Íþróttablaðið - 01.04.1980, Page 61
íþróttablaðið
1968
(Úr grein íþróttablaðsins
um handknattleiksmót
íslands 1968)
„í 1. deild karla sigruðu
meistarar fyrra árs, Fram,
með yfirburðum, töpuðu
aðeins einum leik, fyrir
Haukum í seinni umferð, og
gerðu eitt jafntefli, við FH, í
fyrri umferðinni.
Fram vann nú meistara-
titilinn í 6. sinn, og var það
vissulega kærkomin afmælis-
gjöf, sem handknattleiksmenn
Fram færðu félagi sínu, en
Fram varð 60 ára nokkrum
dögum eftir að mótinu lauk.
Fram-liðið tók ekki veru-
legum breytingum frá fyrra
ári, það var byggt upp af sömu
gömlu kempunum, Þorsteini
Bjömssyni í markinu, Ingólfi
Óskarssyni og Sigurbergur
Sigsteinsson var sóttur austur
að Laugarvatni, þegar mikið
þótti liggja við, en hann var
þar á íþróttakennaraskóla ís-
lands. En Fram á einnig nóg
val yngri manna, og má nefna
Pétur Böðvarsson, Björgvin
Björgvinsson og Jón Péturs-
son, sem léku með liðinu. Fél-
agsandi er ríkur í Fram og
stjórn góð, ekki hikað við að
setja sterkustu leikmenn fé-
lagsins í leikbann fyrir agabrot
eða óreglu, jafnvel þótt það
kunni að kosta tapleik. Það
telja önnur félög sér ekki fært,
þau, sem við mannfæð hafa að
búa, en þyrfti að vera sjálfsagt
í hverju félagi. Því aðeins er
hægt að brýna reglusemi fyrir
yngri félagsmönnum, að þeir
eldri gefi gott fordæmi.
Leikaðferð Fram var
óbreytt, sterkur varnarleikur
og mest lagt upp úr öryggi í
íslandsmeistar Fram 1968: í fremstu röð: Guðjón Jónsson,
Ingólfur Öskarsson, Björgvin Björgvinsson, Pétur Böðvarsson.
Aðrir frá vinstri: Arnar Guðlaugsson, Ragnar Gunnarsson,
Sigurður Einarsson, Gylfi Jóhannesson, Þorsteinn Björnsson,
Gunnlaugur Hjálmarsson, Hinrik Einarsson, Jón Pétursson,
Hilmar Ólafsson. þjálfari, Gylfi Hjálmarsson og Guðmundur
Gunnarsson.
sóknaraðgerðum. Að einu
leyti fannst mér þó liðið mun
betra en í fyrra: leikhraðinn
var oftast mun meiri en áður.
Haukar urðu í öðru sæti í 1.
deild eftir líkan feril og árið á
undan. Þá töpuðu þeir fyrstu 3
leikjum sínum, en eftir það
aðeins einum leik, fyrir Fram.
Nú töpuðu þeir fyrstu 3 leikj-
unum, en heldur ekki meiru,
og íslandsmeistarana burst-
uðu þeir með 30:18. Þeir unnu
að vísu Víking og KR aðeins
með einu marki í seinni um-
ferðinni, en það undirstrikar
kannski best það, sem mér
fannst einkenna liðið, en það
var einbeitni og sigurvilji, sem
aldrei brást.“
Áskriftasími
íþróttablaðsins
er 82300 og 82302
61