Íþróttablaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 29
Haukur kemur að marki sem Norðurlandameistari.
(Norðurlandameistara-
mótið, grein eftir Örn
Clausen)
„Sunnudaginn 7. septem-
ber hófst svo keppnin á
Stadion klukkan 1.30.
Keppnin þennan dag hófst
með stangarstökki og Mara-
þonhlaupi. Sú grein, sem við
Islendingarnir biðum eftir
með mestri eftirvæntingu
þennan dag var hins vegar 200
metra hlaupið, en þar átti
Haukur að keppa. Við bjugg-
umst þó ekki við íslenskum
sigri. Ég minnist þess nú, að
áður en ég fór inn á áhorf-
endapallana, kom til mín
Sverker Benson, ritstjóri við
Sænska íþróttablaðið, (en hjá
honum bjuggum við Haukur
meðan við dvöldum í Stokk-
hólmi), og sagði við mig: „Þú
heldur ef til vill að ég sé orð-
inn vitlaus, en ég þori að veðja
að Haukur bróðir þinn vinnur
200 m hlaupið.“ Ég svaraði
engu, en ég hugsaði með mér.
Skyldi hann annars vera orð-
inn vitlaus. En sleppum því.
Þegar kallarinn hafði tilkynnt,
að 200 metra hlaupið væri
næsta grein, komu þátttak-
endurnir gangandi inn á völl-
inn. Brautarskipting var
þannig: að Haukur var á 1.
braut, Strandberg á 2., Lund-
qvist, Svíþjóð á 3., Bloch á 4.;
Tranberg á 5. og Heldin, Sví-
þjóð á 6. braut. Þegar kepp-
endurnir höfðu grafið holurn-
ar og voru komnir úr búning-
unum, þá æptum við strák-
arnir „áfram ísland“ og veif-
aði Haukur þá til okkar. Okk-
ur þótti hann furðu rólegur
þegar hann var að fara af stað,
en það hefir ef til vill verið af
því að flestir álitu, að hann
yrði síðastur. Jæja! Keppend-
urnir tóku sér stöðu og skotið
reið af. Lundqvist og Tran-
berg náðu bestu viðbragði en
Haukur og Strandberg lök-
ustu, og var Haukur þó enn
seinni af stað. Þegar um 50 m
voru búnir voru Tranberg og
Lundqvist langfyrstir, og
næstur var Bloch, en Strand-
berg og Haukur síðastir.
Heldin, Svíþjóð tognaði. í við-
bragðinu en haltraði samt
áfram til að fá eitt stig fyrir
Svíþjóð. Þegar 75 m voru eftir
í mark var Tranberg fyrstur,
en Lundqvist, Bloch, Strand-
berg og Haukur allir hlið við
hlið. Þá var það sem Haukur
fór að vinna verulega á og í
markinu var hann a.m.k. 1
metra á undan næsta manni.
Tími Hauks var 21,9 sek., sem
er nýtt íslandsmet og 2/10 úr
sek. betra en gamla metið, sem
Finnbjörn setti í fyrra.
2. varð Tranberg á 22,0 sek.,
og 3. Lundqvist á 22,1 sek. En
gamli Strandberg, sem vann
100 m daginn áður, varð nú að
láta sér nægja 4. sætið með
22,2 sek., enda þótt Svíarnir
hefðu trúað því að honum
tækist að sigra með sínum
gamla og fræga endaspretti."
(Benedikt Gröndal
skrifar um íþróttasam-
band íslands 35 ára)
„Þetta er fyrsta sporið — og
það var eitt höfuðtakmark
f.S.Í. — fþróttir fyrir alla,
hraust sál í hraustum líkama.
En verkefnin voru fleiri. Með
utanferðum afreksmanna var
ekki aðeins hægt að auka
áhuga almennings á íþróttum,
heldur og kynna landið út á við
og auka hróður þess. Þetta
skildi fþróttasambandið vel, og
eitt fyrsta stórvirki þess var
ferðin til Olympíuleikanna í
Stokkhólmi 1912. Var sú för
landinu til hins mesta sóma og
lyfti undir alla íþróttastarf-
semi heima fyrir.
íþróttablaðiö
1947
29