Íþróttablaðið - 01.04.1980, Síða 13
nýju, nú undir ritstjórn tveggja
kunnra íþróttafréttamanna,
þeirra Amars Eiðssonar og Halls
Símonarsonar. Þegar blaðið hóf
endurútkomu í f.ebrúar 1963, rit-
ar Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ,
aðfararorð, og segir þar m.a.:
„Það er von framkvæmda-
stjómarinnar að þetta verði í síð-
asta sinn, er íþróttablaðið hefur
göngu sína að nýju, og að héðan í
frá verði talið sjálfsagt, að stjórn-
in sjái um og reki útgáfu íþrótta-
blaðs, engu síður en aðra nauð-
synlega fyrirgreiðslu og starfsemi
fyrir sambandsaðila.
Tilgangur íþróttablaðsins er
fyrst og fremst tvíþættur: Annars
vegar að vera tengiliður milli
hinna mörgu meðlima íþrótta-
sambandsins, sem flytur þeim
fróðleik, fregnir og frásagnir af
því sem efst er á baugi á vettvangi
íþróttanna á hverjum tíma, og
hins vegar að stuðla markvisst að
því að styrkja þá-undirstöðu, sem
þróttmikil íþróttastarfsemi bygg-
ist á, að miðla félögum og hér-
aðssamböndum leiðbeiningum
og fræðslu, sem má verða til þess
að létta þeim starfið, en gæti þó
samtímis aukið virka þátttöku í
íþróttum almennt.
Framkvæmdastjórnin vonar
því fastlega, að allir þeir er
íþróttum og líkamsmennt unna,
taki blaðinu með velvilja og ger-
ist kaupendur að því frá byrjun.
Á þann hátt stuðla þeir að því, að
íþróttasambandið geti rækt
skyldur sínar betur en ella við fé-
laga sína í þágu æskunnar í
landinu.“
Næstu árin gekk útgáfa
íþróttablaðsins bærilega. Oftast
komu út 10 tölublöð á ári, flest 20
síður að stærð. Vitanlega var það
erfitt að vinna blaðinu markað að
nýju, eftir það hlé sem orðið
hafði á útgáfu þess, og fjárhag-
urinn var oftast mjög þröngur.
Þeir Örn og Hallur gegndu rit-
stjórastörfum fram til ársbyrj-
unar 1967, en þá kvöddu þeir
lesendur m.a. með þessum
orðum:
„Með næsta blaði verður
breyting á ritstjórn íþróttablaðs-
ins og mun Þórður B. Sigurðsson
taka við ritstjórn blaðsins af okk-
ur undirrituðum. íþróttablaðið
var endurvakið fyrir fjórum árum
og tókum við þá að okkur rit-
stjórn blaðsins, og svo hefur æxl-
ast til að við höfum séð um fjóra
árganga, þótt tími okkar beggja
hafi verið mjög takmarkaður og
við því ekki getað sinnt blaðinu
sem skyldi, og það var reyndar
ætlun okkar að fá fyrir löngu
lausn frá starfinu, en erfitt
reyndist að fá aðra menn eða
mann til að sjá um það.“
Segja má að næstu tvö ár, 1967
og 1968, hafi íþróttablaðið haldið
sínu striki nokkurn veginn, en
árið 1969, varð enn langt hlé á
útgáfu þess. Var ekkert blað gefið
út frá áramótum til október, en
þá tók Alfreð Þorsteinsson
í þróttaf réttaritari Tímans við
Við afgreiðum Dúnsvampdýnur eftir máli beint frá verkstæði okkar í
Kaupið beint það borgar sig
PÁLL JÓHANN — Símar: 25418 og
Skeifan 8
25416
Dúnsvampur
13