Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1967, Qupperneq 12

Íþróttablaðið - 01.05.1967, Qupperneq 12
inu með mikilli eftirvæntingu, í þetta skipti undir það búinn að taka gildan unninn sigur, hvern- ig sem til hans var unnið. En mundi nú enn verða bak- slag á gleðina — eða mundu menn nú fá að sjá þá tegund keppni, sem þá dreymdi um? Lovelock hafði sjálfur tveimur mánuðum áður skrifað um ,,þá miklu ánægju, sem það afrek veldur, sem unnið er auðveld- lega og fallega, vegna þess að það er unnið með fullkomnum stíl“. I hvað margri keppni hafði hann náð þessum full- komna stíl? Hversu mörg keppnin hafði verið ,,fullkomin“, í einu orði sagt? Míluhlaup ald- arinnar*) hafði ekki verið al- gjörlega fullkomið. Keppinautar hans höfðu ekki hlaupið af fyllstu getu sinni, og hans eig- in geta var ekki fullreynd. Þeg- ar hann setti brezka metið í míluhlaupi árið 1932, hafði að- eins verið um hlaup að ræða, ekki keppni. Margri harðri og erfiðri keppni hafði hann lokið þreyttari, en hann hafði viljað verða, margan sigurinn unnið á léttum spretti án nokkurrar ógn- unar keppinautanna. Heims- metshlaupið gegn Bonthron ár- ið 1933 hafði komizt næst því að veita honum fullkomna ánægju — og samt hafði hann séð eftir því eftir á, að ekki var hægt á ferðinni á þriðja hring. Kannski hefðu tilfinningar hans til þess hlaups orðið aðrar, ef þá hefði verið keppt um olymp- íusigur? Hann hafði hlaupið nokkur stórhlaup, en ekkert *) Míluhlaup aldarinnar, eins og bandarísku blöðin nefndu það, fór fram í Princeton I Bandaríkjunum í júní 1935. Þá sigraði Lovelock alla beztu míluhlauparana bandarísku, þ. á.m. Glen Cunningham, sem átti heimsmetið 4:06,7 mín., sett 1934. þeirra hafði algjörlega verið fullkomið. Mundi þá þessi dagur bera í skauti sér algjörlega fullkomið afrek? Að minnsta kosti vonað- ist hann til að geta hlaupið af ferskri ákefð. Hann ætlaði ekki í þetta skipti að bíða rólegur eftir hinum, þar til endasprett- urinn hæfist á beinu brautinni, og vinna svo nauman sigur eða bíða óverulegan ósigur. Hann ætlaði að taka sjálfur forystu, leggja spil sín á borðið, eins og þau lögðu sig, og taka fulla á- hættu, að einhver hinna hefði nú betri hendi. Alla vega skyldi þurfa eitthvað mikið til að sigra í þessu hlaupi. I Los Angeles hafði teygzt úr hópnum eins og í langhlaupi — tveir menn höfðu óáreyttir hlaupið 20 metrum á undan hópnum hálfa leiðina. En síðan hafði gullöld míluhlaupanna náð hápunkti sínum. Fimm af fyrstu sjö í Los Angeles voru hér enn á ferð — og nú miklu betri hlauparar. 1 þetta sinn mundu þeir hlaupa í þéttum flokki, sem hungraði í..... Ef nú þetta tækifæri, þessi keppni, virtist örva til stórfeng- legra afreka, þá var þjálfunar- ástand hans sjálfs svo sannar- lega undir þau búið. Langhlaup- in heima í Englandi, 1200 m æfingahlaupið, sem hafði verið svo létt, síðustu sprettirnir á æfingabrautinni. Vogin sýndi nákvæmlega rétta keppnis- þyngd. Hann hafði nýtt alla bitra reynslu sína frá fyrri ár- um — unnið að því að þreyta sig vel, áður en hann hélt frá Englandi, forðazt erfiða þjálf- un á skipinu, synt eftir hlaupa- æfingar, en ekki fyrir þær. Hon- um hafði tekizt, eftir öll þessi ár, að ná þeirri fullkomnu skref- lengd, sem gaf beztan árangur miðað við orkueyðslu, gaf fljót- asta hraðaaukningu og mesta afslöppun. Nú var hann snögg- ur í hreyfingum eins og kvika- silfur, og hann vissi, að hvað það snerti, yrði hann aldrei betri. Ekkert hafði gerzt öðru vísi, en hann óskaði, allt hafði þróazt fullkomlega á réttan hátt. Ef til vill var allt of full- komlega rétt, og nú hryndi allt, sem upp hafði verið byggt, rétt eins og hann vaknaði af draumi. Gat sá, sem fullkomnunar krafðist, nokkum tíma orðið ánægður? En hafði hann ekki sjálfur skrifað, að það væri mjó og óljós lína, sem skildi milli snillingsins og sérvitringsins ? Vissi hann ekki, að það var nauðsynlegt að bera þessa til- finningu í brjósti og að einkenni líkamans væru nú einnig þau réttu ? Þessi hræðslukennd, hjartslátturinn, andardráttur- inn öri, sviti og magakrampi. Hann var reiðubúinn, fullhlað- inn. Allt, sem mögulegt var, var nú þegar gert — keppnin ein var eftir, og þar varð hann að einbeita athygli sinni að hverju smáatriði, sem gerðist, fylgjast með, hvar keppinaut- arnir héldu sig, hver hraðinn væri í hlaupinu, gæta þess að halda fullri afslöppun og réttu hlaupalagi, þótt hraðinn yrði mikill, halda hugsun sinni kryst- altærri. Hinir hlauparamir ellefu höfðu verið sóttir af þýzku hlaupstjórunum og höfðu geng- ið um þveran völlinn í fylgd þeirra. En hann hafði ekki vilj- að fara strax. Hann hafði þeg- ar mýkt upp og kærði sig ekki um að bíða þama úti og láta sér verða kalt. Hann var ekki fús til samvinnu við Þjóðverj- 168

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.