Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1967, Blaðsíða 4

Íþróttablaðið - 01.05.1967, Blaðsíða 4
Svíar voru fastir fyrir í vörninni, svo sem sjá má á þessari mynd, en Stefán Jónsson lét það ekki á sig fá. (Ljósm. með þessari g-rein: Sveinn Þormóðsson). komust ekki einu sinni í 8 liða úrslitin, en loforð er loforð, og hingað sendu þeir landsliðið, eins og áður er sagt. Liðið, sem keppti í heims- meistarakeppninni kom reyndar ekki allt, aðeins 7 menn úr lið- inu þáðu boðið. I fyrri leiknum byrjuðu bæði liðin með því að þreifa fyrir sér, þannig að aðeins voru skoruð 2 mörk fyrstu 10 mínúturnar. Eftir það virtist sænska liðið vera búið að finna leiðina, upp vinstri kantinn gátu þeir siglt frían sjó, því að þar var algjört gat í íslenzku vörnina, og eins áttu Svíarnir auðvelt með að skjóta yfir íslenzku vörnina fyrir miðju marki, þar var öll- um lágvöxnustu Islendingunum stillt til varnar. Þeir komust þó ekki mörg mörk yfir í hálfleikn- um, í leikhléi stóð markatalan 11:9 á ljósatöflunni. I seinni hálfleik tók heldur en ekki að syrta í álinn fyrir okkar mönnum. Svíarnir not- færðu sér út í yztu æsar þá veiku punkta, sem þeir höfðu fundið, og komust í 15:9 eftir fáar mínútur. Það bil hélzt svo nokkurn veginn, þangað til 10 mínútur voru eftir af leiknum, þá var staðan 21:15, og leikur- inn virtist gjörsamlega tapaður. Þá loksins komst íslenzka liðið í gang. Sigurður Einarsson var settur til höfuðs bezta leik- manni Svía, Jan Hodin, sem setti alls 23 mörk í HM 1967, en hafði reyndar ekki skorað í þessum leik nema 2 mörk. Hann var samt potturinn og pannan í sænska spilinu og ruglaði ís- lenzku vörnina algjörlega með hraða sínum og leikbrellum. Og það var eins og við mann- inn mælt, þegar hann var tek- inn úr umferð, féll sænska liðið saman eins og blaðra, sem stungið er á með prjóni. Það skoraði ekki mark, það sem eft- ir lifði leiktímans, en það ís- lenzka efldist því meir, unz jafnteflismarkið var skorað úr vítakasti, þegar 20 sek. voru eftir af leiknum. Gunnlaugur Hjálmarsson, fyrirliði íslenzka liðsins, átti þarna stóran hlut að máli, lék glæsilega þennan síðasta kafla leiksins. Sama er að segja um Geir Hallsteinsson, að ógleymdum Stefáni Sand- holt, sem skoraði 5 mörk af lín- unni í leiknum. En er nokkur goðgá, þótt við spyrjum: Er ekki fullseint að fara að sýna snilld sína, þegar ekki eru nema 10 mínútur til stefnu? Þetta sænska lið var langt í frá eins gott og sum önnur, sem orðið hafa að láta í minni pok- ann fyrir íslenzka landsliðinu. Seinni leikurinn byrjaði með forskoti Svía, þeir komust í 5:2 á fyrstu 10 mínútunum, en skoruðu síðan ekki, fyrr en rétt fyrir leikhlé, en á þeim tíma skoraði íslenzka liðið 6 mörk. Var nú beitt sömu aðferð og (Sjá bls. 191). Hér skorar Geir Hallsteinsson eitt af 13 mörkum, sem hann setti í lands- leikjunum við Svía. 160

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.