Íþróttablaðið - 01.05.1967, Page 24
Islandsmeistarar Glímufélagsins Ármanns í 4. flokki ásamt þjálfara sínum,
Snorra Þorleifssyni.
Þetta er í fyrsta sinn, að lið frá
Vestfjörðum tekur þátt I Islands-
móti og er ánægjulegt að sjá loks
lið frá þessum landshluta. Bundu ís-
firzku stúlkurnar enda á sigurgöngu
Snæfells í þessum flokki og verð-
skulduðu þær fyllilega sigurinn.
Þetta 16. Islandsmót í körfuknatt-
leik var það umfangsmesta frá upp-
hafi og tók 29 leikkvöld. Utanbæjar-
lið settu mjög ánægjulegan svip á
mótið, og aldrei hafa jafnmörg lið
(14) utan af landi keppt á Islands-
móti. Bendir þetta eindregið til efl-
ingar körfuknattleiksins úti á lands-
byggðinni.
Ekki markaði mót þetta nein
þáttaskil í sögu körfuknattleiksins á
Islandi, en eigi að síður verða Is-
landsmótin aðalmót körfuknattleiks-
fólks um land allt og fæst þar góður
samanburður á liðum, sem að stað-
aldri æfa og keppa við ólíkar að-
stæður.
Bogi Þorsteinsson, formaður KKl,
sleit mótinu og afhenti sigurvegur-
um verðlaunagripi þá, er um var
keppt. Sagðist hann vonast til að sjá
fleiri ný lið á næsta Islandsmóti.
Væru þau ávallt velkomin í kepp-
endahóp þann, er fyrir væri, í drengi-
legum og hollum knattleik. G. G.
Islandsmeistarar KR i 2. flokki, frá vinstri: Ólafur Stephensen, Árni T.
Ragnarsson, örn Jóhannsson, John Fenger, Kjartan Steinbach, Lúðvík
Svavarsson, Gunnar Snæland. Á myndina vantar Ágúst Svavarsson og
Brynjólf Markússon, en þeir eru báðir á hópmyndinni af 1. fl. og M. fl. á bls.
179.
Otgefandi:
Iþróttasamband íslands.
Ritstjóri:
Þórður Sigurðsson.
Utgáfuráð I.S.I.:
Þorsteinn Einarsson, form.,
Jens Guðbjömsson,
Sigurgeir Guðmannsson,
Hermann Guðmundsson.
Afgreiðsla:
Skrifstofa ISl,
Iþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Sími 30955.
Áskriftargjald 1967 kr. 200,00.
Gjalddagi 1. mal.
Prentun: Steindórsprent h.f.
180