Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1967, Blaðsíða 27

Íþróttablaðið - 01.05.1967, Blaðsíða 27
Fréttir af félögum og samböndum Frá Laganefnd FKl: Stjórn FRl hefur fengið Laga- nefnd FRÍ til umsagnar og úrvinnslu umburðarbréf I.A.A.F. með breyt- ingum á leikreglum þess, sem taka eiga gildi 1. maí 1967. 1 plaggi IAAF er þess getið, að handbókin með nýju breytingunum innfelldum sé í prentun og ennfremur að ýmsar skýringarteikningar, sem í eldri hand- bók eru, komi nýjar og skýrari í þeirri nýju. Með tilliti til þess og svo einnig hins, að þýðing alþjóðaregln- anna á íslenzku stendur nú yfir, töldu laganefndarmenn ekki ástæðu til að þýða allar þær reglubreytingar og orðalagsbreytingar, sem samþykktar voru á þingi IAAF 1966, heldur létu nægja að þýða og staðfæra þær breytingar, sem skipta nokkru máli fyrir íslenzkar frjálsíþróttir, og lögðu til, að stjórn FRl gæfi þær út sem bráðabirgðaákvæði. Það hefur stjórn FRl gert, og fara þessi nýju ákvæði hér á eftir: 1. gr. Ræsir skal hafa aðstoðarmann, einn eða fleiri, sem fylgjast skulu með þvi, að ekki sé brugðið við of fljótt, og hefur sá aðstoðarmaður sömu skyldu og ræsir til að kveðja hlaupara til vlðbragðs að nýju, telji hann einn eða fleiri hlaupara hafa brugið við of snemma. 2. gr. 1 hástökki, langstökki og þrí- stökki skal enginn keppandi eyða meiri tíma til tilraunar sinnar en 2 mínútum. 1 stangarstökki skal eng- inn keppandi eyða meiri tíma en 3 mínútum til tilraunar sinnar. Stökk- dómari skal gefa hverjum kepanda merki, þegar hefst sá tími, sem hon- um er ætlaður til tilraunar. 3. gr. 1 tugþraut og fimmtarþraut kvenna skal þannig raðað í riðla í síðustu grein (1500 m hlaupi og 200 m hlaupi), að þeir hlaupi saman í riðli, sem hæstir eru að stigum, áður en sú grein hefst. 4. gr. 1 4x400 m boðhlaupi og 4x200 m boðhlaupi skal hlaupa 500 m á að- skildum brautum. 5. gr. 1 spjótkasti er bannað að setja nokkur merki á atrennubrautina sjálfa, en keppendur mega setja merki, sem leikstjórn leggur þeim til, til hliðar við atrennubrautina. 6. gr. Hljóti tveir keppendur sömu stiga- tölu í tugþrautarkeppni skal sá telj- ast sigurvegari, sem hærri stigatölu hefur hlotið i fleiri einstökum grein- um. Séu þeir þá enn jafnir, skal sá teljast sigurvegari, sem hæsta stiga- tölu hefur hlotið fyrir eina einstaka grein. Þessi regla gildir jafnt, hvort sem úrskurða þarf um röð fyrstu manna eða annarra keppenda. 7. gr. I stangarstökki má ráin vera mest 4,30 m að lengd og 2,15 kg að þyngd. Mesta fjarlægð milli súlna má vera 4,32 m. Lengd stangarstökksstokks skal vera 1 m, mælt í botni innan- verðum. Stokkar, sem eru metri að lengd, mælt við efri brún, skulu þó enn halda gildi sínu sem löglegir. 8. gr. Stangarstökksstöng má vefja neð- anverða á 30 sm bili til að verja hana hnjaski í stokknum. 9. gr. Sleggjukast og kringlukast skal framkvæmt úr búri, til þess að tryggt sé öryggi áhorfenda, starfs- manna og keppenda. Búrið skal vera C-laga, 7 m í þvermál, hliðið, sem kastað er úr, um 5 m breitt. Hæðin ætti ekki að vera undir 3,35 m, en er æskileg 4 m. Hvað geta andstæðingarnir ? ísland er í riðli með Belgíu og Ir- landi í Evrópubikarkeppni í frjáls- íþróttum, en undankeppni í riðlin- um fer fram í Dublin 24. og 25. júní n. k. Belgíumenn standa framarlega I þessari grein íþrótta, svo sem sjá má af þessum lista yfir beztu af- rek þeirra 1966: 100 m hlaup: 10,4 sek Pazl Poels (landsmet), 200 m hlaup: 21,4 sek. sami, 400 m hlaup: 47,5 sek. Jacques Pennewaert, 800 m hlaup: 1:47,7 mín. Paul Roekaerts, 1500 m hlaup: 3:40,7 mín. André De Hertoghe (landsmet), 5000 m hlaup: 13:46,4 mln. Gaston Roelants, 10000 m hlaup: 28:20,8 mín. sami, 110 m grhl.: 13,9 sek. Wilfried Geeroms (landsmet), 400 m grhl.: 50,8 sek. sami (lands- met), 3000 m. hindr.hl.: 8:27,2 mín. Gaston Roelants, Hástökk: 2,00 m Yves Theisen, Stangarstökk: 4,73 m Paul Coppejans (landsmet), Langstökk: 7,46 m Yves Theisen Þristökk: 14,13 m Jacques Septon, Kúluvarp: 16,35 m Beretrand De Decker, Kringlukast: 51,70 m sami (lands- met), Sleggjukast: 58,80 m Marcel Hertogs (landsmet), Spjótkast: 71,76 m Guy Van Zeune. Miðað við árangur íslenzkra frjálsíþróttamanna sl. ár, er aðeins sigurvon í 3 greinum af 20, sem keppt er I í landskeppni. Um árangur Ira sl. ár erum við fáfróðari. En 1965 hljóp Noel Carroll 800 m á 1:47,5 mín og Basil Clifford 1500 m á 3:45,3 mín, og voru það einu greinar frjálsíþrótta, sem Irar komust á heimsafrekaskrá í það ár. 183

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.