Íþróttablaðið - 01.04.1981, Síða 12
HERMANN GUÐMUNDSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRIÍSÍ í VIÐTALI
formenn hérraðssambandanna
og sérsambandanna auk fram-
kvæmdastjórnar ÍSÍ en hún er
skipuð fimm mönnum. Fram-
kvæmdastjórnin annast daglegan
rekstur sambandsins og situr
fundi einu sinni í viku.
Á íþróttaþingi mæta fulltrúar
frá héraðssamböndunum, mis-
margir eftir fjölda iðkenda hjá
hverju héraðssambandi og einn
maður frá hverju sérsamband-
anna en í heildina eru þetta yfir-
leitt um 100—120 manns. Aðal-
mál sem liggja fyrir íþróttaþingi
eru yfirleitt skipulagsmál og ýmis
framkvæmdaatriði.“
Er ekki kominn tími til að þínu
mati að endumýja þetta aldna
skipulag eða endurskoða það?
„Þetta skipulag hefur auðvitað
orðið fyrir gagnrýni og þá eink-
um og sér í lagi frá sérsambönd-
unum sem aðeins eiga einn full-
trúa hvert á íþróttaþingi hverju
sinni. Ég tel eins og ég sagði áðan,
að þetta skipulag, hafi staðist og
standist tímans tönn og ekki sé
nauðsynlegt að gera á því meiri-
háttar breytingar. Það þarf auð-
vitað að halda því við ef svo
mætti að orði komast en þörf á
meiriháttar breytingum er ekki
fyrir hendi að mínu mati.
Mistök frá upphafi að
hafa landsfélögin tvö
Eins og flestir eflaust vita er
íþróttahreyfingunni hér á landi
skipt í tvö landsfélög, íþrótta-
samband íslands og Ungmenna-
félag íslands. Marga hefur greint
á um hagkæmni þess að hafa þau
tvö og ýmsir hafa bent á að hag-
kvæmara væri að ÍSÍ yrði eina
landsfélagið. Slíkt fyrirkomulag
er við lýði víða erlendis og hefur
það reynst vel. Hvaða álit hefur
Hermann Guðmundsson á þessu
atriði?
Ég hefi þá skoðun, að það hafi
verið mistök á sínum tíma að ÍSÍ
og UMFÍ voru ekki sameinuð í
eitt landssamband.
En úr því sem komið er, tel ég
ekki rétt að hagga núverandi
skipulagi.
Þessi tvö sambönd hafa
blómstrað vel hlið við hlið og
samvinna góð, þótt nokkuð örli á
vissri samkeppni og við því er
ekkert nema gott eitt að segja.
En ég vek athygli á því að þótt
talað sé um tvö landssambönd,
ÍSl og UMFÍ eru öll íþrótta og
ungmennafélög landsins innan
ÍSÍ, en hluti þeirra er í UMFÍ, og
að staða ÍSÍ er sú í reynd og
samkvæmt íþróttalögum að
ÍSÍ er æðsti aðili um frjálsa
íþróttastarfsemi áhugmanna í
landinu og kemur fram erlendis
af íslands hálfu í íþróttamálum.
Framhald á bls. 76.
Reykjavík—Akureyri
SÉRLEYFISFERÐIR
01/10-15/5 3 ferðir á viku
16/5-31/9 daglegar ferðir
Einsdagsferðir með
leiðsögn um
Sprengisand og
Kjalveg milli
Akureyrar
og Reykjavíkur.
Höfum ávallttil leigu hópferðabíla til lengri og
skemmriferða. NORÐURLEIÐ HF
í JÚLÍ OG ÁGÚST
12