Íþróttablaðið - 01.04.1980, Qupperneq 44
(Úr grein Sigurgeirs
Guðmannssonar um
landsmótið í knattspyrnu
1957)
„Er líða tók á mótið, var
augljóst að liðin skiptust í 2
flokka og var mikill áhugi
fyrir úrslitum á báðum
vígstöðvum.
í öðrum hópnum voru
Fram og Akranes, sem
börðust um efsta sætið, en í
hinum Akureyri, KR og
Hafnarfjörður sem kepptu um
áframhaldandi tilveru í 1.
deild. Var þeirra barátta öllu
tvísýnni og meiri áhugi fyrir
henni. en baráttu Fram og
Akraness, þótt eigi yrði skorið
úr um hvar íslandsbikarinn
hafnaði fyrr en í úrslitaleik
þeirra hinn 25. ágúst.
Lið Í.A. var vel að sigri
sínum komið. liðið var aldrei í
neinni hættu í leikjum sínum,
nema helst í leiknum gegn
Hafnarfirði, þá hafði
hafnfirska liðið möguleika til
að jafna á síðasta
íþróttablaðið
1957
stundarfjórðungi. Svo margt
hefur verið ritað um lið
Akurnesinga, að óþarft er að
fjölyrða um þetta lið, sem
hreppti þennan 4.
Islandsmeistaratitil þeirra.
Liðið hefur tekið miklum
breytingum síðan það hóf
sigurgöngu sína árið 1951,
máttarstólpar þess eru enn
hinir sömu og þá, Ríkharður,
Þórður Þórðarson, Halldór,
Guðjón og Sveinn. Halldór
gat þó ekki leikið með liðinu
framan af mótinu vegna
meiðsla sem hann hlaut við
vinnu s.l. vor.
Um lið Fram var ritað í
septemberhefti blaðsins í
sambandið við Reykjavíkur-
mótin og er óþarft að endur-
taka lýsingu á því. Því er ekki
að neita, að liðið var heppið
framan af mótinu, það vann
KR á sjálfsmarki varnarleik-
manns KR, átti láni að fanga
fyrri hálfleikinn gegn Akur-
eyringum, en niðurröðun
mótsins var ekki hagstæð, því
að leika þurfti eins og fram
kemur af úrslitunum hér að
framan, 3 leiki á einni viku um
mitt mótið. Hins vegar var
liðið óheppið í úrslitaleiknum
gegn Akurnesingum að sumu
leyti, sigurmark Akurnesinga
var eitt furðulegasta mark,
sem hér hefur sést, markvörð-
ur Í.A. spyrnti út og lenti
knötturinn á miðjum vallar-
helmingi Fram, miðfram-
vörður þess hleypur með
knettinum í áttina að markinu
án þess að snerta hann, en þá
skýst Þórður Þórðarson mið-
framherji Akurnesinga fram
fyrir, leikur knettinum inn á
vítateiginn og skorar. Þá vakti
það einnig furðu, hversu lítill
baráttuvilji var í liði Fram í
þessum leik, því að til mikils
var að vinna.“
íslandsmeistar-
ar Akraness
1957. Margir
þessara leik-
manna léku þá
einnig með ís-
lenska knatt-
sþyrnulandslið-
inu.
44