Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1967, Blaðsíða 9

Íþróttablaðið - 01.05.1967, Blaðsíða 9
KR, Víkingur, Valur og Ármann, en í B-riðli Fram, Þróttur, lR og Hauk- ar. Varð röðin í riðlunum, eins og hér var talið, en í úrslitaleik vann Fram FH auðveldlega með 15:9. 1. 2. flokki karla voru einnig 9 lið. Þar voru í A-riðli Fram, lR, KR, FH og lA, og varð keppni nokkuð jöfn, eins og sjá má af leikjatöflunni, en í B-riðli léku Valur, Víkingur, Haukar og Þróttur. Er það eftir- tektarvert og góðs viti um framtíð íslenzks handknattleiks, að báðir riðlarnir skyldu vinnast með eins marks mun, sem réði úrslitum í leikjum efstu og næstefstu liða, og sama varð svo uppi á teningnum, þegar efstu liðin úr hvorum riðli léku saman til úrslita. Þá sigraði Valur Fram með 8 mörkum gegn 7 í mjög spennandi leik. 1 3. flokki kepptu 12 lið í 2 riðl- um. 1 A-riðli vann Víkingur FH með 1 marki, en þau 2 lið svo alla sína leiki við lA, Hauka, UBK og KR. 1 B-riðli sigraði Fram með nokkrum yfirburðum Val, Ármann, iBK, Þrótt og iR, og í úrslitaleik vann Fram Víking með 12:7. Meistaraflokkur kvenna lék í tveimur deildum, 1. deild, skipaðri Reykjavíkurfélögunum og FH, og 2. deild, sem í léku UBK, IBK, Grinda- vík og lA. , Eins og vænta mátti, sigraði Val- ur í 1. deildinni með yfirburðum. Valsstúlkurnar gerðu að vísu eitt jafntefli, við Fram, en hefðu þolað að tapa leiknum og orðið meistarar samt. Var þetta í fjórða skipti í röð, sem þær urðu Islandsmeistarar, en fimmta skipti í allt. Fram hefur jafn oft hlotið titilinn, en Ármann oftast, 12 sinnum. Ekki verður sagt, að hátt hafi verið risið á þeim handknattleik, sem stúlkurnar léku á þessu móti, æfingin virtist lítil og á engan hátt nægileg, til þess að þær þyldu að leika á velli af fullri stærð. Er athugandi fyrir HSÍ, hvort ekki sé rétt að taka upp tvöfalda umferð í Meistaraflokki kvenna til þess að skapa stúlkunum aukið verkefni. Níu leikir allan veturinn virðast engan veginn nægja til að halda uppi áhuga þeirra til nægilegrar æf- ingar né til að skapa þeim þá keppn- isreynslu, sem nauðsynleg er til þess, að þær megi teljast hlutgengar til Sigríður Sigurðardóttir skorar hjá FH í úrslitaleiknum. 2. flokkur kvenna: A-riðill: Valur Þór Vík. UBK FH Mörk Stig Valur ... . X 5:5 4:3 5:3 11:6 25:17 7 Þór . 5:5 X 6:6 9:1 11:6 31:18 6 Víkingur . 3:4 6:6 X 12:1 11:3 32:25 5 UBK . . . . . 3:5 1:9 1:12 X 8:7 13:33 2 FH . 6:11 6:11 3:11 7:8 X 22:41 0 B-riðill: KR Árm. Fram ÍBK Mörk Stig KR . X 9:3 4:3 9:1 22:7 6 Ármann . . 3:9 X 5:5 6:2 14:16 3 Fram ... . 3:4 5:5 X 6:6 14:15 2 IBK . 1:9 2:6 6:6 X 9:21 1 Úrslitaleikur: KR-Valur 5:4 Það var leikið fast í úrslitaleik Vals og Fram í 2. flokki. 165

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.