Íþróttablaðið - 01.05.1967, Side 30
ÍÞRÓTTAANNÁLL 1967
M ARZ
12. Karólína Guðmundsdóttir, KA,
varð Akureyrarmeistari í svigi á
75,1 sek. (næsta: 152,9 sek.) og
þar með einnig í Alpatvíkeppni,
þar sem hún hafði áður sigrað í
stórsvigi. Sömu sögu er að segja
um ívar Sigmundsson, KA, sem
nú sigraði í svigkeppninni á 110,8
sek. (næstur 113,9 sek.), en hafði
áður borið sigur af keppinautum
sínum í stórsvigi, og varð því
Akureyrarmeistari í Alpatví-
keppni.
13. Þór varð Akureyrarmeistari í
körfuknattleik, sigraði ÍMA með
31:26 í úrslitaleik (17:4 í leik-
hléi).
15. HMÍ 1. deild:
Víkingur—FH 16:14 eftir 9:7 í
leikhléi og heldur ósamstilltan og
daufan leik af hálfu FH-inga.
Fram—Haukar 24:19 eftir 12:12
í leikhléi.
16. 40 ára afmæiishátíð Iþróttafélags
stúdenta var haldin í Iþróttahöll-
inni í Laugardal. Kepptu háskóla-
stúdentar við Val í knattspyrnu,
KR í handknattleik, úrval lands-
liðsnefndar í körfuknattleik og
úrval F.l.R.R. í 8x200 m boð-
hlaupi, og sigruðu stúdentar í
hverri keppni.
17. 1 þriðja leik varnarliðsmanna og
Reykjavíkurúrvals í bikarkeppni
þessara aðilja í körfuknattleik,
en þessi leikur fór fram á Kefla-
víkurflugvelli, sigruðu varnar-
liðsmenn með 47:45.
19. KMl 1. deild:
lR—KR 66:60
(eftir 25:29 í leikhléi)
KFR — Ármann 66:51
HMl 1. deild:
FH—Valur 25:15
Fram—Víkingur 31:16
19. Landsflokkaglíman fór fram að
Hálogalandi (sjá grein í apríl-
hefti).
18.-19. Reykjavikurmeistaramót í bad
minton: Jón Árnason, TBR, sigr-
aði i einliðaleik meistaraflokks.
Dennis Phillips tók þátt í Ml í frjáls-
íþróttum (1.4.). Þessi mynd er tekin
augnabliki síðar en sú, sem við birt-
um í apríl-hefti. Hann hangir enn og
bíður þess, að stöngin réttist og
skjóti honum upp yfir rána.
Jón Árnason og Viðar Guðjóns-
son, TBR, sigruðu í tvíliðaleik
m.fl. Lovísa Sigurðardóttir, TBR,
sigraði í einliðaleik. Lovísa Sig-
urðardóttir og Hulda Guðmunds-
dóttir sigruðu í tvíliðaleik. Jón
Árnason og Lovísa Sigurðardótt-
ir sigruðu I tvenndarkeppni. Frið-
leifur Stefánsson, KR, (gamall
landsliðsmaður i frjálsíþróttum)
sigraði í einliðaleik 1. flokks.
Haraldur Kornelíusson og Björn
Finnbjörnsson, TBR, sigruðu í
tvíliðaleik 1. flokks.
20. Reykjavíkurúrval í körfuknatt-
leik sigraði úrval varnarliðs-
manna af Keflavíkurflugvelli 56:
49 í 4. leik bikarkeppni þessara
aðilja.
21. -27. Skíðamót Islands fór fram á
Siglufirðl (sjá grein í apríl-hefti).
24. Cassius Clay vann Zoran Folley
með rothöggi í 7. lotu í keppni
um heimsmeistaratitilinn í þunga-
vigt hnefaleika.
25. Neal Steinhauer, sem hér var á
ferð í haust, varpaði kúlunni
21,01 m á fyrsta utanhússmóti
sínu á vorinu, en það var í
Sacramento. Aðeins heimsmet-
hafinn, Randy Matson, hefur
kastað lengra, 21,52 m.
26. Knattspyrnusamband Islands 20
ára. KSl hélt upp á afmælið með
hófi í Þjóðleikhúskjallaranum
laugardaginn 1. apríl. Forseti al-
þjóðasambands knattspyrnu-
manna, Sir Stanley Rouse, var
heiðursgestur KSl í afmælishóf-
inu, en daginn eftir flutti hann
fyrirlestur um dómaramál knatt-
spyrnunnar fyrir áhugamenn um
knattspyrnu.
27. Tilraunalandslið HSl vann pressu-
lið 26:24 í Iþróttahöllinni í Laug-
ardal.
28. Reykjavíkurúrval í körfuknatt-
leik gekk með sigur af hólmi í
bikarkeppni við varnarliðsmenn,
186