Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2020, Side 30
30 MATUR 12. JÚNÍ 2020 DV
Ég á í rauninni engan venjulegan dag. Ég vinn við að koma fram og
dagarnir eru eins misjafnir
og þeir eru margir. Síðustu
ár er ég búin að vera mikið á
tónleikaferðalögum erlendis
þannig að það að vera heima
í lengri tíma núna er búið að
vera mjög skrýtið en líka ynd-
islegt,“ segir Greta Salóme.
Fastað í mörg ár
„Ég fylgi í rauninni engu
ákveðnu mataræði en ég hef
fastað í mörg ár þannig að
ég sleppi yfirleitt morgun-
mat og bíð með fyrstu mál-
tíðina fram yfir hádegi. Ef
ég mætti ráða myndi ég bara
ljóstillífa á virkum dögum og
sleppa því að borða þar sem
mér finnst það svo tímafrekt
og svo borða eitthvað geggjað
um helgar og spari,“ segir
hún.
Greta Salóme ver tölu-
verðum tíma í eldhúsinu og
elskar að elda. „Það besta
sem ég veit er að fá fólk í mat
og það er eitthvað sem ég hef
frá mömmu minni. Ég hef
mikinn áhuga á matargerð
og sérstaklega bakstri og fór
nýverið að baka stórar og
flottar veislutertur. Þetta er
svona eins konar þerapía og
ég get gleymt mér í eldhúsinu
klukkutímunum saman.“
Þessa dagana er Greta
Salóme í sykurlausi átaki
fram að 8. júlí. Henni tókst
að draga um tvö þúsund
samlanda sína með sér í
átakið. „En ég verð að segja
að súkkulaði er uppáhalds-
maturinn minn. Sumir segja
að það sé ekki matur en ég er
fullkomlega ósammála.“ n
Tortilla-pitsa sem kætir bragðlaukana
Heilhveitivefja (banderos whole wheat)
Rifinn ostur
BBQ-sósa
Saxaður rauðlaukur
Sveppir
Brokkolí
Saxaðar döðlur
Maísbaunir
Steiktur kjúklingur
Leggðu flata heilhveitivefju á bökunarpappír og smyrðu
hana með BBQ-sósu og stráðu rifnum osti yfir.
Settu saxaðan rauðlauk, sveppi, brokkolí, saxaðar
döðlur og kjúkling, sem er búið að steikja, ofan á.
Síðan er lykilatriði að krydda með heitu pitsukryddi. Það
alveg breytir leiknum.
Settu svo meiri ost og svo fetaost.
Settu pitsuna inn í ofn á 175 gráður þangað til osturinn
er allur bráðnaður og hún er orðin stökk.
Þetta er svo fljótlegt og svo sjúklega gott.
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
Greta Salóme er með æði fyrir mexíkóskum mat þessa dagana. MYND/VALLI
MYND/AÐSEND
Gleymir sér
tímunum
saman
í eldhúsinu
Tónlistarkonan Greta Salóme
fylgir engu ákveðnu mataræði
en hefur fastað fram yfir hádegi
í mörg ár. Uppáhaldsmatur henn-
ar er súkkulaði en það er lítið um
hann þessa dagana þar sem hún
er í sykurlausu átaki til 8. júlí.
Matseðill Gretu Salóme
Morgunmatur
Brýt föstuna yfirleitt með höfrum
með möndlumjólk, döðlum og
heslihnetum. Það er alveg klikkuð
orka í því.
Millimál nr. 1
Ef það má flokka Pepsi Max sem
millimál myndi ég segja það, þar
sem ég er að vinna með svona
1–2 lítra á dag. Annars finnst mér
geggjað að fá mér ristað brauð
með avókadó og eggjum.
Hádegismatur
Ég er með æði fyrir mexíkóskum
mat þessa dagana og ég geri
mér heilhveitivefju með kjúklingi
og grænmeti flesta daga núna.
Trikkið er að nota grænmetið
sem maður á og steikja það með
taco-kryddi og setja svo það og
kjúklinginn í vefjuna með salsa-
sósu. Hollt og geggjað gott.
Millimál nr. 2
Vanillu- og kaffiskyr frá KEA. Það
er ótrúlega próteinríkt og klikkað
gott.
Kvöldmatur
Kjúklingur eða fiskur í ofni með
grænmeti, fetaosti og einhvers
konar kolvetnum eins og byggi,
hrísgrjónum eða sætum kart-
öflum.