönnu við lágan hita og leyfið þeim svo að- eins að kólna. Skerið niður kirsuberjatómata til helminga, hráskinkuna er besta að skera í litlar ræmur. Basilíkan er svo klippt niður, sumir vilja hafa litla bita af henni á meðan aðrir vilja hafa heil blöð. Blandið öllu saman í skál, það er að segja pastanu, tómötunum, hráskinkunni, mozzarella-perl- unum, ólífunum og furuhnetunum og hrærið öllu vel saman. Rífið niður parmasean-ost að lok- um og blandið honum saman við. Ferskt pestó 70 g furuhnetur 1 búnt basilíka 150 g parmesanostur, rifinn niður 2 stk. hvítlauksgeirar 1 dl ólífuolía Ég nota alltaf Stonewall Kitch- en olíuna, en ég mæli með að nota góða ólífuolíu, hún getur verið verið svo mismunandi. Smá salt Setjið allt saman í matvinnsluvél og svo er um að gera að smakka og bæta í ef það vantar meira salt eða meiri hvítlauk svo eitthvað sé nefnt. Blandið svo pestóinu saman við pastablönduna. Verði ykkur að góðu. Einfaldur og góður pastaréttur frá matgæðingnum okkar knáa, Unu Guðmundsdóttur á unabakar.is. Þessi réttur hentar vel sem kvöldverður og þá er fullkomið að gera ríflega af honum og nýta sem nesti eða hádegisverð daginn eftir. MYNDIR/AÐSENDAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.