Íþróttablaðið - 01.04.1980, Page 63
íþróttablaðið
Ellert B. Schram hampar sigurlaunum í bikarkeppni KSÍ, en
þann bikar hafa KR-ingar unnið öllum félögum oftar.
(Úr viðtali við Áma Guð-
mundsson, skólastjóra
íþróttakennaraskólans)
— „Nú hefur íþróttasam-
band íslands hafið starfrækslu
íþróttamiðstöðvar á Laugar-
vatni. Hvernig líst þér á þá
starfsemi?
— Mjög vel. Ég þekki ekki
annan stað á íslandi sem er
betur fallinn til svona starf-
semi en Laugarvatn.
Náttúrugæði staðarins,
náttúrufegurð og fjölbreytni í
landslagi er mikil og býður
fram mikla möguleika, sem
hagnýta má í þágu íþróttanna.
Auk þess sem staðurinn býr
tiltölulega vel, hvað húsnæði
snertir og íþróttamannvirki.
Þegar byrjunarörðugleik-
amir eru yfirstignir og
íþróttafélög og sérsamböndin
hafa lært að hagnýta þessa að-
stöðu, er ég þess fullviss að
allir, sem til þekkja, fagna
þeirri ákvörðun að gera Laug-
arvatn að íþróttamiðstöð“
(Úr viðtali við Ellert B.
Schram, fyrirliða knatt-
spymulandsliðsins)
„Eftir 13 ára feril sem
meistaraflokksmaður hlýtur
að vera margs að minnast.
Hverjir eru eftirminnilegustu
leikmerin úr röðum mótherj-
anna?
— Ríkharður Jónsson og
Helgi Daníelsson eru minnis-
stæðastir margra hluta vegna.
Þeir voru sterkir mótherjar —
og sterkir samherjar í lands-
leikjum, leikmenn sem smit-
uðu aðra með keppnishörku
sinni og leikgleði. Þessir leik-
menn voru kjölfestan í Akra-
nesliðinu í þeim úrslitaleikj-
um, sem við lékum gegn
Akranesi á þessum árum.
— Hvað um leikmenn
annarra félaga?
— Að sjálfsögðu eru marg-
ir minnisstæðir t.d. leikmenn
úr Fram og Val, sem löngum
hafa verið sterkustu mótherjar
okkar í Reykjavík. Bæði mér
og fleirum hefur fundist það
einkennandi fyrir Fram, hve
félagið á góða yngri flokka, en
þegar upp í meistaraflokkinn
er komið, er meðalmennskan
allsráðandi. Það vantar kjöl-
festuna hjá Fram og má vera
að það stafi af því, hve Fram
er gjarnt að breyta liði sínu og
setur ungu mennina of ört inn.
Þegar KR breytti liði sínu, var
kjölfestan fyrir hendi, því að
nokkrir af eldri leikmönn-
unum héldu áfram á meðan
við vorum að venjast lífinu í
meistaraflokki og veittu okkur
ómetanlega hjálp. Þannig
held ég líka, að skiptin fari
best fram.“
63