Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1981, Blaðsíða 10

Íþróttablaðið - 01.04.1981, Blaðsíða 10
ardömu sér við hlið. Ég vélritaði allt sjálfur. Fjárhagur íþróttasambandsins var oft bágborinn og á þessum árum voru vart til aurar fyrir frí- merkjum.“ Getur þú rakið fyrir okkur þró- unina í húsnæðismálum íþrótta- sambands íslands í stuttu máli? Nokkru eftir að ég tók við þessu starfi gekkst íþróttasam- bandið fyrir bílhappadrætti. Er skemmt frá því að segja að bíllinn gekk ekki út og við sátum uppi með hann. Þá var ákveðið að leggja verð bílsins til grundvallar kaupum á húsnæðinu að Grund- arstíg 2a og þangað fluttum við árið 1962. Á Grundarstígnum vorum við í nokkurn tíma en fluttum þaðan að Suðurlands- braut 4 H Ben húsið. Alltaf fór aðstaðan batnandi en betur mátti ef duga skyldi. Það var því mikil og stór ákvörðun þegar ákveðið var 1963 að ráðast í byggingu íþróttamiðstöðvar- innar í Laugardal en íþróttasam- bandið flutti þangað alla starfs- semi sína árið 1964 nánar tiltekið um mánaðamótin júlí/ágúst. Með þessum síðustu flutningum starfseminnar má segja að alger bylting hafi orðið í starfssemi ÍSÍ, og á ég þá aðallega við hina hús- næðislegu aðstöðu. Fjárhagur sambandsinn fór stöðugt batn- andi og var það aðalástæðan fyrir því að ráðist var í byggingu íþróttamiðstöðvarinnar. Með sí- aukinni alhliða starfsemi lá í augum uppi að fjölga þurfti starfsfólki og þegar við fluttum inn var ráðin stúlka í heils dags starf auk mín. Síðan hefur starfs- fólk alltaf verið að fjölga og í dag vinna á vegun íþróttasambands íslands auk mín þau Bjöm Vil- mundarson skrifstofustjóri, Jó- hannes Sæmundsson fræðslu- fulltrúi, sem vinnur hluta úr starfi, ein stúlka allan daginn og tvær stúlkur sem vinna hálfan daginn. Þetta er starfsliðið.“ Átta tímarnir nægja mér ekki Við spurðum Hermann hvort mikill munur væri á starfshátt- um hans í dag og frá því sem verið hefði 1951 og í hverju starfið væri aðallega fólgið? „Nei ég get ekki sagt það. starfið er mjög svipað og það var 1951 en er þó alltaf að verða um- fangsmeira eins og gefur að skilja. Starf mitt sem framkvæmda- stjóra er aðallega fólgið í eftir- farandi: Ég undirbý fundi fram- kvæmdastjómar ÍSÍ, en þeir eru haldnir vikulega svo og sam- bandsstjórnar. Þá eru alls kyns skýrslugerðir snar þáttur í mínu starfi, svo sem úrvinnsla kennsluskýrslna. Mikið er um ferðalög út á land. Héraðssam- böndin eru 27 innan ÍSÍ og ég reyni eftir bestu getu að sitja fundi þeirra. Þá hef ég umsjón með samskiptum við Norður- löndin en Bjöm Vilmundarson sér um aðrar erlendar þjóðir, og fleira mætti telja til. Þetta er gríðarlega yfirgrips- mikið starf og venjulegur vinnu- dagur, átta klukkustundir nægja mér engan veginn. Ég er yfirleitt að í 10—11 tíma á degi hverjum og þá er eftir að geta tímans sem fer í ferðalögin út á land en þangað fer ég oft um helgar.“ 38% af íbúum íslands stunduðu eða störfuðu við íþróttahreyfinguna árið 1979 Nú þarf vart að spyrja að því að á þeim þrjátíu árum sem Her- mann hefur gengt þessu erilsama starfi hefur aukning þeirra sem leggja stund á íþróttir verið gíf- urleg og af því leiðir að fjölgun þeirra sem starfa fyrir íþrótta- hreyfinguna hefur verið ör. Her- mann var spurður að því hvort hann hefði einhverjar handbærar tölur yfir þetta: Ég á 30 ára afmæli sem fram- kvæmdastjóri ÍSl þann þriðja október næst komandi og þegar þau tímamót nálgast fer maður ósjálfrátt að líta til baka. Það hefur orðið gífurleg grundvallar- breyting í öllu íþróttastarfi frá 1951 er ég tók við. Tölur iðkenda íþrótta í þessu landi hafa farið ört hækkandi en þær nýjustu er frá árinu 1979. Þá voru virkir iðk- endur íþrótta á íslandi 73.302. Kennarar og leiðbeinendur voru 2200 og þeir sem störfuðu í stjórnum félaga, sér- eða héraðs- sambanda voru 6.279 þannig að í heildina gerir þetta samtals 81.781 eða um 38% af íbúum landsins þá. Á þessu sést best hve starf íþróttahreyfingarinnar er orðið umfangsmikið.“ Skipulag íþróttahreyf- ingarínnar frá 1946 hefur staðist tímans tönn Við vendum okkar kvæði í kross og röbbum nokkuð um skipulagsmál íþróttahreyfingar- innar. Það skipulag sem nú er starfað eftir er frá árinu 1946 og er það því orðið um 35 ára gamalt. Með hliðsjón af mikilli aukningu iðkenda og ört vaxandi starfsemi varðandi íþróttir í landinu í heild spurðum við Hermann hvort þetta skipulag hefði staðist tímans tönn. „Já að mínu mati hefur það gert það. Það hafa að vísu verið gerðar nokkrar breytingar á orðalagi skipulagsins og þess- háttar smáatriðum en megin- skipulagið stendur óhaggað eftir sem áður. Með setningu íþróttalaga frá 1940 var ákveðið að skipta land- linu í íþróttahéruð. Síðan voru hérraðssamböndin stofnuð og sérsamböndin, sem eru 17 í dag, voru síðan stofnuð um hinar ýmsu íþróttagreinar. Æðsti aðili innan ISÍ er íþróttaþing en það er haldið annað hvert ár eins og ég sagði áðan Á milli þessara þinga fer sambandsstjóm ÍSÍ með æðsta valdið. I henni eiga sæti 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.