Íþróttablaðið - 01.04.1980, Síða 67
Frían hita frá kælivél?
Hver vill ekki fá frían hita?
Q Hafiö þiö gjört ykkur grein fyrir aö frystivélin er peningamylla, sem
malar dag og nótt þegar vel veiðist?
Orkan sem kaupa þarf til þess aó frysta hvert tonn af fiski er ca. 32
kílóvött.
Varmaorkan sem frystivélin fjarlægir úr hverju tonni viö frystingu og
skilar frá sér til eimsvalans jafngildir allt aö 130 kw. Eitthundrað og
þrjátíu kílóvöttum, sagt og skrifað!
Er ekki kominn tími til aö handsama eitthvaö af þessari varmaorku?
Jú hvort það er, margir hafa þegar gjört það, en margfalt fleiri hafa
ekki komið því í verk ennþá.
Q Sé hægt aö lækka reksturskostnaðinn á einfaldan og ódýran hátt og-
án þess að afköst eða gæði í framleiðslunni minnka þá skapast
fjármagn, sem nota má til arðsamra framkvæmda.
0 Ört vaxandi orkuverð hefur gert það að verkum að reksturskostnaður
frystikerfa ífiskvinnslunni, matvælaiðnaði, verzlun og birgðageymslu
er orðinn að stórum upphæðum á hverjum mánuði.
^ Sé þessi varmi virkjaður t.d. til upphitunar mun það lækka hitunar-
kostnað og er þannig fundið fé.
0 Áralöng reynsla okkar sýnir að víða er verulegum fjármunum sóað.
Við höfum þróað upp tækni sem gerir kleift að nýta varmaflutning
kælivéla til upphitunar í byggingum og lækka þannig reksturskostn-
að sem nemur umtalsverðum fjárhæðum.
Q Áður en þú slærð því föstu að kæli- eða frystikerfið sé rekið á hag-
kvæmasta hátt, borgar sig að hafa samband við okkur, mörgum
hefur komið niðurstaðan þægilega á óvart.
Saltfiskverkendur þurfa að halda sveppa- og gerlagróðri í
skefjum með kælingu og koma í veg fyrir að varan léttist.
Dæmi eru til að saltfiskkælikerfið hafi
skilað andvirði sínu og meiru á fyrsta
sumri, sparað fiskþvott og vigtartap í
árvissum verkföllum hér á landi.
Sveinn Jónsson
Alhliða þjónusta á sviði kælitækni.
Frystivélar, viðgerðir og uppsetning.
Verkstæði: Grensásvegi 48, 82730
Skrifstofa: Breiðagerði 7, «==i 82535
Látið ekki kaloríurnar =
krónurnar, renna í stríðum
straumum í niðurfallið, þegar
kyndiþörf er á næsta leiti.
> kælivélarnar skil