Íþróttablaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 27
Islenska landsliðið í knattspyrnu fyrir fyrsta landsleikinn sem var við Dani árið 1946. Talið frá vinstri:
Ellert Sölvason, Sæmundur Gíslason, Þórhallur Einarsson, Albert Guðmundsson, Haukur Óskarsson,
Jón Jónasson, Sveinn Helgason, Sigurður Ólafsson, Karl Guðmundsson, Hermann Hermannsson og
Brandur Brynjólfsson, fyrirliði. Síðan kemur Sigurjón Jónsson, línuvörður, Th. Kristensen, dómari og Guð-
jón Einarsson, og loks danska landsliðið.
Frímann Helgason skrif-
ar um fyrsta landsleik ís-
lendinga í knattspymu)
„Danir hófu þegar sókn,
sem endaði með ágætum
skalla er Hermann bjargar.
Nokkru síðar gera íslendingar
áhlaup á mark Dana, Sveinn
Helgason kemst í dauðafæri,
en skaut fyrir ofan og þar fór
einasta tækifærið sem íslandi
gafst í þessum leik.
Þegar 5 mínútur voru af leik
er dæmd aukaspyrna á ísland.
Lingsaa spyrnir fyrir mark, en
þar tekur á móti honum Karl
A. Hansen, og spyrnir óverj-
andi í mark. Næstu mínút-
urnar liggur meira á íslend-
ingum og sýna Danir oft sér-
lega góðan leik. íslendingar
gera þó strjál áhlaup en þau
eru öll losaraleg og rekin
áfram með löngum spymum,
án þess um samleik væri að
ræða. Ellert komst þó tvisvar
allnærri, en skaut í annað
skiptið fyrir ofan, en mark-
maður Dana getur bjargað í
horn.
í síðari hluta hálfleiksins
gera Danir mörg góð áhlaup
en engin þeirra tækifæra not-
uðust.
Síðari hálfleikur var mun
ójafnari og lá oftast á íslend-
ingum. Þeir náðu aldrei tök-
um á leiknum og samleik var
varla að sjá.“ Uppdekningar“
við innköst eða í annan tíma
voru fátíðar nema hjá öftustu
vörninni. Danir náðu nú enn
betri tökum á leiknum en
áður, og var unun að horfa á
samleik þeirra og skiptingar.
Samstarf þeirra framvarð-
anna, Ivan Jensen og K.
Lundberg, við framherjana
var framúrskarandi, enda
gátu þeir truflunarlítið farið
sínu fram, hvorki framverðir
okkar né innherjar virtust
hafa þar mikið að segja.
Byggðu þeir sóknina upp með
lágum, stuttum spyrnum. Það
var þó ekki fyrr en 25 mín. eru
af leik þegar 2. markið kemur,
er það Kaj Kristensen, sem
það gerir og litlu síðar gerir L.
Sörensen þriðja markið með
hörðu skoti.“
(Úr greininni daglegt
hreinlæti — þýtt)
„Þvottaaðferðin er þessi:
Taktu þvottapokann í hægri
hönd og legðu hann ofan á
handarbak vinstri arms, sem er
lyft beint fram. Strjúktu pok-
ann fast upp eftir arminum,
yfir öxlina og upp hálsinn að
eyra. Þá er strokið aftur sömu
leið niður og fram á handar-
bak. Þetta er ein yfirferð.
Samskonar yfirferð er fram-
kvæmd 8—10 sinnum. Að
þessum 8—10 yfirferðum
loknum er þvottapokanum
strokið með hægri hönd frá
olnboga vinstri arms um hol-
hönd niður vinstri síðu og að
hámjöðm. Þá er aftur strokið
upp síðuna um holhönd og
fram að olnboga, 8—10 yfir-
ferðir.
Að þessu loknu er þvotta-
pokanum dyfið í vatnið í
þvottaskálinni skolað úr hon-
um og hann laust undinn í föt-
una.
Þá er skipt um hönd.
Þvottapokinn settur á vinstri
hönd og tvær áðurlýstar strok-
ur framkvæmdar. Önnur um
hægri arm og öxl, háls og
hægra eyra, hin frá olnboga um
hölhönd, síðu að mjöðmum
8—10 sinnum.“
íþróttablaðið
1946
27