Íþróttablaðið - 01.05.1967, Page 20
ÍSLANDSGLÍMAN frh. af bls. 173
Um kl. 9 er kvöldkaffi og að
pvt loknu svo tekið til við kvöld-
vöku, sem stendur venjúlega
fram yfir kl. 11.
Kerlingarfjöll (Mynd 5) eru
við suðvesturjaðar Hofsjökuls,
80 km. akstur frá Gullfossi og
eitthvað örlítið lengra frá
Blönduósi. Flatarmál fjállanna
er ekki mjög mikið, ca. 150 fer-
kílómetrar. En fegurð þeirra og
fjölbreytileiki eru mikil. Þar
eru skriðjöklar, tshellar, hverir,
heitar laugar, há fjöll og djúp-
ar gjár sem samslungin eru
hvert öðru og krydduð slíkri
litadýrð, að orð fá ekki lýst.
Af hœstu tindum sér til sjáv-
ar bœði fyrir sunnan og norð-
an landið. 1 austri sér Vatna-
jökul og Dyngjufjöll, en í vestri
Eirtksjökul og állt vestur á
Strandir.
★
Iþróttakennararnir Eirikur
Haráldsson og Váldimar Örn-
ólfsson stofnuðu Sktðaskólann
t Kerlingarfjöllum sumarið
1962, og hefur hann verið starf-
rœktur á hverju sumri siðan.
landsins, jafnt að bragðfimi sem
kröftum. Vissulega verður ekki
fram hjá því gengið, að hann
er alltof æfingarlítill og blæs
eins og smiðjubelgur eftir
hverja lotu, en þetta gerði hann
sér manna bezt ljóst sjálfur og
sá því um, að glímur hans urðu
allar stuttar. Hann lagði flesta
á fyrsta bragði, þá, sem ekki
bráðnuðu í gólfið, án þess hann
fengi tækifæri til að leggja á þá
bragð, og alla keppinauta sína
8 lagði hann. Lágu þeir á sex
mismunandi brögðum, einn
koðnaði, en einn lá á, að því er
bezt varð séð, handafli einu sam-
an. Ármann varð því glímukóng-
ur Islands í 15. sinn, þar af
óslitið í s.l. 14 ár, og hefur
enginn íslendingur orðið oftar
og óslitið meistari í einni og
sömu íþróttagrein en það.
Annar í glímunni varð Sveinn
Guðmundsson, HSH, glímukappi
Vestfirðingafjórðungs. Hann
felldi alla, nema Ármann, sem
hann glímdi við í fyrstu umferð.
Voru glímur hans léttar og
skemmtilegar og féllu áhorfend-
um vel í geð. Þó þvældust þeir
fyrir honum, Skarphéðinsmenn,
en þeim var það báðum sameig-
inlegt að skilja ekki anda nýju
glímulaganna, og var hörmung
að horfa á, hve þeir boluðust og
lýttu með því glímu sína. Á
þessi staða þó að vera þeim ó-
þörf, því þeir eru báðir hörku-
glímumenn og fimleikamenn og
snjallir að koma fyrir sig hand-
vörnum.
Annar Sunnlendingurinn,
Steindór Steindórsson, varð
þriðji að vinningum, lagði fimm,
en lá fyrir Ármanni, Sveini og
Sigtryggi Sigurðssyni, KR, sem
var venju fremur linur í þessari
glímu, lá fyrir Má Sigurðssyni,
HSK, og Ingva Guðmundssyni,
UV, auk fyrstu mannanna
tveggja, en Ingvi stóð sig með
ágætum, sýndi duglega glímu
og lagði fjóra.
Að öðru leyti vísast til vinn-
ingaskrár um sigra og byltur.
Glíman sem heild fannst mér
skemmtileg, og það fannst víst
flestum, sem á horfðu, en einn
galli var þarna á gjöf Njarðar
auk húskuldans, sem áður er á
minnzt. Þegar minnst vonum
varði, birtust sjónvarpsmenn
með myndavélar sínar og kast-
ljós, sem beint var beint í augu
helmings áhorfenda, sem síðan
máttu grína á glímuna eins og
undir sól að sjá. Verði ófögn-
uður þessi fastur liður á glímu-
mótum í framtíðinni, býð ég
ekki túskilding í aðsóknina, sem
glímumenn munu fá.
176